Þórhildur Sunna tilkynnir framboð og færir sig um kjördæmi

Einn mest áber­andi þing­maður Pírata ætlar að sækj­ast eftir því að leiða lista flokks­ins í Kraganum í næstu þing­kosn­ingum. Þrír af sex þing­mönnum Pírata verða ekki í fram­boði. Allir sem hætta leiddu lista í síð­ustu kosn­ingum.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, ætlar að vera í fram­boði í næstu þing­kosn­ing­unum. Hún greindi form­lega frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Þar sagð­ist hún, í ljósi þess að hún væri flutt aftur á æsku­slóðir sínar í Mos­fellsbæ, þætti henni rétt að færa sig um set og bjóða fram krafta sína til að leiða lista Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í sept­em­ber næst­kom­andi, þegar næst verður kosið til Alþingis. Þór­hildur Sunna leiddi lista Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum, haustið 2017. Jón Þór Ólafsson var odd­viti Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í þeim kosn­ingum, en hann til­kynnti nýverið að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Raunar liggur fyrir að mikil end­ur­nýjun verði í for­ystu­sveit Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar. Auk Jóns Þórs hafa þeir Smári McCarthy og Helgi Hrafn Gunn­ars­son til­kynnt að þeir sæk­ist ekki eftir áfram­hald­andi þing­setu. Björn Leví Gunn­ars­son og Halldóra Mogensen munu hins vegar gera það, en hvor­ugt þeirra var odd­viti á lista Pírata 2017 og bæði eru síð­ustu þing­menn sitt hvors Reykja­vík­ur­kjör­dæm­is­ins.

[adspot]Þór­hildur Sunna segir í stöðu­upp­færsl­unni að árin á þingi hafi verið við­burða­rík, gef­andi, erfið, lær­dóms­rík og hafi ein­kennst af þakk­læti og ástríðu fyrir því stór­brotna verk­efni sem þing­mennskan sé. „Upp úr stendur að hafa fengið að leiða laga- og mann­rétt­inda­nefnd Evr­ópu­ráðs­þings­ins, nefnd um end­ur­skoðun lög­ræð­islaga og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis ásamt því að hafa verið þing­flokks­for­maður Pírata, en allt hafa þetta verið mjög lær­dóms­rík ábyrgð­ar­hlut­verk sem mér hefur verið treyst fyrir á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.“

[links]Framundan séu kosn­ingar þar sem tæki­færi gef­ist til að velja ann­ars konar stjórn­mál en hefð hefur verið fyrir á Íslandi. „Stjórn­mál sem ein­kenn­ast af ábyrgð, heið­ar­leika og rétt­læti. Stjórn­mál sem byggja á mannúð, fram­sýni og hug­rekki. Við getum valið að stíga upp úr hjól­förum sér­hags­muna, aft­ur­halds og spill­ingar til þess að troða nýjar og betri slóðir til fram­tíðar. Við getum valið að lög­festa nýja stjórn­ar­skrá fyrir Ísland. Árin mín á þingi hafa líka kennt mér að til þess að svo megi verða, þurfum við Píratar að kom­ast í rík­is­stjórn. Þar skiptir sterk gras­rót og stuðn­ingur kjós­enda lyk­il­máli.“

Í þessu verk­efni vilji hún taka þátt í áfram. „Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að bæta sam­fé­lagið mitt og und­ir­búa það fyrir fram­tíð­ina. Það til­kynn­ist því hér með að ég sæk­ist eftir end­ur­kjöri og býð mig fram í próf­kjöri Pírata. Í ljósi þess að ég er flutt á mínar gömlu æsku­slóðir í Mos­fells­bænum þykir mér rétt að færa mig um set og bjóða fram krafta mína til þess að leiða lista Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.“

Fylgi Pírata mæld­ist 12,3 pró­sent í síð­ustu könnun MMR sem myndi gera flokk­inn að þriðja stærsta flokki lands­ins á eftir Sjálf­stæð­is­flokki og Sam­fylk­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár