Helmingur landsmanna sækir fréttir af vefsíðum fréttamiðla

Samkvæmt nýrri könnun MMR sækja ein­ungis 4 pró­sent Íslend­inga helst fréttir í dag­blöð en 9 pró­sent af sam­fé­lags­miðlum.

Helm­ingur lands­manna seg­ist helst sækja fréttir af vef­síðum frétta­miðla. Þetta kemur fram í könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 3. til 10. ágúst síð­ast­liðna og var heild­ar­fjöldi svar­enda 957 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Þá kváð­ust 18 pró­sent helst sækja fréttir í sjón­varp og 9 pró­sent í útvarp. Athygli vekur að ein­ungis 4 pró­sent kváð­ust helst sækja fréttir í dag­blöð en 9 pró­sent sækja helst fréttir af sam­fé­lags­miðlum.

Konur reynd­ust lík­legri en karlar til að sækja helst fréttir af sam­fé­lags­miðlum en hærra hlut­fall karla en kvenna kvaðst helst sækja fréttir sínar af vef­síðum, þ.e. frétta­miðlum eða öðrum.

Kyn­slóða­munur var á svörum eftir aldri, sam­kvæmt MMR. Af ungu fólki á aldr­inum 18 til 29 ára kváð­ust 62 pró­sent helst sækja fréttir sínar af vef­síðum frétta­miðla. Hlut­falli þeirra sem sækja helst fréttir á vef­síður frétta­miðla fór lækk­andi í takt við hækk­andi aldur en ein­ungis 15 pró­sent þeirra 68 ára og eldri kváð­ust helst sækja fréttir af vef­síðum frétta­miðla.

Sjónvarpsmiðlar, útvarp og dagblöð eiga á brattann að sækja

Svar­endur elsta ald­urs­hóps­ins kváð­ust aftur á móti helst sækja sér fréttir í sjón­varp (43 pró­sent), útvarp (26 pró­sent) eða dag­blöð (12 pró­sent). Fram kemur í könn­un­inni að ljóst sé að sjón­varps­miðlar, útvarp og dag­blöð eigi á bratt­ann að sækja hjá ungu fólki en ein­ungis 2 pró­sent þeirra á aldr­inum 18 til 29 ára kváð­ust helst sækja sér fréttir í sjón­varp, 1 pró­sent í útvarp og 1 pró­sent í dag­blöð en 6 pró­sent kváð­ust ekki fylgj­ast með fréttum.

Unga fólkið reynd­ist aftur á móti lík­legra en aðrir ald­urs­hópar til að sækja sér fréttir af sam­fé­lags­miðlum en 17 pró­sent þeirra 18 til 29 ára kváð­ust helst sækja sér fréttir í gegnum sam­fé­lags­miðla og 8 pró­sent þeirra 30 til 49 ára.

Háskólamenntaðir sækja helst fréttir af vefsíðum

Af þeim sem lokið höfðu háskóla­menntun kváð­ust 60 pró­sent helst sækja sér fréttir af vef­síðum frétta­miðla, sam­an­borið við 46 pró­sent þeirra sem höfðu hæst lokið fram­halds­skóla og 44 pró­sent þeirra með grunn­skóla­menntun. Þá kváð­ust 12 pró­sent sem lokið höfðu grunn­skóla­menntun sækja helst fréttir af sam­fé­lags­miðlum, sam­an­borið við 8 pró­sent þeirra með fram­halds­skóla- eða háskóla­menntun.

Þegar litið var til stjórn­mála­skoð­ana mátti sjá að 66 pró­sent stuðn­ings­fólk Pírata og 59 pró­sent stuðn­ings­fólks Við­reisnar sögð­ust helst sækja fréttir af vef­síðum frétta­miðla. Aðeins 35 pró­sent af stuðn­ings­fólki Flokks fólks­ins kvaðst helst sækja sér fréttir af vef­síðum frétta­miðla en 20 pró­sent þeirra kváð­ust hins vegar helst sækja fréttir í útvarp og 11 pró­sent í dag­blöð.

Af stuðn­ings­fólki Vinstri grænna kváð­ust 28 pró­sent helst sækja fréttir í sjón­varp, sam­an­borið við aðeins 9 pró­sent stuðn­ings­fólks Pírata. Þá var stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins lík­leg­ast til að sækja helst fréttir á sam­fé­lags­miðla en stuðn­ings­fólk Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar var lík­leg­ast til að segj­ast ekki fylgj­ast með fréttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár