Deilt um rafmagnskapla

Fjórir flokkar á danska þing­inu, Fol­ket­inget, hafa komið í veg fyrir að rík­is­stjórnin geti selt hluta orku­dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Radius. Formenn flokk­anna segja sporin hræða og grunn­þjón­usta eigi að vera í eigu rík­is­ins.

Avedøre orkuverið í Kaupmannahöfn.
Avedøre orku­verið í Kaup­manna­höfn. Mynd: EPA

Eitt helsta átaka­mál í dönskum stjórn­málum um langt ára­bil var sú ákvörðun rík­is­stjórnar Jafn­að­ar­manna (2011 – 2015) undir for­sæti Helle Thorning-Schmidt að selja hluta orku­fyr­ir­tæk­is­ins DONG til banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­ans Goldman Sachs. DONG, sem nú heitir Ørsted, var stofnað árið 1972 og er lang stærsti orku­fram­leið­andi Dan­merkur. Hug­myndin um söl­una var ekki ný. Árið 2004, í valda­tíð Anders Fogh Rasmus­sen (Venstre), náð­ist sam­komu­lag milli stjórn­ar­innar og tveggja flokka utan stjórn­ar­innar um að skrá DONG á markað og und­ir­búa sölu á hluta fyr­ir­tæk­is­ins, en ríkið skyldi áfram vera meiri­hluta­eig­andi. Sá und­ir­bún­ingur var kom­inn á loka­stig þegar fjár­mála­hrunið varð, árið 2008, en var þá frestað.

Árið 2012 gekk rekstur DONG illa, og þá var rykið dustað af sölu­hug­mynd­unum frá 2004. Jafn­að­ar­menn voru þá í stjórn­ar­for­ystu en auk þeirra áttu Radikale Venstre (RV) og Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn (SF) aðild að stjórn­inni. Bjarne Corydon, fjár­mála­ráð­herra Jafn­að­ar­manna, barð­ist hart fyrir því að selja hluta DONG en ákafar deilur voru um málið innan stjórn­ar­innar og á þing­inu.

Innan SF var hart deilt um söl­una, sem for­mað­ur­inn Annette Vil­helm­sen studdi. Svo fór að flokk­ur­inn gekk úr stjórn­inni, for­mað­ur­inn sagði af sér og fyrr­ver­andi ráð­herrar sögðu sig úr flokknum, sem tap­aði miklu fylgi í kosn­ingnum árið 2015.

Goldman Sachs

30. jan­úar 2014 var und­ir­rit­aður samn­ingur um kaup Goldman Sachs á nítján pró­senta hlut í DONG. Fyrir hlut­inn greiddi fjár­fest­inga­bank­inn 8 millj­arða danskra króna (144 millj­arða íslenska). Að mati margra sér­fræð­inga var verðið alltof lágt, Goldman Sachs fengi hlut­inn á spott­prís, en Bjarne Corydon fjár­mála­ráð­herra þvertók fyrir að svo væri. Margir héldu því fram að Goldman Sachs ætl­aði sér ekki að eiga hlut­inn í DONG til fram­búðar, fyr­ir­tækið hugs­aði bara um eitt: Að græða mikið.

Goldman Sachs seldi hlut sinn árið 2017, fékk þá fyrir hann 20 millj­arða danskra króna (360 millj­arða íslenska) og hafði sann­ar­lega hagn­ast vel á kaup­unum. Þá skipti fyr­ir­tækið jafn­framt um nafn, fékk nafnið Ørsted, eftir hinum þekkta danska vís­inda­manni Hans Christian Ørsted. Hin opin­bera skýr­ing var að fyr­ir­tækið væri ekki lengur með sams­konar starf­semi og í upp­hafi en DONG var skamm­stöfun á Dansk Olie og NaturGas. Nokkrir danskir fjöl­miðlar gátu sér þess til að DONG nafnið kall­aði fram minn­ingar um „mesta klúður danskrar við­skipta­sögu“ eins og kom­ist var að orði og þess vegna hefði verið æski­legt að finna annað nafn.

Radius

Í árs­byrjun 2016 til­kynntu stjórn­endur DONG (einsog fyr­ir­tækið hét þá) að dreif­ing­ar­hluti fyr­ir­tæk­is­ins yrði skil­inn frá fram­leiðslu­hlut­anum og fengi nafnið Radius. Þessi breyt­ing tók gildi 1. apríl sama ár. Radius ann­ast flutn­ing og dreif­ingu raf­orku og gass á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu, Norður-Sjálandi og hluta Mið-Sjálands. Dreif­ing­ar­netið (kapl­arnir) eru sam­tals um 19 þús­und kíló­metra langir, raf­orku­kaup­endur um það bil 1 milljón og kaup­endur gass tæp­lega 100 þús­und. Auk þess ann­ast fyr­ir­tækið rekstur um það bil 160 þús­und götu­ljósa á Sjálandi.

Radius til sölu

Í júní í fyrra, 2018 til­kynnti Ørsted að Radius væri til sölu. Nokkrir erlendir aðilar sýndu kaup­unum áhuga en margir Danir fengu gæsa­húð þegar þeir fréttu af þessum fyr­ir­ætl­unum (orða­lag Politi­ken) og varð hugsað til söl­unnar á DONG. Margir þing­menn lýstu strax mik­illi and­stöðu við að selja Radius og þótt Kristian Jensen fjár­mála­ráð­herra hafi lýst yfir að „vel yrði fylgst með rekstr­inum“ sögðu þing­menn að slíkar yfir­lýs­ingar væru algjör­lega marklausar. Erlendir kaup­endur myndu fyrst og fremst hafa áhuga á að hagn­ast sem mest „sporin frá DONG hræða“ sagði Pelle Dragsted tals­maður Ein­ing­ar­list­ans í við­tali við Politi­ken. Nokkrir þing­menn lýstu yfir að þeir myndu berj­ast gegn söl­unni á Radius með kjafti og klóm.

Frede Hvelplund pró­fessor við Háskól­ann í Álaborg , sér­fræð­ingur í orku­málum sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að einka­væð­ing orku­fyr­ir­tækja hefði víða gef­ist illa og þess væru mörg dæmi að opin­berir aðilar væru að kaupa slík fyr­ir­tæki til baka (afpri­vat­isere). Þeir sem kaupa orku­fyr­ir­tækin eru iðu­lega sjóðir sem hugsa fyrst og fremst um ágóð­ann en hirða minna um við­hald og upp­bygg­ingu. Þegar allt er komið í hönk neyð­ast opin­berir aðilar, sem bera ábyrgð á öllu saman, til að hlaupa undir bagga og punga út stórfé. Stjórn Ørsted hefur setið fast við sinn keip og nýlega lýsti stjórn­ar­for­mað­ur­inn því yfir að ætl­unin væri að selja Radius á þessu ári. Salan er hins vegar háð sam­þykki þings­ins og rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen er minni­hluta­stjórn og getur þess vegna ekki farið sínu fram að vild.

Þingmenn vilja koma í veg fyrir söluna

Pelle Dragsted, þing­maður Ein­ing­ar­list­ans, hefur ákaft barist gegn því að Radius fyr­ir­tækið verði selt. Fyrir nokkrum dögum greindi hann frá því að Ein­ing­ar­list­inn, Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, Jafn­að­ar­menn og Sós­íal­íski þjóð­ar­flokk­ur­inn hafi tekið höndum saman og upp­álagt stjórn­inni að sjá til þess að nauð­syn­leg grunn­þjón­usta verði í meiri­hluta­eigu hins opin­bera eða sam­eign­ar­fé­lags not­enda. Þetta þýðir að Radius verður ekki selt.

Pelle Dragsted sagði í við­tali við dag­blaðið Politken að þetta væri mik­il­væg stefnu­breyt­ing. „Hér hefur það verið lenska um langt ára­bil að einka­væða alla skap­aða hluti, árang­ur­inn hefur í flestum til­fellum ekki verið til hags­bóta fyrir borg­ar­ana. Það er tími til kom­inn að snúa af þess­ari braut.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár