ABBA snýr aftur

Fáar fréttir í tón­list­ar­heim­inum hafa und­an­farið vakið meiri athygli en þegar frá því var greint að hljóm­sveitin ABBA væri vöknuð til lífs­ins eftir nær 40 ára hlé, og ný plata, Voyage, á leið­inni. Hún kom út sl. föstu­dag.

Fyrir nokkru spurði sænskur blaða­maður 20 sænska mennt­skæl­inga hvað þeim dytti fyrst í hug þegar þeir heyrðu orðið Waterloo. Öll nefndu sam­stundis ABBA, og öll gátu raulað upp­haf lags­ins. Þá spurði blaða­mað­ur­inn hvort þau gætu nefnt fimm lög með ABBA. Það stóð ekki á svör­unum og flest úr hópnum nefndu miklu fleiri lög, einn bun­aði út úr sér nöfnum á 20 vin­sælum ABBA lögum. Blaða­mað­ur­inn sagð­ist sjálfur ekki hafa kann­ast við öll laga­heitin, þótt hann hefði verið uppá sitt besta á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, þegar stjarna ABBA skein hvað skær­ast.

Stundum er sagt að þessi eða hinn hafi orðið heims­frægur á einni nóttu. Það á sann­ar­lega við um ABBA, sem sló ræki­lega í gegn í evr­ópsku söngvakeppn­inni, Eurovision, árið 1974. Þótt heims­frægðin hafi komið á einni nóttu, vorið 1974, voru fjór­menn­ing­arnir ekki blautir á bak við eyrun í tón­list­inni. Þau Agnetha Fältskog, Anni-Frid Lyngstad, Benny And­ers­son og Björn Ulvaeus höfðu öll verið starf­andi tón­list­ar­fólk áður en ABBA varð til en sú saga verður ekki rakin hér. Anni-Frid og Benny rugl­uðu sínum reitum saman árið 1969 og þau Agnetha og Björn tveimur árum síðar.

Hermenn á Kýpur fyrstu tónleikagestirnir

Upphaf þess sem síðar varð ABBA er rakið til þess að í apríl 1970 fóru fjór­menn­ing­arnir saman í frí til Kýpur. Þeir Benny og Björn unnu þá að gerð plötu sem kom út í sept­em­ber það ár. Kvöld eitt voru þau Agnetha, Anni-Fryd, Benny og Björn á strönd­inni og fóru að syngja sér til skemmt­unar. Hópur her­manna, á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, voru á strönd­inni þetta kvöld og runnu á hljóðið. Þessi skemmtisöngur Svíanna breytt­ist í tón­leika, fyrstu tón­leika þeirra fjög­urra saman.

Umboðsmaðurinn

Stundum er haft á orði að það sé ekki nóg að kunna að spila og syngja ef ætl­unin sé að afla sér frægðar. Til þess þurfi dug­legan umboðs­mann. Stig Anderson, ætíð kall­aður Stikkan Anderson, var á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar umboðs­maður nokk­urra sænskra tón­list­ar­manna, þar á meðal þeirra Benny og Björn. Stig Anderson hafði það sem stundum er kallað „tón­list­ar­nef“ og sá snemma að þeir Benny og Björn „höfðu eitt­hvað“ eins og hann orð­aði það síðar.

[adspot]Árið 1971 sagði Stikkan við þá félaga að „dag nokkurn munuð þið semja lag sem verður heims­frægt“. „Við hlógum að honum“ sagði Björn síðar í við­tali. Fyrstu merkin um frægð utan sænskra land­steina birt­ust árið 1972 en þá komst lag þeirra Benny og Björns ,She´s my kind of girl, í tíunda sæti á japönskum vin­sælda­lista.

Stikkan Anderson ákvað ABBA nafnið

Eins og áður var nefnt hafði umboðs­mað­ur­inn Stikkan trölla­trú á að þeir Benny og Björn ættu eftir að ná langt. Árið 1972 voru þær Agnetha og Anni-Frid gengnar til liðs við eig­in­menn­ina og hljóm­sveitin var hægt og bít­andi að festa sig í sessi í sænsku tón­list­ar­lífi.

Á þessum tíma hét hljóm­sveitin Björn & Benny, Agnetha & Anni-Frid. Stikkan umboðs­manni þótti þetta sænska lang­loku­nafn (hans eigið orða­lag) ómögu­legt. Árið 1973 var hann far­inn að kalla hljóm­sveit­ina ABBA eftir upp­hafs­stöf­unum í nöfnum fjór­menn­ing­anna. Þetta nafn, ABBA, var reyndar til í Svíþjóð, því þekkt nið­ur­suðu­fyr­ir­tæki (sauð niður fisk) bar þetta sama nafn. Agnetha sagði síðar frá því í við­tali að for­svars­menn nið­ur­suðu­fyr­ir­tæk­is­ins hefðu ekki haft neitt á móti því að hljóm­sveitin not­aði ABBA nafnið „svo lengi sem þið verðið okkur ekki til skammar“ sagði for­stjór­inn. „Við lof­uðum því“ sagði Agnetha.

Waterloo, söngvakeppnin og sigurgangan

Þann 1. febr­úar 1974 fór hin árlega sænska söngvakeppni fram. Þar kom, sá og sigr­aði ABBA með lag­inu Waterloo. Þau höfðu, ásamt Stikkan, ákveðið að syngja á ensku, sú ákvörðun var liður í plani Stikkan um að koma hljóm­sveit­inni á kortið.

Tveimur mán­uðum síðar, 6. apríl, fór Eurovi­son söngvakeppnin fram, í Brighton á Englandi. Þar sló ABBA, fjór­menn­ing­arnir í glans­göll­unum, algjör­lega í gegn með stuð­lag­inu Waterloo.

Með sigrinum í söngvakeppn­inni hófst sig­ur­ganga ABBA. Í stuttum pistli er engin leið að þræða stíga þeirrar frægð­ar­göngu en í stuttu máli má segja að frá 1974 og til 1982, þegar sveitin tók langt hlé, hafi ABBA haldið vel á spil­unum og er í hópi vin­sæl­ustu hljóm­sveita allra tíma. Sveitin gaf út átta plötur, teknar upp í hljóð­veri, á þessum árum, og síðar, komu einnig út plötur teknar upp á tón­leikum. Samtals hafa selst meira en 400 millj­ónir platna með ABBA og dag­lega selj­ast um það bil 3 þús­und plötur með sveit­inni. Einungis Bítl­arnir hafa selt fleiri plötur en ABBA. Þess má geta að safn­platan ABBA Gold sem kom út árið 1992 var í 19 ár á breskum met­sölu­lista og hefur selst í tæpum 6 millj­ónum ein­taka í Bret­landi.

Mamma Mia

Þótt ABBA hafi sem slík hætt árið 1982 (hætti þó aldrei form­lega) héldu þeir Benny og Björn sam­starfi sínu áfram og þær Agnetha og Anni-Frid störf­uðu áfram að tón­list, hvor í sínu lagi. Rétt er að nefna að hjóna­bönd fjór­menn­ing­anna heyrðu þá sög­unni til.

Árið 1999 var frum­sýndur í London söng­leik­ur­inn Mamma Mia, byggður á tón­list ABBA. Mamma Mia sló í gegn og söng­leik­ur­inn hefur verið sýndur víða um heim, við miklar vin­sældir. Árið 2008 var gerð kvik­mynd með sama nafni, hún hefur notið mik­illa vin­sælda og hún ásamt söng­leiknum varð til að við­halda nafni og tón­list ABBA.

Endalaust tal um endurkomu

Allar götur frá því að ABBA fór í langa fríið árið 1982 hafa þau Agnetha, Anni-Frid, Benny og Björn ítrekað verið spurð hvort hljóm­sveitin hyggi ekki á end­ur­komu. Þau hafa aldrei þver­tekið fyrir það en í við­tali árið 2013 sagði Agnetha að ABBA kæmi ekki saman aftur „við erum orðin of gömul og höfum farið hvert sína leið. Það fer vel á með okkur þegar við hitt­umst en ABBA aftur, nei“.

Aldrei að segja aldrei

Þrátt fyrir áður­nefnda yfir­lýs­ingu Agnetha kom þó annað á dag­inn. 1. júní 2016 mættu fjór­menn­ing­arnir í ABBA í einka­sam­kvæmi í Stokk­hólmi. Þær Agnetha og Anni-Frid stigu þar á svið og eftir að þær höfðu sungið nokkur lög stóð­ust þeir Benny og Björn ekki mátið og skyndi­lega var ABBA sveitin í full swing, eins og sænsku blöðin lýstu því.

Síðar þetta sama ár var til­kynnt að fjór­menn­ing­arnir í ABBA hefðu ákveðið að vinna í sam­ein­ingu að „sér­stöku verk­efni“ eins og kom­ist var að orði, verk­efnið væri ekki ný plata.

Í apríl 2018 sendu fjór­menn­ing­arnir í ABBA frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að þau hefðu hljóð­ritað tvö ný lög. Ýmsar ástæður urðu til þess að útgáfa þeirra frestað­ist.

Í sept­em­ber árið 2020 greindi Björn Ulvaeus frá því að árið 2021 kæmi ný tón­list frá ABBA sveit­inni.

1. nóvember, Voyage og tónleikar

Þann 1. sept­em­ber sl. var til­kynnt að 5. nóv­em­ber kæmi ný plata frá ABBA, fyrsta hljóð­vers­platan í 40 ár. Tón­list­ar­spek­ingar veltu fyrir sér við hverju mætti búast: yrði þetta gamla góða ABBA, eða eitt­hvað allt annað?

Þessi til­kynn­ing um nýju plöt­una vakti mikla athygli og fékk mikla umfjöllun í fjöl­miðlum víða um heim. Hlustun á ABBA á Spotify jókst um 230 pró­sent Og svo var bara að bíða eftir 5. nóv­em­ber!

Samtímis því að útgáfu­dagur nýju plöt­unnar var til­kynntur var greint frá því að árið 2022 yrðu haldnir tón­leikar, þar sem ABBA myndi birt­ast gegnum fjar­búnað en á svið­inu yrðu hverju sinni 10 hljóð­færa­leik­arar. Fyrstu þrjá dag­ana eftir að miða­salan hófst seld­ust 250 þús­und miðar í Bret­landi.

Hvernig er svo nýja platan?

Margir fjöl­miðlar víða um lönd hafa fjallað um nýju ABBA plöt­una, sem kom út 5. nóv­em­ber eins og til­kynnt hafði verið. Dómarnir eru nokkuð mis­jafnir, sumir gagn­rýnendur fagna því að ABBA sé ennþá gamla góða ABBA en segja að fæst lag­anna séu jafn miklir „smellir“ og gömlu lögin. Tón­list­ar­tíma­ritið Rolling Stone hrósar plöt­unni, gefur henni fjórar stjörnur af fimm. „Við höfum beðið lengi en platan er þess virði.“ Gagn­rýnendur dag­blaðs­ins Guardian og tíma­rits­ins New Musical Express eru ekki yfir sig hrifnir, segja að lögin séu vissu­lega í ABBA stílnum en nái ekki sömu hæð og þau gömlu.

Þegar þessar línur eru settar á blað eru ein­ungis tveir dagar síðan Voyage kom út og þess vegna allt of snemmt að segja til um hverjar við­tökur almenn­ings verða. Einu er þó hægt að slá föstu: ABBA er ekki dauð úr öllum æðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár