Borgaralaun eða ekki borgaralaun?

Yfirvöld á Spáni vilja lög­leiða grunn­fram­færslu til fólks þar í landi – og ekki ein­ungis vegna þess ástands sem nú ríkir heldur vilja þau festa hana var­an­lega í sessi. Sumir hafa kallað þetta borg­ara­laun en lík­leg­ast er það ofsögum sagt.

Um heim allan, og sér­stak­lega hér á Vest­ur­löndum, má sjá fram á gríð­ar­legt atvinnu­leysi nú þegar COVID-19 far­ald­ur­inn gengur yfir. Ríki heims­ins eru mis­vel í stakk búin til að takast á við ástandið en mörg hver hafa brugðið á það ráð að dæla háum pen­inga­upp­hæðum inn í hag­kerfið – annað hvort með beinum útgjalda­aukn­ingum eða í formi lána­fyr­ir­greiðslna.

Ein leið íslenskra stjórn­valda í aðgerða­pakka þeirra er svokölluð hluta­bóta­leið sem gengur út á það að auð­velda atvinnu­rek­endum að halda starfs­fólki og koma í veg fyrir upp­sagnir.

Atvinnu­rek­endur geta því nú lækkað starfs­hlut­fall allt niður í 25 pró­sent og getur starfs­fólkið fengið hlut­falls­legar atvinnu­leys­is­bætur á móti. Rúmlega 31 þús­und umsóknir bár­ust Vinnu­mála­stofnun frá ein­stak­lingum í minnk­uðu starfs­hlut­falli frá því að opnað var fyrir umsóknir í mars­mán­uði og má því segja að við­brögðin hafi ekki látið á sér standa varð­andi hluta­bóta­leið­ina. Áætlað er að mun fleiri munu nýta sér hana á næst­unni.

Ýmsar leiðir hafa verið ræddar og sumum fram­fylgt – bæði hér á Íslandi sem og erlendis – til þess að tryggja afkomu fólks í þessu alvar­lega ástandi. Sumar fela í sér ein­greiðslur til fólks, aðrar auknar atvinnu­leys­is­bætur og svo er það umræðan um borg­ara­launin.

[adspot]

Skref tekið í áttina að borgaralaunum

Spánn hefur tekið skref í átt að nokk­urs konar borg­ara­launum, að því er fram kemur á vef­miðli Business Insider. COVID-19 far­ald­ur­inn hefur leikið Spán­verja grátt en yfir 141.000 manns hafa fengið sjúk­dóm­inn og 14.000 lát­ist af hans völdum þar í landi.

Fjár­mála­ráð­herr­ann á Spáni, Nadia Calviño, sagði í við­tali við fjöl­miðla á sunnu­dag­inn var að stjórn­völd ætl­uðu að kynna greiðsl­urnar til sög­unnar til þess að hjálpa löndum sínum að fóta sig fjár­hags­lega á ný. Með því að lög­leiða grunn­fram­færslu væri verið að hjálpa fjöl­skyldum í neyð – en þó með til­liti til aðstæðna þeirra. Þess ber að geta að þessi leið Spán­verja myndi ekki falla undir skil­grein­ing­una á borg­ara­launum– enda er hún skil­yrðum háð sem borg­ara­laun eru ekki.

Ekki liggur fyrir nákvæm tíma­setn­ing hvenær þessi leið verður farin á Spáni en Calviño sagði að stjórn­völd von­uð­ust til að hún yrði til fram­búðar og því ekki ein­ungis bundin við far­ald­ur­inn. „Við ætlum að gera þetta eins fljótt og auðið er,“ sagði hún. „Svo þetta geti komið að gagni, ekki ein­ungis í þessu óvenju­lega ástandi heldur var­an­lega.“

[box]

Inneignarkort – ekki borgaralaun

Fleiri lönd hafa þó inn­leitt atvinnu­leys­is­bóta­kerfi sem sumir kalla borg­ara­laun. Í frétt RÚV frá því í mars í fyrra kom fram að Ítölum hefði í fyrsta sinn gef­ist kostur á að sækja um borg­ara­laun, en þau væru hluti aðgerða ítölsku stjórn­ar­innar gegn fátækt og hægum hag­vexti síð­ustu ár.

Í frétt­inni sagði að borg­ara­laun hefðu verið eitt af helstu kosn­inga­lof­orðum Fimm­stjörnu­hreyf­ing­ar­innar sem komst til valda eftir kosn­ingar á Ítalíu í fyrra. Eitt af helstu mark­miðum ítölsku stjórn­ar­innar hefði verið að sporna við fátækt.

Ekki er þó um eig­in­leg borg­ara­laun að ræða þar sem þau eru skil­yrðum háð. Atvinnu­lausum gafst þannig kostur á að sækja um þessi laun, að jafn­virði tæp­lega sjö­tíu þús­und íslenskra króna, en sam­kvæmt frétt­inni fékk hver og einn inn­eign­ar­kort þangað til atvinnu­leit bæri árangur. Áætlað var að borg­ara­launin myndu kosta ítalska ríkið sjö millj­arða evra árlega en vonir voru bundnar við að launin ykju bæði neyslu og hag­vöxt.

Saknar meiri róttækni

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, vakti máls á borg­ara­launum í Silfrinu um síð­ustu helgi. „Það sem ég sakna mest er meiri rót­tækni, en hennar var kannski ekki að vænta hjá frekar íhalds­samri stjórn.“

Hún sagð­ist jafn­framt telja að ástand dags­ins í dag kall­aði á „ákveðna sam­fé­lags­lega sjálfs­skoðun og að við end­ur­skoðum verð­mæta­mat okk­ar.“ Hún benti á að fólkið sem héldi sam­fé­lag­inu gang­andi í dag væru heil­brigð­is­starfs­fólk, starfs­fólk í vel­ferð­ar­þjón­ustu, kenn­ar­ar, sorp­hirðu­fólk, fólk í mat­væla­fram­leiðslu og fleiri hóp­ar.

„Við sjáum það bara að þeirra verð­mæti fyrir sam­fé­lag­ið, þessa grund­vall­ar­fólks, það end­ur­spegl­ast ekki í þeim launa­seðlum sem þau fá,“ sagði Þór­hildur Sunna, sem nefndi einnig að það hefði verið höf­uð­á­hersla Pírata að reyna að fá stjórn­völd til að sjá mik­il­vægi þess að eng­inn félli utan þess­ara aðgerða og sagð­ist telja að stjórn­völd gerðu illt verra með því að búa til „ölm­usu­kerfi“ sem væru flókin fyrir not­end­ur.

„Við höfum talað fyrir borg­ara­laun­um,“ sagði Þór­hildur Sunna og benti á að sú hug­mynd nyti auk­innar hylli þessa dag­ana, jafn­vel úr óvæntum áttum eins og frá leið­ar­a­höf­undum breska blaðs­ins Fin­ancial Times.

Opinber þjónusta sem fjárfesting

Vísaði Þór­hildur Sunna þar í leið­ara blaðs­ins frá 3. apríl síð­ast­liðnum. Í honum segir meðal ann­ars að leggja þurfi til rót­tækar umbætur — við­snún­ing á ráð­andi stefnu­mörkun fjög­urra síð­ast­lið­inna ára­tuga. „Rík­is­stjórnir munu þurfa að taka að sér virkara hlut­verk í hag­kerf­inu. Þær þurfa að fara að líta á opin­bera þjón­ustu sem fjár­fest­ingu frekar en sem drag­bít og leit­ast við að draga úr óör­yggi á vinnu­mark­aði.

End­ur­út­hlutun mun kom­ast aftur á dag­skrá og for­rétt­indi hinna öldr­uðu og auð­ugu verða ekki talin eins sjálf­sögð. Stefnu­mál sem voru talin ein­tóm sér­viska þar til fyrir skömmu, eins og borg­ara­laun og auð­legð­ar­skattar, munu þurfa að öðl­ast sinn sess í umræð­unni,“ segir í leið­ar­anum.

Fá­tækt á Íslandi að miklu leyti af­leiðing ís­lenskr­ar vel­ferðar­stefnu

Þing­menn Pírata lögðu fram þings­álykt­un­artil­lögu á Alþingi um borg­ara­laun í sam­ræmi við stefnu flokks­ins í jan­úar 2018 en til­lag­an hafði nokkr­um sinn­um verið lögð fram en ekki náð fram að ganga.

Þá vildu Píratar að fé­lags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra yrði falið í sam­starfi við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að skipa starfs­hóp sem kort­legði leiðir til að tryggja öll­um borg­ur­um lands­ins skil­yrðis­lausa grunn­fram­færslu með það að mark­miði að styrkja efna­hags­leg og fé­lags­leg rétt­indi fólks og stuðla að jöfn­um tæki­fær­um.

Í grein­ar­gerð með ­til­lög­unni kom fram að fá­tækt á Íslandi væri að miklu leyti af­leið­ing ís­lenskr­ar vel­ferðar­stefnu sem byggð­ist á skil­yrtri vel­ferð­ar­for­sjá í formi lág­marks­að­stoðar og áherslu á góð­gerðar­starf­semi og ölm­usu fyr­ir þá verst settu. Íslenska ríkið hefði í gegn­um árin sett lög og reglu­gerðir sem veittu fólki svo lág­ar bæt­ur að upp­hæð­irn­ar væru inn­an fá­tækt­ar­marka.

„Skil­yrðis­laus grunn­fram­færsla er hug­mynd að kerfi sem ætlað er að leysa al­manna­trygg­inga­kerfið af hólmi eða í það minnsta ein­falda það veru­lega, gera það rétt­lát­ara og sömu­leiðis upp­ræta ákveð­inn inn­byggðan ójöfnuð í sam­fé­lag­inu. Þetta er fram­kvæmt með því að greiða hverj­um og ein­um borg­ara fjár­hæð frá rík­inu óháð at­vinnu eða öðrum tekj­um,“ sagði í grein­ar­gerð­inni með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. Tillagan náði ekki fram að ganga í þetta skiptið.

Hvað ætla stjórnvöld í Bandaríkjunum að gera?

Don­ald Trump Banda­ríkj­afor­seti und­ir­rit­aði lög í lok mars síð­ast­lið­ins sem inn­leiða stærsta aðgerða­pakka í nú­tíma­sögu lands­ins. Ástandið vegna kór­ónu­veirunnar fer versn­andi í Banda­ríkj­unum en tæp­lega 13.000 manns hafa lát­ist úr COVID-19 og spá vís­inda­menn fyrir um and­lát á bil­inu 100 til 240 þús­unda þar í landi.

Aðgerða­pakk­inn hljóðar upp á tvær bill­jón­ir Banda­ríkja­dala, eða um 280 þús­und millj­arða ís­lenskra króna, og er honum ætlað að bregð­ast við efna­hags­áfall­inu sem far­ald­ur kór­ónu­veirunn­ar hef­ur og mun hafa í för með sér. Hann fel­ur meðal ann­ars í sér at­vinnu­leys­is­bæt­ur fyr­ir ein­stak­linga, fjár­veit­ing­ar til ríkja og risa­stór­an björg­un­ar­sjóð fyr­ir þau fyr­ir­tæki sem far­ald­ur­inn kem­ur illa við.

Í pakk­anum er einnig að finna ein­greiðslu til Banda­ríkja­manna sem hljóðar upp á allt að 1.200 doll­ara, sem jafn­gildir um 172 þús­und íslenskum krónum á mann. Þetta er þó skil­yrðum háð og fer það eftir tekjum fólks hversu háa upp­hæð það fær. Aug­ljós­lega eru þetta ekki borg­ara­laun enda um ein­greiðslu að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár