Nýjar íbúðir í Reykjavík kosta að meðaltali 51 milljónir

Einungis 6% allra íbúa­við­skipta í Reykja­vík á fyrstu sjö mán­uðum þessa árs voru vegna nýbygg­inga. Sér­stakur skortur er á ódýrum íbúðum sam­kvæmt hag­deild Íbúða­lána­sjóðs.

Reykjavík dýrust
Reykja­vík dýr­ust Nýjar íbúðir kosta að með­al­tali 51 milljón króna í Reykja­vík. Verð á öðrum íbúðum er að með­al­tali 46 millj­ónir.

Ný grein­ing hag­deildar Íbúða­lána­sjóðar sýnir fram á að 14% allra íbúða­við­skipta á almennum mark­aði í ár voru vegna nýbygg­inga. Í Reykja­vík voru ein­ungis 6% íbúða­við­skipta vegna nýrra íbúða, á meðan tölur í Garðabæ voru 56% hlut­fall nýrra íbúða.

Nýbyggðar íbúðir eru minni sam­an­bornar við aðrar íbúðir á mark­aði og telja færri her­bergi. Á Akureyri eru minnstu íbúð­irnar miðað við aðrar íbúðir í bænum, um 82 fer­metrar að stærð eða 38 fer­metrum minni en aðrar seldar íbúðir. 

Nýjar íbúðir í Reykja­vík kosta að með­al­tali 51 millj­ónir, en verð ann­arra íbúða eru að með­al­tali 46 millj­ónir. Fer­metra­verð á nýjum íbúðum í Reykja­vík er 32% hærra en aðrar íbúðir á svæð­inu. 

Sér­stakur skortur er á íbúðum á verði sem almenn­ingur ræður við sam­kvæmt grein­ing­unni. Framboð íbúða hentar ekki þeim sem hafa lítið eigið fé til íbúða­kaupa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár