Ísmaðurinn Ötzi var dökkur á hörund og sköllóttur, ekki loðinn og hvítur!

Ötzi eða Ötzi?
Ötzi eða Ötzi? Til vinstri er mynd sem gerð var af Ötzi eftir hinar mis­heppn­uðu DNA-rann­sóknir 2012. Til hægri er mynd sem AI-for­rit gerði eftir þeim lýs­ingum sem nú hafa birst af Ötzi eftir að í ljóst kom að hann er ætt­aður frá Mið­aust­ur­löndum en styðj­ast raunar ekki við lag höf­uð­kúp­unnar.

Í sept­em­ber 1991 fundu þýsk hjón lík í rúm­lega 3.200 metra hæð í skrið­jökli einum í Ötzal-fjöllum á landa­mærum Aust­ur­ríkis og Ítalíu. Greini­legt var að líkið hafði verið fast í jökl­inum en komið í ljós að hálfu þegar jök­ull­inn hóf að hopa nokkru áður. Yfirvöld sóttu líkið, sem reynd­ist af karl­manni, og hófust handa um að rann­saka hvað hefði komið fyrir.

Svona kom Ötzi fyrir sjónir 1991.

Í fyrstu var talið víst að þarna hefði verið á ferð fjall­göngu­maður sem hefði orðið úti fyrir ein­hverjum árum eða jafn­vel ára­tugum, en það reynd­ist fjarri öllum sanni.

Karlinn reynd­ist nefni­lega hafa dáið fyrir meira en 5.200 árum þarna á jökl­inum og síðan hul­ist snjó rétt eftir and­látið og líkið af þeim sökum varð­veist ein­stak­lega vel allan þennan tíma.

Vís­inda­menn komust nú í feitt og hafa æ síðan verið að rann­saka Ötzi hátt og …

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Þetta er flott hjá þér Illugi.
    Fjórar góðar á tveimur dögum.
    Persónulegt met ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár