Bóluefnið á leið til breskra sjúkrahúsa

Heims­byggðin mun fylgj­ast grannt með þegar alls­herjar bólu­setn­ing bresku þjóð­ar­innar hefst á þriðju­dag. Fyrstu skammt­arnir af bólu­efni gegn COVID-19 eru á leið til fimm­tíu breskra sjúkra­húsa.

Fyrstu skammtarnir af bóluefni Pfizer og BioNtech hafa verið framleiddir á rannsóknarstofu í Belgíu.
Fyrstu skammt­arnir af bólu­efni Pfizer og BioNtech hafa verið fram­leiddir á rann­sókn­ar­stofu í Belgíu. Mynd: EPA

Bóluefni banda­ríska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer og þýska líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins BioNTech var flutt í frysti­gámum til sjúkra­húsa víðs vegar um Bretland í dag. Tveir dagar eru þangað til að umfangs­mesta bólu­setn­ing Breta hefst. Heims­byggðin fylgist náið með því um er að ræða fyrstu almennu bólu­setn­ing­una gegn COVID-19 á heims­vísu.

Um 800 þús­und skammtar af bólu­efn­inu verða til taks þegar bólu­setn­ingin hefst á fimm­tíu heil­brigð­is­stofn­unum í Englandi, Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi á þriðju­dag. „Þrátt fyrir margar flækjur munu sjúkra­hús hefja fyrsta áfanga stærstu bólu­setn­ing­ar­her­ferðar í sögu lands­ins á þeim degi,“ hefur AP-frétta­stofan eftir Stephen Powis, for­stjóra ensku rík­is­sjúkra­hús­anna, NHS.

Bretland varð í síð­ustu viku fyrsta ríkið í heim­inum til að heim­ila bólu­setn­ingu með bólu­efni Pfizer-BioNtech. Prófanir á efn­inu þykja sýna að það veiti allt að 95 pró­sentum fólks vörn gegn því að sýkj­ast af kór­ónu­veirunni.

[adspot]

Stjórn­völd og heil­brigð­is­yf­ir­völd víða um heim munu fylgj­ast náið með gangi mála og reyna að læra af reynslu Breta, bæði því sem vel tekst og því sem aflaga mun fara.

Breska lyfja­stofn­unin er einnig að yfir­fara umsókn lyfja­fram­leið­end­anna Boderna og Astra Zeneca sem segj­ast líka til­búnir með sín bólu­efni.

Dauðs­föll af völdum COVID-19 eru komin yfir 61 þús­und í Bret­landi.

[links]Sjúk­lingar sem eru átt­ræðir eða eldri og þurfa að sækja sér þjón­ustu göngu­deilda verða meðal þeirra fyrstu sem fá bólu­efnið í Bret­landi. Einnig munu þeir sem eru að útskrif­ast af sjúkra­húsi verða í for­gangs­hópi.

Þá munu sjúkra­hús almennt byrja á því að bjóða fólki sem er eldra en átt­rætt að fá bólu­setn­ingu sem og starfs­fólki á öldr­un­ar­heim­ilum.

Tvo skammta af bólu­efni Pfizer þarf til að ná ónæmi og þrjár vikur þurfa að líða á milli spraut­anna.

Bresk stjórn­völd hafa tryggt sér með samn­ingum 40 millj­ónir skammta af bólu­efni Pfizer-BioNtech sem duga þá til að bólu­setja 20 millj­ónir manna. Í frétt AP kemur fram að aðeins sextán ára og eldri verði bólu­settir og því þarf að bólu­setja um 55 millj­ónir fólks í land­inu.

Frá Belgíu til Bretlands

Bólu­efnið er fram­leidd í Belgíu og var flutt þaðan til Bret­lands. Sér­fræð­ingar munu þurfa að rann­saka farm­inn þegar hann er kom­inn á leið­ar­enda til að ganga úr skugga um að bólu­efnið hafi ekki spillst en það þarf að geyma í yfir 70 stiga frosti.

Þegar kemur að því að nota efnið þarf fyrst að þýða það í nokkrar klukku­stundir áður en því er sprautað í fólk. Sér­stökum bólu­setn­ing­ar­stöðvum verður komið upp, m.a. í ráð­stefnu- og íþrótta­húsum til að anna eft­ir­spurn eftir bólu­efni þegar búið verður að fram­leiða meira magni af því og dreifa.

Þegar fram líða stundir munu heilsu­gæslu­stöðvar og stofur heim­il­is­lækna einnig fá bólu­efnið til að gefa skjól­stæð­ingum sínum. Þá munu apó­tek einnig geta bólu­sett fólk, rétt eins og þau bjóða upp á inflú­ensu­bólu­setn­ingar á hverju ári.

Vonast er til að bólu­setn­ing muni hefj­ast í Banda­ríkj­unum í þessum mán­uði. Rússar hafa þegar hafið bólu­setn­ingar með bólu­efni sínu Sputnik V. Það efni var aðeins prófað á fáum ein­stak­lingum, segir í frétt AP.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár