Er hægt að banna félagasamtök?

Danski dóms­mála­ráð­herr­ann hyggst höfða mál gegn glæpa­sam­tök­unum Loyal to Familia, LTF, í því skyni að banna starf­semi þeirra með lögum. LTF hafa á und­an­förnum árum átt í stríði við önnur glæpa­sam­tök í Kaup­manna­höfn, þar sem fjöl­margir hafa særst.

Loyal to Familia
Loyal to Familia Mynd: www.news.dk

Samtökin Loyal to Familia, LTF, urðu til haustið 2012. Stofn­end­urnir voru flestir inn­flytj­endur eða af erlendu bergi brotnir, fyrr­ver­andi félagar í sam­tökum kenndum við Blaagaards Plads á Norð­ur­brú en einnig frá nokkrum hverfum í norð­ur­hluta Kaup­manna­hafnar og nágrenni. LTF hafa, að mati lög­regl­unnar, allt frá stofnun ætlað sér stóra hluti í und­ir­heimum Kaup­manna­hafnar. Þar voru hins­vegar fyrir nokkur önnur sam­tök, þar á meðal Bandidos og Brothas, sem ekki tóku þessum nýju sam­tökum fagn­andi. Einkum þau síð­ar­nefndu.

Upp­lýs­ingar um LTF, og önnur sam­tök af svip­uðum toga liggja ekki á lausu, ekk­ert eig­in­legt félaga­tal fyr­ir­finnst enda „starf­semin“ þess eðlis að félag­arnir hafa ekki sér­legan áhuga á að upp­lýsa um hana. Lög­reglan telur að á síð­asta ári hafi félagar í LTF verið nokkuð á þriðja hund­rað, lang flestir í Kaup­manna­höfn og nágrenni en sam­tökin hafa einnig verið að reyna að ná fót­festu í Árósum.

[adspot]

Ætluðu sér yfirráð á Norðurbrú

Eftir að LTF varð til, haustið 2012, varð fljót­lega ljóst að sam­tökin hygð­ust ekki sitja á frið­ar­stóli. Ætluðu sér að verða ráð­andi á svæð­inu sem liggur að og í nágrenni inn­flytj­enda­hverf­is­ins Mjølnerpar­ken á Norð­ur­brú og hrekja önnur sam­tök á brott. Og það er einmitt á svæð­inu þar í kring sem hvað oft­ast hefur komið til átaka á síð­ustu árum. Samtökin Brothas hafa litið á Mjölnerpar­ken sem sitt yfir­ráða­svæði og voru ekki til­búin að gefa það eftir.

Og hvað þýða svo þessi yfir­ráð, og að helga sér svæði? Það hefur ákveðna tákn­ræna merk­ingu, sýnir hverjir það eru sem drottna. Þeir sem það gera sýna líka margs konar yfir­gang gagn­vart íbú­unum, þvinga eig­endur versl­ana og veit­inga­staða til að borga svo­kallað „vernd­ar­gjald“ sé það ekki gert er haft í hót­unum og iðu­lega ekki látið sitja við orðin tóm. Rúður brotnar trekk í trekk, kannski allt inn­an­dyra brotið og bramlað og þess eru mörg dæmi að kveikt hafi verið í að næt­ur­lagi. Þessu teng­ist svo verslun með eit­ur­lyf.

Shuiab Khan

Leiðtogi LTF er Shuaib Khan 32 ára, af paki­stönskum ættum. For­eldrar hans fluttu til Dan­merkur á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Faðirinn Wallait Khan er þekktur í sam­fé­lagi Pakistana í Kaup­manna­höfn og hefur enn­fremur setið í bæj­ar­ráði borg­ar­innar. Wallait Khan er, þrátt fyrir ára­tuga­bú­setu í Danmörku, pakist­anskur rík­is­borg­ari. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem danska lög­reglan býr yfir á fjöl­skyldan land í Pakistan og þrátt fyrir að Wallait Khan seg­ist ein­ungis hafa komið þangað sjö sinnum síðan hann flutti til Kaup­manna­hafnar veit danska lög­reglan betur. Það eru þessi tengsl við Pakistan sem hafa orðið til þess að danska lög­reglan hefur margoft reynt að fá syn­inum, Shuaib Khan vísað úr landi í Danmörku. Það hefur hins­vegar reynst árang­urs­laust, dóm­stólar telja Shuaib Khan ekki hafa þau tengsl við Pakistan að hægt sé að senda hann þangað. Shuaib Khan hefur hlotið marga dóma fyrir rán og ofbeld­is­verk og hefur mátt dúsa í fang­elsi árum saman. Lög­reglan telur að Shuaib Khan hafi stjórnað LTF sam­tök­unum úr fang­els­inu og sé enn leið­togi sam­tak­anna. Hann losn­aði úr fang­elsi fyrir nokkrum mán­uðum og var ákaft fagnað af félögum sínum þegar hann yfir­gaf fang­elsið og gekk út í frelsið.

Skotbardagar, morð og ofbeldi

Síðan í febr­úar 2015 hefur oftar en fjöru­tíu sinnum verið hleypt af skotum í átökum glæpa­gengja í Kaup­manna­höfn. Þrír hafa lát­ist í þessum átökum og tugir særst. Lög­reglan segir að LTF komi lang oft­ast við sögu í þessum átökum og séu nær alltaf annar „stríðs­að­il­inn“ eins og tals­maður lög­reglu komst að orði.

Vill uppræta LTF

Søren Pape Poulsen dóms­mála­ráð­herra hefur lengi talað fyrir því að gripið verði til aðgerða í því skyni að binda enda á skálmöld­ina. Fyrir nokkrum mán­uðum síðan hóf danski rík­is­lög­mað­ur­inn, að beiðni ráð­herr­ans, athugun á því hvort for­sendur væru fyrir því að banna LTF sam­tökin. Enda þótt í Danmörku ríki félaga­frelsi eru í lög­unum ákvæði sem gera kleift að banna starf­semi við sér­stakar kring­um­stæður. Til dæmis ef starf­semin grund­vall­ast á skipu­lagðri glæp­a­starf­semi og ofbeldi. Nið­ur­staða rík­is­lög­manns var birt fyrir nokkrum dögum og þar kom fram að hægt væri að beita þessu laga­á­kvæði gegn LTF. Slík ákvörðun þarf að fara fyrir dóm­stóla og sama dag og greint var frá nið­ur­stöðu rík­is­lög­manns til­kynnti dóms­mála­ráð­herr­ann að und­ir­bún­ingur dóms­máls hæf­ist þegar í stað.

Mótbárur

Lög­fræð­ingur Shuaib Khan og LTF er ósáttur við ákvörðun dóms­mála­ráð­herr­ans. Segir hana jaðra við ofsóknir, LTF séu ekki lengur í stríði við önnur sam­tök. Hugs­an­legt bann yrði ein­ungis sýnd­ar­mennska, þeir sem áður hafa klæðst hettu­peysum merktum LTF kaupi bara peysur með öðru merki. Sömu­leiðis sé spurn­ing hvort LTF geti kall­ast félags­sam­tök. Søren Pape Poulsen dóms­mála­ráð­herra gefur lítið fyrir þessi rök, segir að þótt LTF láti lítið fyrir sér fara í augna­blik­inu sé það vegna þess að lög­reglan sé með sér­stakan við­búnað. Vegna aðgerða lög­reglu sitji margir félagar í LTF í grjót­inu um þessar mundir og það geri sam­tök­unum erfitt fyrir. Auk þess ótt­ist félagar í LTF vænt­an­leg rétt­ar­höld og haldi sig þess vegna á mott­unni. Og varð­andi það að breyta um nafn á sam­tök­unum segir ráð­herr­ann að þau yrðu jafn ólög­leg og LTF og yrðu sam­stundis upp­rætt.

Fimmtán félagar í LTF afplána nú langa fang­els­is­dóma og tugir ann­arra hafa fengið væg­ari dóma, eða bíða ákæru vegna margs konar afbrota.

Ekki liggur fyrir hvenær boðuð rétt­ar­höld hefj­ast en það verður vænt­an­lega með haustinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár