Lífeyrissjóðirnir lánuðu heimilum 40 milljarða króna óverðtryggt á sjö mánuðum

Ný óverð­tryggð útlán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sína á sjö mán­aða tíma­bili voru tvö­falt hærri en eina og hálfa árið þar á undan. Við­skipta­bank­arnir eru þó enn leið­andi á íbúða­lána­mark­aði og mark­aðs­hlut­deild þeirra yfir 70 pró­sent.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu 39,6 millj­arða króna í ný óverð­tryggð íbúða­lán, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, frá nóv­em­ber 2021 og út maí síð­ast­lið­inn. Til sam­an­burðar lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir sam­tals um 20 millj­arða króna í slík lán frá byrjun apríl 2020, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var að skella á af fullum krafti, og út sept­em­ber 2021, eða á eins og hálfs árs tíma­bili.

Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um útlán líf­eyr­is­sjóða.

Samhliða skar­pri stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands á und­an­förnum mán­uðum, þar sem vext­irnir hafa hækkað upp í 4,75 pró­sent, hafa helstu líf­eyr­is­sjóðir verið að hækka sína útlána­vexti. Þeir eru þó enn umtals­vert lægri en sam­bæri­legir óverð­tryggðir vextir sem bjóð­ast hjá bönkum. Lægstu vext­irnir bjóð­ast nú hjá Brú líf­eyr­is­sjóði, 5,2 pró­sent. Til sam­an­burðar eru lægstu vextir banka hjá Lands­bank­anum, 6,43 pró­sent.

Aukningin öll í óvertryggðum lánum

Við­­snún­­ingur hefur verið á öllum útlánum líf­eyr­is­­sjóð­anna til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­­ar­­kaupa frá því seint á síð­­asta ári. Frá jún­í­mán­uði árið 2020 og út októ­ber í fyrra, alls í 16 mán­uði, þá voru upp- eða umfram­greiðslur lána sjóð­anna meiri en ný útlán. Alls voru greidd upp lán fyrir 66,7 millj­­arða króna umfram ný lán, jafnt verð­tryggð og óverð­tryggð, á tíma­bil­inu. Frá byrjun nóv­­em­ber og út maí­­mánuð lán­uðu líf­eyr­is­­sjóð­irnir hins vegar 22,7 millj­­arða króna meira en upp- og umfram­greiðsl­­ur.

Þar skiptir senn­i­­lega mestu að Líf­eyr­is­­­­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­­­­sjóður lands­ins, ákvað í fyrra­haust að stofna nýjan lána­­­­flokk sjóðs­­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­­tryggð lán til íbúð­­­­ar­­­­kaupa með breyt­i­­­­legum vöxt­­­­um.

Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­­­­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­­­­kaup­endum síð­­­­ast­liðin ár.

Uppi­staðan í þess­ari útlána­aukn­ingu hefur því verið í óverð­tryggðum lánum. Á sama tíma og ný óverð­tryggð lán hafa námu 39,6 millj­örðum króna frá byrjun nóv­em­ber í fyrra og út maí í ár þá dróg­ust verð­tryggð lán líf­eyr­is­sjóða saman um 16,9 millj­arða króna.

Bankarnir stóraukið markaðshlutdeild sína

Á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð stórjuku bank­arnir mark­aðs­hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði.

Frá mars 2020 og fram út maí síð­­ast­lið­inn juk­ust hrein ný útlán Lands­­­bank­ans, Íslands­­­­­banka og Arion banka, með veði í íbúð, gríð­ar­lega. Mark­aðs­hlut­­­deild bank­anna í öllum úti­stand­andi lánum til íbúð­­­ar­­­kaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 pró­­­sent.

Samtals lán­uðu bank­arnir þrír 664 millj­arða króna með veði í íbúð­ar­hús­næði á tíma­bil­inu, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum. Í maí námu útlánin 17 millj­örðum króna.

Þessi miklu útlána­vöxtur mynd­aði grunn­inn að gríð­­ar­­legum hagn­aði bank­anna þriggja í fyrra, sem sam­tals var 81,2 millj­­arðar króna. Hann hafði líka mikil ruðn­­ings­á­hrif á hús­næð­is­verð sem hefur hækkað um tugi pró­­senta á skömmum tíma.

Greiðslubyrði rokið upp

Á meðan að á far­aldr­inum stóð þre­föld­uð­ust óverð­tryggð hús­næð­is­lán við­skipta­bank­anna, fóru úr 370 millj­örðum króna í 1.090 millj­arða króna.

Fyrir vikið hafa allir lands­menn­irnir sem tóku óverð­tryggðu lánin með breyti­legu vöxt­unum séð greiðslu­byrði sína stór­aukast.

Í nýlegri Hagsjá Lands­bank­ans er tekið dæmi af 40 millj­óna króna láni á lægstu óverð­tryggðu vöxt­um. Vaxta­byrði þeirra hefur hækkað um 98 þús­und krónur frá því í maí í fyrra. Lands­bank­inn býst við því að vextir haldi áfram að hækka og að vaxta­byrðin muni aukast um 25 þús­und krónur í við­bót á þessu ári. Þá hefur hún farið úr 110 þús­und krónum á mán­uði i 233 þús­und krónur á mán­uð­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár