Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir það „alveg galið“ að halda því fram að lausnin við að koma 70 þúsund manns til viðbótar fyrir á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum sé að byggja ný hverfi í útjaðri þess. Hann segir þá stefnu sem Eyþór Arnalds, nýkjörinn leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík, boði í skipulags- og samgöngumálum, sem felst m.a. í andstöðu við gerð Borgarlínu, vera ein sú „alvarlegasta árás á umferðarmál og lífsgæði fólksins í Grafarvogi, Breiðholti, Árbæ, Grafarholti, Úlfarsárdal en líka Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ sem ég man eftir.“ Þetta sagði Dagur í viðtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun.
[links]Eyþór Arnalds sagði í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook-síðu sinni 9. janúar, þegar hann tilkynnti um framboð í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins, að Reykjavík væri í miklum vanda í samgöngumálum. „Dýrar lausnir eins og Borgarlína munu auka á vandann með enn meiri þrengslum í gatnakerfinu. Reykjavík á að vera í fararbroddi í nútímalegum samgöngum en festast ekki í dýrum og þunglamalegum lausnum. Þrengingarnar hafa nú þegar búið til kransæðastíflu í gatnakerfi borgarinnar.“ Eyþór sagði enn fremur í þeirri yfirlýsingu að framboð á húsnæði í Reykjavík væri takmarkað vegna þess að verðið á því væri hátt. „Þétting byggðar á einstökum reitum hefur í raun skilað sér í hærra verði og dreifðari byggð á höfuðborgarsvæðinu. Raunfjölgun íbúða er lítil sem engin þegar tekið er tilliti til útleigu til ferðamanna.“
Alvarleg árás á efri byggðirnar
Dagur var spurður út í stefnu Eyþórs í Morgunútvarpinu í morgun. Þar sagði hann að borgarstjórn Reykjavíkur, sveitarstjórnir í nágrannasveitarfélögunum og Vegagerðin hafi verið að nálgast Borgarlínu í nokkur ár út frá umferðinni eins og hún sé í dag og þeirri sameiginlegu áskorun sem öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standi frammi fyrir, að koma 70 þúsund nýjum íbúum fyrir til ársins 2040. Það séu álíka margir og búi í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ í dag.
[adspot]„Við þurfum að svara því bæði hvar þetta fólk eigi að búa og hvernig það eigi að ferðast til og frá vinnu og um svæðið án þess að umferðin verði algjörlega stopp. Og að einhver gæði sem við erum að veita einum hópi bitni á öðrum hópi. Þess vegna finnst mér mikil skammsýni, og eiginlega alveg galið, hvort sem menn eru að koma nýir inn í pólitík eða eru búnir að vera lengi í pólitík, að segja að lausnin við að koma 70 þúsund manns fyrir á höfuðborgarsvæðinu sé að bæta við nýjum hverfum austan við eða sunnan við núverandi byggð. Vegna þess að hvað er Eyþór að gera með því? Hann er að bæta inn í morgunumferðina á mesta álagstímanum fólki sem er að reyna að komast á bílunum sínum, af því að hann vill ekki breyta ferðavenjunum, eftir sömu Miklubraut og eftir sömu Kringlumýrarbraut sem við vitum öll í dag að eru komnar að algjörum þolmörkum. Þessi stefna sem Eyþór hefur boðað á fyrstu metrunum[...]er einhver alvarlegasta árás á umferðarmál og lífsgæði fólksins í Grafarvogi, Breiðholti, Árbæ, Grafarholti, Úlfarsárdal en líka Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ sem ég man eftir. Það er enginn sveitarstjórnarmaður á höfuðborgarsvæðinu sem talar svona.“

150 milljarðar í mislæg gatnamót myndu samt auka tafir
Dagur sagði að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta allstaðar nema í Reykjavík, hafi verið að vinna með umferðarmódel sem sýndu hvað það þýðir ef 70 þúsund manna byggð sé bætt við í útjaðar höfuðborgarsvæðisins.
[adspot]„Það bitnar á þeim sem eru að reyna að komast í gegnum umferðina á hverjum einasta degi. Það er þess vegna sem sveitarstjórnarmenn sama hvar í flokki þeir standa hafa tekið höndum saman og horfa til lausna sem gefa þeim sem vilja ferðast með almenningssamgöngum kost á að gera það. Það dugir ekki að vera bara með núverandi strætókerfi. Við þurfum öflugri almenningssamgöngur. Stórtækari lausnir sem flytja meiri og stærri hópa fólks hratt og vel á milli staða. Það er engin tilviljun að þetta er meginlínan sem borgir í Evrópu og Ameríku eru að fylgja, vegna þess að hjörtun slá nú býsna líkt í borgarumhverfi alls staðar í heiminum.“
Að sögn Dags er verið að notast við ráð og umferðarútreikninga bestu sérfræðinga landsins og allir hlutaðeigandi hafi legið yfir málinu saman án þess að leggjast í pólitískar skotgrafir. „Í þessari skoðun hefur komið í ljós að jafnvel þótt við myndum setja 150 milljarða í mislæg gatnamót, ef við breytum ekki ferðavenjunum þá mun tafatíminn margfaldast á álagstímum. En við getum hins vegar haldið í horfinu með breyttum ferðavenjum og Borgarlínu jafnvel þótt fólki fjölgi svona mikið. Og allt er þetta í samhengi og allt þarf þetta að vera í jafnvægi. En það sem við fáum í leiðinni er miklu meiri lífsgæðaborg.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir