Fráveitur og vegir í versta ástandinu – Mikil þörf á úrbótum

Samkvæmt nýrri skýrslu um inn­viði sam­fé­lags­ins og stöðu ein­stakra þátta fá frá­veitur og vega­gerð léleg­ustu ástands­ein­kunn­ina. Í henni kemur fram að mikil þörf sé á end­ur­bótum í lagna­kerfum og stór hluti vega­kerf­is­ins sé kom­inn á líf­tíma.

Fjárfesta þarf í vegakerfi landsins 110 til 130 milljörðum króna til að koma því upp í ágætiseinkunn.
Fjár­festa þarf í vega­kerfi lands­ins 110 til 130 millj­örðum króna til að koma því upp í ágæt­is­ein­kunn. Mynd: Birgir Þór

Frá­veitur, þjóð­vegir og sveit­ar­fé­laga­vegir fá léleg­ustu ástandsein­kun­ina í skýrslu sem unnin var af Sam­tökum iðn­að­ar­ins og Félags ráð­gjafa­verk­fræð­inga, þar sem fjallað er um inn­viði í land­inu og stöðu ein­stakra þátta. Mikilla útbóta sé þörf á báðum víg­stöðum og sam­tals er reiknað með að þörf sé á fjár­fest­ingum upp á 160 til 210 millj­arða króna til þess að gera stöðu þeirra góða.

Telja skýrslu­höf­undar að stórir hlutar þjóð­vega­kerf­is­ins upp­fylli ekki lág­mark­s­við­mið sem lúta að hrörnun slit­lags, hjólfara­dýpt, sprungu­myndun og holu­myndun, kantskemmdum, og fleiri þáttum. Ef fer fram sem horfir verður erfitt að upp­fylla ítr­ustu gæða­kröfur til fram­tíðar með til­liti til öryggis, aðgengis og umferð­ar­flæðis, segir í skýrsl­unni.

Þrátt fyrir að frá­veitur á Íslandi telj­ist með góðar fram­tíð­ar­horfur, sam­kvæmt skýrsl­unni, þ.e. að fyr­ir­hug­aðar séu fjár­fest­ingar sem gerir það að verkum að þær muni mæta kröfum og þörfum eftir tíu ár, þá fá þær lága ástands­ein­kunn. Til þess að koma þeim í ágæt­is­ein­kunn þá þarf að fjár­festa 50 til 80 millj­örðum króna. Íslend­ingar eigi langt í land með að inn­leiða skólp­hreinsun í sam­ræmi við skuld­bind­ingar sem ríkið hefur und­ir­geng­ist vegna aðildar að Evrópska efna­hags­svæð­inu.

Stór hluti vegakerfisins kominn á líftíma

Ástand vega­mann­virkja á for­ræði sveit­ar­fé­laga hefur ekki verið metið með kerf­is­bundnum hætti síð­ustu ár né farið fram ítar­leg og sam­kvæm grein­ing á ástand­inu, sam­kvæmt skýrsl­unni. Upp­lýs­ingar um ástand sveit­ar­fé­laga­vega séu því af skornum skammti en þó feng­ust upp­lýs­ingar á vinnslu­stigi frá stærri sveit­ar­fé­lögum. Þegar álykt­anir séu dregnar um ástand sveit­ar­fé­laga­vega á land­inu öllu er gengið út frá þeirri for­sendu að lík­legt sé að ástandið í öðrum sveit­ar­fé­lögum sé litlu betra. Ljóst er þó að stór hluti vega­kerf­is­ins er kom­inn á líf­tíma og ástandið jafn­vel ívíð verra en á þjóð­vegum. Mikil þörf hefur mynd­ast fyrir end­ur­nýjun gatna, styrk­ingar og end­ur­bætur í kerf­inu.

Fjárþörf vegna reglu­bund­ins við­halds bund­inna slitlaga er áætluð um 2,2 til 3,4 millj­arðar króna á ári. Þá bæt­ast við að með­al­tali um 100 kíló­metra langra vega á hverju ári sem þarfn­ast styrk­inga og end­ur­bóta og er áætluð fjár­þörf vegna slíks 3 millj­arðar króna. Miðað er við að árleg fjár­þörf vegna við­halds brúa sé 2 pró­sent af end­urstofn­virði eða um 1,8 millj­arðar króna. Ekki var unnt að meta við­halds­þörf jarð­ganga á þessu stigi.

Samtals er fjár­þörf vegna reglu­bund­ins við­halds því metin 7 til 8 millj­arðar króna á ári. Á árunum 2017 til 2027 má því áætla að heild­ar­kostn­aður vegna reglu­bund­ins við­halds verði 70 til 80 millj­arðar króna, með fyr­ir­vara um óvissu. Þessu til við­bótar er fjár­þörf vegna upp­safn­aðs við­halds um 70 millj­arðar króna eins og áður kom fram, alls 140 til 150 millj­arðar króna. Samkvæmt sam­göngu­á­ætlun 2015 til 2026 er áformað að verja um 86 millj­örðum króna til við­halds á tíma­bil­inu þannig að ein­göngu er verið að mæta litlum hluta af upp­safn­aðri þörf þegar fjár­munum hefur verið varið í reglu­bundið við­hald. Í ljósi þessa eru fram­tíð­ar­horfur metnar stöðugar.

Óvíst hvort nóg sé aðhafst í sveitarfélögunum

Í skýrsl­unni kemur fram að minna sé um gögn fyrir sveit­ar­fé­laga­vegi og erfitt að fjöl­yrða um fram­tíð­ar­horfur þeirra og hvort fram­tíð­ar­sam­þykktir komi til móts við þörf­ina. Þau gögn sem bár­ust benda þó til að verið sé að efna til átaks í gatna­kerf­inu á næstu árum, m.a. innan Reykja­víkur en þar er áætlað að verja meira en 8 millj­örðum króna til end­ur­nýj­unar og við­gerða fram til árs­ins 2021. Líklegt er því að horfur séu stöðugar í til­felli sveit­ar­fé­laga­vega einnig en mikil óvissa er um það mat.

Þá ber að athuga, segir í skýrsl­unni, að áherslur sveit­ar­fé­laga eru um margt frá­brugðnar áherslum rík­is­ins en áskor­anir þétt­býlis hafa leitt til þess að meiri áhersla hefur verið lögð á að auka hlut­deild almenn­ings­sam­gangna og virkra sam­gangna í ferða­máta­vali í stað þess að auka veg einka­bíls­ins ein­göngu.

Fjórðungur íbúa landsins búa við enga skólphreinsun

Íslend­ingar eiga langt í land með að inn­leiða skólp­hreinsun í sam­ræmi við skuld­bind­ingar sem ríkið hefur und­ir­geng­ist vegna aðildar að Evrópska efna­hags­svæð­inu. Að mati Umhverf­is­stofn­unar frá árinu 2013 eru kröfur um hreinsun skólps upp­fylltar að fullu, eða svo gott sem, á aðeins 5 af þeim 15 þétt­býl­is­svæðum sem skoðuð eru sér­stak­lega í sam­an­tekt stofn­un­ar­innar vegna umfangs skólplos­unar á þessum stöðum. Miðað við mat stofn­un­ar­innar á umfangi skólplos­unar þá losa þessar fimm frá­veitur, þar sem segja má að ástandið sé í lagi, um 60 pró­sent skólp­magns í land­inu. Fram kemur í sam­an­tekt­inni að mat stofn­un­ar­innar er að fjórð­ungur íbúa lands­ins búi við enga skólp­hreinsun. Þessar tölur mið­ast við árið 2010. Ein­hverjar fram­farir hafa verið frá þeim tíma, en þær eru ekki veru­legar í sam­an­burði við það sem upp á vantar. Ljóst er að þörf er á miklum úrbótum í þessum málum svo upp­fylla megi reglu­gerð­ar­kröfur.

Enn­fremur segir í skýrsl­unni að ófull­nægj­andi hreinsun skólps geti haft áhrif á umhverfið. Sem dæmi megi nefna að gera má ráð fyrir að mikið magn úrgangs á borð við plast ber­ist með frá­veitu­vatni út í umhverfið hér á landi vegna engrar eða lít­illar hreins­unar þess víða um land. Einnig sé ekki úti­lokað að mengun frá frá­veitum hafi áhrif á við­kvæm vatna­vist­kerfi á borð við Mývatn en vatnið hefur sýnt merki ofauðg­unar und­an­farin ár. Víða um land liggi ekki fyrir mat á ástandi lagna­kerfa byggt á kerf­is­bund­inni myndun og ástands­grein­ingu. Þrátt fyrir það megi gera ráð fyrir að til staðar sé upp­söfnuð þörf á við­haldi lagna, þar sem hlutar lagna­kerfa hafa náð ráð­gerðum end­ing­ar­tíma þeirra án þess að lögnum hafi verið skipt út eða þær fóðr­aðar.

Viðhaldi lagnakerfa ábótavant

Ónógt við­hald lagna­kerfa veldur því að afköst lagna­kerf­is­ins minnka, rekstr­ar­kostn­aður eykst, úr sér gengnar frá­veitu­lagnir geta hrunið auk þess sem gera má ráð fyrir að tjón verði tíð­ari. Algeng­ast er hér á landi að ofan­vatn í þétt­býli sé leitt í frá­veitur. Með ofan­vatni er átt við regn­vatn og snjó­bráð. Mik­il­vægt er að slík kerfi anni rennsli vegna mik­illar úrkomu eða leys­inga, til að ekki verði tjón vegna vatns­elgs. Dæmi eru um að afköst frá­veitna lág­lendra þétt­býl­is­svæða séu ófull­nægj­andi og vatns­tjón því óvenju­al­geng. Þar er þörf á úrbótum.

Í eldri byggðum er ofan­vatn í frá­veitum blandað skólpi. Ónóg afköst frá­veitna við þær aðstæður valda því að skólp flæðir óhreinsað úr frá­veit­unum um yfir­föll, þrátt fyrir að ekki verði tjón á eignum vegna flóða. Þar sem upp­lýs­ingar um það liggja fyrir hefur losun um yfir­föll í flestum til­fellum staðið yfir í minna en 5% hvers árs á tíma­bil­inu frá 2010 til 2016. Slík losun er innan marka reglu­gerðar um frá­veitur og skólp. Ekki liggja fyrir sam­an­teknar upp­lýs­ingar um ástand frá­veitna í dreif­býli í land­inu. Víðast er gerð krafa um rot­þrær og sit­ur­beð við slíkar aðstæður.

Gera má ráð fyrir að all­stór hluti einka­frá­veitna upp­fylli ekki kröfur um full­nægj­andi stærð og útfærslu rot­þróa og sit­ur­beða. Þar sem kröfur eru um ítar­legri hreinsun skólps í dreif­býli vegna við­kvæms við­taka eru ein­göngu örfá dæmi um að slíkum kröfum hafi verið mætt. Losun líf­ræns úrgangs í frá­veitur felur í sér mikla sóun, meðal ann­ars á verð­mætum nær­ing­ar­efnum og orku. Víðast er seyru úr skólp­hreinsi­virkjum fargað án nokk­urrar nýt­ingar. Þó dæmi séu um nýt­ingu seyru til land­græðslu er það magn nær­ingar - efna sem er end­ur­nýtt í slíkum verk­efnum smá­vægi­legt í sam­an­burði við heild­ar­magn nær­ing­ar­efna sem glat­ast í íslenskum frá­veitum. Slá má á að magn upp­leysts fos­fórs sem glat­ast í hafið umhverfis landið frá Íslend­ingum nemi að minnsta kosti um 200 tonnum á ári. Fram­leiðsla lífgass úr seyru er sömu­leiðis hverf­andi hér á landi.

Mikilvægt að endurnýja gamlar lagnir

Athygli vekur að skýrslu­höf­undar meta fram­tíð­ar­horfur góðar þrátt fyrir að mikil þörf sé á end­ur­bótum í lagna­kerf­inu. Í ský­sl­unni segir að gera megi ráð fyrir að lofslags­breyt­ingar stuðli að hækk­uðu sjáv­ar­borði og auk­inni úrkomu. Hækkun sjáv­ar­borðs hefur aug­ljós nei­kvæð áhrif á frá­veitur lág­lendra þétt­býl­is­svæða og kann að kalla á auknar fjár­fest­ingar til að við­halda afköstum þeirra. Aukin úrkoma hefur einnig áhrif. Gera má ráð fyrir að lagnir í nýrri hverfum þoli í nær öllum til­fellum vel aukið rennsli vegna úrkomu en ljóst er að þörf verður á auknum fjár­fest­ingum í ein­hverjum eldri byggðum.

Þær hreinsi­stöðvar sem þegar hafa verið byggðar til að upp­fylla hreinsi­kröfur reglu­gerða eru flestar til­tölu­lega nýjar og munu anna auknu rennsli í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Það má slá á að allar lagnir sem náð hafa 50 til 60 ára aldri án þess að þeim hafi verið skipt út eða þær fóðr­aðar séu svo gott sem ónýtar. Mikil upp­bygg­ing var hér á landi um miðja síð­ustu öld og því má gera ráð fyrir að stór hverfi í flestum þétt­býlis - stöðum lands­ins hafi náð þessum aldri eða geri það á allra næstu árum. Því er mikil þörf á end­ur­bótum á lagna­kerfum, ef þau eiga ekki að bresta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár