Norðurlönd leggja litla sem enga áherslu á að fjarlægja drauganet úr hafinu

Norð­ur­löndin hafa ófull­nægj­andi yfir­sýn yfir það hve mikið og hvar veið­ar­færi tap­ast. Áætlað er að um það bil 640.000 tonn veið­ar­færa tap­ist árlega.

Norðurlöndin lítið sem ekkert í það verkefni að fjarlægja veiðarfæri esm hafa týnst.
Norð­ur­löndin lítið sem ekk­ert í það verk­efni að fjar­lægja veið­ar­færi esm hafa týnst. Mynd: Svanhildur Egilsdóttir

Á hverju ári bæt­ast við í heims­höfin um 8 millj­ónir tonna af plasti. Einnig er áætlað að um það bil 640.000 tonn veið­ar­færa tap­ist árlega. Engar tölu­legar upp­lýs­ingar liggja fyrir um það hve mikið tap­ast af veið­ar­færum, verður eftir á hafs­botni eða er fargað í sjó­inn á Norð­ur­löndum. Áherslan á bæði atvinnu- og tóm­stunda­fisk­veiðar er breyti­leg frá einu landi til ann­ars en það er full ástæða til að ætla að mönnum sé vandi á höndum hvað þetta varðar á Norð­ur­löndum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nor­ræna sam­starfs­verk­efn­is­ins Clean Nordic Oceans. Verk­efn­inu er ætlað að miðla þekk­ingu og reynslu á aðferðum og aðgerðum til að draga úr hættu á drauga­veiðum og mengun hafs­ins vegna tap­aðra veið­ar­færa.

Veið­ar­færi og leifar af veið­ar­færum sem týn­ast í hafi hafa slæm áhrif á líf­ríkið og geta stuðlað að bæði þján­ingum og „sið­fræði­lega röngum dauða með veiðum drauga­neta,“ segir í skýrsl­unni.

Norð­ur­lönd hafa aukið áherslur sínar á meng­un­ar­varnir í hafi en það er hins vegar „ekki hægt að halda því fram að jafn mikil áhersla sé á veið­ar­færi sem ástæðu meng­unar,“ segir í inn­gangi skýrsl­unnar. „Frávik á Norð­ur­löndum hvað þetta varðar sýn­ast meiri en raun­veru­legar sveiflur í mik­il­vægi veið­anna eru. Töpuð veið­ar­færi eru sam­svar­andi og aðrir hlutir úr plasti í haf­inu og geta stefnt lífi í sjó í hættu. For­gangs­raða verður aðgerðum í sam­ræmi við það.“

Ófullnægjandi yfirsýn

Ein helsta nið­ur­staða skýrsl­unnar er sú að Norð­ur­löndin hafa ófull­nægj­andi yfir­sýn yfir það hve mikið og hvar veið­ar­færi tap­ast. Jafnvel þótt fyrir hendi sé reglu­verk með kröfum um skýrslu­gerð ráða fá land­anna yfir virkum kerfum til skýrslu­gerðar um töpuð veið­ar­færi við atvinnu- og tóm­stunda­veiðar. Þetta kemur greini­lega fram í tölum um týnd veið­ar­færi sem, miðað við heild­ar­afla við­kom­andi lands og fyr­ir­komu­lag fisk­veiða, eru ýmist mjög lágar eða hrein­lega ekki til staðar.

Þá leggja Norð­ur­löndin lítið sem ekk­ert í það verk­efni að fjar­lægja týnd veið­ar­færi. „Þetta er bæði sið­ferði­lega rangt og óheppi­legt, í ljósi þeirrar þekk­ingar sem fyrir liggur um veiðar í drauga­net og hve lengi þau eru að brotna niður í nátt­úr­unni,“ segir í skýrsl­unni. Aðeins eitt land­anna fer í hreins­un­ar­að­gerðir árlega.

Það er umtals­vert meiri hætta á því að veið­ar­færi sem lögð eru tap­ist (t.d. lag­net og ýmsar gerðir fiski­gildra) en þau sem dregin eru (t.d. troll, nót og snur­voð). Hins vegar leggja skýrslu­höf­undar mikla áherslu á það að jafn­vel þótt mestar líkur séu á að veið­ar­færi sem lögð eru tap­ist eru hlutir úr veið­ar­færum sem dregin eru miklu meira áber­andi í strandrusli frá fisk­veiðum.

Lítil áhersla á vitundarvakningu

Svo virð­ist sem lítil áhersla sé á það að auka vit­und fyrir vand­anum á Norð­ur­löndum í heild sinni. Það má að öllum lík­indum rekja það til blöndu með­vit­aðra og ómeð­vit­aðra aðgerða og jafn­vel við­horfum að smá­stykki úr veið­ar­færum lenda í haf­inu. „Þetta og veiðar í drauga­net getur í raun leitt til særðra og í versta falli dauða dýra í hafi,“ segir í skýrsl­unni „Þessu er lít­ill gaumur gef­inn og lítið um það fjallað, hvorki hvað varðar atvinnu- né tóm­stunda­veiðar.“

Mikill munur er á því hvernig nor­rænu ríkin skipu­leggja mót­töku á veið­ar­færum sem fund­ist hafa eða skal fargað. Ríki með fáar en stórar mið­lægar fiski­hafnir hafa komið upp góðum lausnum um mót­töku. Ríki með breið­ara umfang og fjölda hafna hafa ekki komið upp full­nægj­andi lausnum sem duga, einkum hvað varðar stað­bundn­ari hluta flot­ans.

Í skýrsl­unni er bent á að hægt er að end­ur­nýta veið­ar­færi sem finn­ast og hluti úr veið­ar­færum sem eru orðin úrelt. En það er almennt séð kostn­að­ar­samt að end­ur­vinna veið­ar­færi því það þarf að leysa þau í sundur og gera klár, auk þess sem sumar vörur er ekki hægt að end­ur­vinna.

Aðgerðir sem lagðar eru til

Nauð­syn­legt er að auka vit­neskju á Norð­ur­löndum öllum um afleið­ingar veið­ar­færa sem tap­ast hafa eða verið skilin eftir. Þetta á einkum við um skort á starfs­hefðum sem leiðir til þess að smærri hlutir úr veið­ar­færum ber­ast í hafið.

Almenn þörf fyrir að fara yfir það að hvaða marki reglu­setn­ing í hverju landi fyrir sig skilar til­ætl­uðum árangri hvað þetta varðar. Þörf getur verið fyrir nýjar aðgerðir, svo sem að hafa flótta­leiðir úr fiski­gildrum og að banna fisk­veiðar við skips­flök.

Aðgerðir á hafi úti

Nauð­syn­legt er að gera stöðu veið­ar­fær­anna „sýni­legri“ til að draga úr hættu á að skorið sé á yfir­borðs­hluta og að veið­ar­færi rek­ist saman. Mælt er með lausnum til að til­kynna eða láta vita þannig að veið­ar­færin verði staf­rænt sýni­leg öðrum sjó­far­endum.

Séu öll veið­ar­færi merkt hvetur það til auk­innar ábyrgðar á því að til­kynna þegar þau tap­ast. Þannig aukast einnig líkur á því að hægt sé að skila þeim til eig­and­ans og þannig að end­ur­nýta þau.

Skýrslu­höf­undar segja greini­legt að auka þarf hæfni tóm­stunda­veiði­manna við notkun á lag­netum og fiski­gildrum. Aukin hæfni dregur úr hættu á því að veið­ar­færi tap­ist. Hvað atvinnu­fiski­menn varðar snýst aukin hæfni einkum um bættar starfs­hefðir og við­horf gagn­vart efn­is­leifum úr veið­ar­færum.

„Það þarf aug­ljós­lega að gera kröfu um til­kynn­ingar um stað­setn­ingu týndra veið­ar­færa með ein­földu og sér­hönn­uðu verk­færi fyrir fiski­menn,“ segir í aðgerða­kafla skýrsl­unnar. „Ekki verður betur séð en að þetta sé hag­kvæm leið til að afla nauð­syn­legra upp­lýs­inga og þekk­ingar.“

Veið­ar­færi á hafs­botni geta stefnt lífi í sjó í hættu og eru meng­andi í haf­inu með löngum nið­ur­brots­tíma. Mælt er með því að fjar­lægja þau af hafs­botni. Það eru til hag­nýtar aðferðir til hreins­unar en það þarf að aðlaga þær að aðstæðum í hverju landi fyrir sig ásamt inn­leiðslu kerfa um til­kynn­ingar um stað­setn­ingu týndra veið­ar­færa.

Aðgerðir í landi

Mælt er með því að skipu­leggja lausnir sem gera mönnum kleift að skila týndum veið­ar­færum sem hafa fund­ist og veið­ar­færum til förg­unar á fiski­höfnum. Hvetja þarf til lausna sem stuðla að end­ur­notkun og end­ur­nýt­ingu þannig að brennsla og sorp­eyð­ing komi síð­ast til álita.

Mikil þörf er fyrir aukna áherslu á efn­is­val í veið­ar­færum. Það er hægt að taka fullt til­lit til skil­virkni við veiðar með því að móta lausnir sem líka geta stuðlað að minna magni plasts í veið­ar­færum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár