„Viðreisn er bara Viðreisn“

Formaður Við­reisnar segir að það hvar­fli hvorki að sér né nokkrum öðrum sem starfar fyrir flokk­inn að hann sam­ein­ist öðrum stjórn­mála­flokki. „Ekki á minni vakt,“ segir Þor­gerður Katrín. Viðreisn sé komin til að vera.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir að það hvar­fli hvorki að sér né öðrum sem starfa fyrir flokk­inn að það ger­ist nokkurn tím­ann að Viðreisn gangi til liðs við ein­hvern annan stjórn­mála­flokk. „Ekki á minni vakt,“ skrifar Þor­gerður Katrín í aðsendri grein á Vísi í dag.

Þar ræðir hún svör sín við spurn­ingu Páls Magn­ús­sonar, frá­far­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þátta­stjórn­anda á Hring­braut, sem Kjarninn sagði frá í gær. Páll spurði Þorgerði í þætti sínum, sem birt­ist á mið­viku­dags­kvöld, hvort hún teldi lík­legt að Viðreisn myndi ein­hvern tím­ann sam­ein­ast Sjálf­stæð­is­flokknum.[links]

„Mér hefur greini­lega fund­ist spurn­ingin sér­kenni­leg, það sér­kenni­leg að ég taldi hana lúta að sam­starfi á milli flokk­anna. Og svar­aði þar um að mál­efni okkar um Evr­ópu­sam­vinnu, geng­is­stöð­ug­leika, öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi og kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi væru á odd­inum og það væri það sem gilti. En ég myndi auð­vitað aldrei úti­loka neitt, þó mér þætti ansi langt í land hjá Sjálf­stæð­is­flokknum að gang­ast undir þessi prinsipp okkar. Ef horft er á þátt­inn er aug­ljóst að mál­efna­á­grein­ingur okkar er djúpur. En úr þessu voru samt sem áður spunnar fréttir um að ég úti­lok­aði ekki sam­runa við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Fyr­ir­sjá­an­legt? Já. Ekki síst rétt fyrir kosn­ingar,“ skrifar Þor­gerður Katrín í grein sinni í dag.

[adspot]

Hún segir að nær­tækara hefði verið fyrir þátt­ar­stjórn­and­ann Pál að spyrja Bjarna Bene­dikts­son, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks, sem var einnig gestur þátt­ar­ins, að því hvort hann hygð­ist sam­ein­ast Mið­flokknum. Eða Vinstri grænum, eins og Sigmar Guð­munds­son fram­bjóð­andi Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi sagði reyndar í gær að væri nær lagi en að Viðreisn sam­ein­að­ist Sjálf­stæð­is­flokki.

„Þar liggur hið sam­eig­in­lega íhalds­mengi,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

For­mað­ur­inn segir að það virð­ist vera „upp­á­halds sam­kvæm­is­leikur margra að skil­greina Viðreisn“ sem ýmist „litla Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða litlu Sam­fylk­ing­una.“

„En Viðreisn er bara Viðreisn. Punktur.“

Um 30 prósent kjósenda Viðreisnar árið 2016 komu frá Sjálfstæðisflokki

Í grein sinni á Vísi vísar Þor­gerður Katrín til orða Ólafs Þ. Harð­ars­sonar, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði, sem gerði það að umtals­efni á Facebook í gær, í hóp sem heitir Algjör­lega óáhuga­verðar stjórn­mála­upp­lýs­ingar, að það væri „mikil ein­földun“ að tala um að Viðreisn væri klofn­ings­flokkur úr Sjálf­stæð­is­flokki.

„Þegar Viðreisn bauð fyrst fram 2016 komu rúm 30% kjós­enda flokks­ins frá Sjálf­stæð­is­flokki en tæp 30% frá Sam­fylk­ingu - og afgang­ur­inn frá öðrum flokkum (auk nýrra kjós­enda). Íslenska kosn­inga­rann­sóknin sýnir að bæði 2016 og 2017 töldu íslenskir kjós­endur að Viðreisn væri mun nær miðj­unni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á hægri-vinstri kvarða. Til sam­an­burðar má nefna að Borg­ara­flokkur Alberts Guð­munds­sonar 1987 var rétt­nefndur klofn­ings­flokkur úr Sjálf­stæð­is­flokki. Þá komu um 70% kjós­enda Borg­ara­flokks frá Sjálf­stæð­is­flokki. Kjós­endur settu Borg­ara­flokk líka miklu nær Sjálf­stæð­is­flokki á hægri-vinstri kvarða 1987 en þeir setja Viðreisn nú,“ skrif­aði Ólafur, sem fór einnig yfir að við­horf kjós­enda Við­reisnar væru líka mjög frá­brugðin við­horfum kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Við­reisn­ar­kjós­endur voru miklu meiri opin­gátt­ar­menn í alþjóða­málum en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks. Þeir voru miklu síður hlynntir lítt heftum mark­aði en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks. Ágrein­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar er ekki bara um Evr­ópu­sam­bandið,“ skrif­aði Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár