Iðnríkin hafa tryggt sér bróðurpartinn af bóluefninu

Hægt væri að bólu­setja alla Banda­ríkja­menn og Breta fjórum sinnum gegn COVID-19 miðað við það magn bólu­efnis sem þessi ríki hafa tryggt sér. Þau, líkt og fleiri iðn­ríki, hafa samið við fleiri en eitt lyfja­fyr­ir­tæki til að bak­tryggja sig.

Barn í Bangladess í sýnatöku vegna COVID-19.
Barn í Bangla­dess í sýna­töku vegna COVID-19. Mynd: EPA

Íslandi hefur verið tryggður aðgangur að bólu­efni Pfizer gegn COVID-19. Sömu sögu er að segja um öll lönd innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem og Bretland, Banda­ríkin og Kanada. Skammt­arnir skipta hund­ruðum millj­óna enda hefur sam­komu­lag náðst við fleiri lyfja­fyr­ir­tæki sem fram­ar­lega eru í þróun bólu­efna við sjúk­dómnum. Þessi ríki hafa tryggt sér svo marga skammta að þau geta fræði­lega séð bólu­sett hvern og einn íbúa mörgum sinnum. Banda­ríkin og Bretland gætu, ef þau fengju alla þá skammta sem samið hefur verið um, bólu­sett alla íbúa fjórum sinnum. Kanada fimm sinnum.

Samn­ingum við lyfja­fyr­ir­tækin sem tryggja okkur bólu­efni hefur fylgt léttir. Fyrr en síðar, jafn­vel þegar í þessum mán­uði, mun bólu­setn­ing hefj­ast. Það sér fyrir end­ann á far­aldr­inum.

Eða hvað?

[adspot]

Áskor­an­irnar við að bólu­setja alla heims­byggð­ina, 7,7 millj­arða manna, eru margar. Þær fel­ast í fram­leiðslu bólu­efn­is­ins, hver eigi að borga hana og hvernig eigi að dreifa því.

Þá er ein helsta áskor­unin sú að vinna traust fólks á bólu­efn­inu svo að margir láti bólu­setja sig þannig að hjarð­ó­næmi fáist. Fræða þarf almenn­ing um efnið, upp­lýsa alla um virkni þess og mögu­legar auka­verk­anir og þar fram eftir göt­unum.

Þau þrjú bólu­efni sem eru hvað næst því að kom­ast á markað þarf að geyma með mis­mun­andi hætti. Bóluefni Pfizer þarf að geyma í 70 stiga frosti, bólu­efni Moderna í um 20 stiga frosti og það sem AstraZeneca er að vinna að með Oxford-háskóla þarf einnig að geyma í kulda en þó ekki undir frost­marki. Séu efnin ekki geymd við þessar aðstæður virka þau ekki sem skyldi. Það gefur auga­leið að þetta eitt og sér, geymslu­að­ferðin, er ekki á allra færi. Í mörgum Afr­íku­löndum, svo dæmi sé tekið, hafa heil­brigð­is­stofn­anir ekki aðgang að tryggu raf­magni. Því er ekki hægt að treysta því að kæl­ing bólu­efn­anna tak­ist.

Unnið að lausnum

Lyfja­fram­leið­end­urnir og fyr­ir­tæki þeim tengd eru að reyna að finna lausnir til að hægt sé að flytja og geyma efnin án þess að til kæl­ingar á við­töku­stað þurfi að koma. Þannig er verið að fram­leiða kæli­kassa með þurrís en lítið má þá útaf bregða svo að efnið spillist ekki.

Þá þarf sér­hæft starfs­fólk á hverjum stað til að með­höndla bólu­efnið. Enn ein hindr­unin er svo sú vega­lengd sem margir jarð­ar­búar þurfa að fara til að kom­ast á næstu heilsu­gæslu. Hér í vest­rænum heimi er slíkt sjaldan fyr­ir­staða en í fjöl­mörgum löndum er næsta heilsu­gæsla í mik­illi fjar­lægð og það getur tekið fleiri klukku­tíma og jafn­vel daga að kom­ast þangað fót­gang­andi, á hjóli eða í báti. Þetta hefur svo aftur í för með sér enn eitt vanda­málið. Í fátækum löndum skiptir hver vinnu­dagur öllu máli. Þannig að ef fólk missir úr vinnu í einn eða fleiri daga vegna þess að það þarf að fara í bólu­setn­ingu um langan veg þýðir það að fjöl­skyldan á ekki fyrir mat þann dag­inn.

Djúp gjá misréttis

Auð­ug­ustu ríki heims hafa þegar tryggt sér bróð­ur­part­inn af fyrstu skömmtum bólu­efn­anna sem þykja lofa hvað bestu. Af þessu hafa hjálp­ar­sam­tök og stofn­anir, m.a. Oxfam, áhyggjur því sam­hliða þessu hefur mynd­ast djúp gjá mis­réttis milli iðn­ríkj­anna og fátæk­ari ríkja heims. Þó að vonir séu bundnar við alþjóð­legar skuld­bind­ingar um að tryggja afhend­ingu bólu­efnis til fátæk­ari landa, eru uppi efa­semdir um að það gangi eftir. Að minnsta kosti þykir ljóst að mörg þeirra verða ekki í for­gangi þegar kemur að bólu­setn­ingu gegn COVID-19.

Þrátt fyrir þessa alþjóða­samn­inga, sem eiga að tryggja jafnan aðgang að bólu­efn­inu, munu íbúar fátækra landa ekki fá spraut­una eft­ir­sóttu fyrr en árið 2023 og jafn­vel ekki fyrr en árið 2024, að því er fram kemur í spá vís­inda­manna við Duke-háskóla sem rýnt hafa í gögn um dreif­ingu bólu­efn­is­ins.

Peningavaldið

Ein skýr­ingin felst í því valdi sem rík­ari þjóðir hafa. Getan til að fram­leiða bólu­efnin verður tak­mörk­unum háð og vest­ræn ríki hafa frá því í októ­ber tryggt sér bróð­ur­part­inn af því bólu­efni sem hægt verður að fram­leiða í fyrstu. Í þessum hópi eru einnig Indland, sem hefur tryggt sér 1,6 millj­arða skammta og Brasilía sem hefur tryggt sér um 200 millj­ónir. Innan við 800 millj­ónir skammta hafa hins vegar verið eyrna­merktir fátæk­ustu ríkjum heims.

Krishna Uda­yaku­mar, sem leiddi rann­sókn Duke-háskóla, segir að bólu­efnin sem eru enn í þróun muni ekki öll virka og koma á markað. Því séu ákveðin lönd í krafti fjár­magns sem þau hafa yfir að ráða að reyna að tryggja sér samn­inga við marga lyfja­fram­leið­endur í stað þess að veðja aðeins á einn.

Kostir og gallar

Þessi var­úð­ar­ráð­stöfun hefur sína kosti. Hún þýðir að pen­ingar flæða til rann­sókna margra sem eru að reyna að þróa bólu­efni. Mun meiri pen­ingar en myndu ann­ars fást til slíkra rann­sókna.

En hún hefur einnig sína galla. Sá stærsti er sá að lík­lega mun þetta tefja dreif­ingu bólefnis meðal íbúa fátæk­ari ríkja. „Við gætum verið að horfa á tvö til fjögur ár þar til almenn­ingur í ríkjum þar sem með­al­tekjur eru lágar fær bólu­efni,“ segir Uda­yaku­mar.

Uda­yaku­mar og sam­starfs­menn hans komust að þess­ari nið­ur­stöðu með því að taka saman alla þá samn­inga sem gerðir hafa verið milli ákveð­inna ríkja og lyfja­fram­leið­end­anna. Nið­ur­staða vís­inda­mann­anna er helst sú að mikið mis­rétti gæti orðið í dreif­ingu bólu­efnis meðal jarð­ar­búa.

Mun COVAX virka?

Ýmislegt er þó verið að reyna að til hindra að þetta ger­ist. Þannig hafa mörg lönd, m.a. Ísland, skuld­bundið sig til að aðstoða fátæk­ari ríki til að fram­leiða og/eða dreifa bólu­efni. Sam­komu­lagið kall­ast COVAX og sam­kvæmt því er gert ráð fyrir að 2 millj­arðar skammta verði aðgengi­legir í fátækum ríkjum fyrir lok næsta árs. Þegar hafa 740 millj­ónir skammtar verðir tryggðir með þessum hætti.

Nokkur bólu­efni gegn COVID-19 lofa þegar góðu, innan við ári eftir að far­ald­ur­inn braust út í heim­inum. Til­raunir með fjögur þeirra fara að hluta fram í Suður-Afríku. Afr­íku­búar hafa í gegnum tíð­ina oft­sinnis orðið fyrir barð­inu á bíræfnum lyfja­fyr­ir­tækjum og því er víða í álf­unni til staðar van­traust gagn­vart þeim. Og þar er ekki aðeins verið að tala um skelfi­legar aðfarir nýlendu­ríkja í ýmsum til­raunum á fólki á nítj­ándu og tutt­ug­ustu öld. Árið 1996 gaf lyfj­aris­inn Pfizer 200 börnum í Nígeríu til­rauna­lyf án sam­þykkis for­eldra þeirra. Höfðað var mál gegn fyr­ir­tæk­inu en samið var um skaða­bætur utan dóm­stóla. Þegar far­aldur ebólu geis­aði í Vestur-Afríku árið 2014 voru blóð­sýni úr sjúk­lingum flutt með leynd og án leyfis til rann­sókn­ar­stofa í Bret­landi.

Efa­semdir gagn­vart aðstoð ann­arra ríkja er einnig fyrir hendi í Afríku. Þær eiga sér aug­ljósar skýr­ingar í for­tíð­inni en einnig í nútíð­inni. Rík­is­stjórn Donalds Trump vildi tryggja að Banda­ríkja­menn yrðu fyrst bólu­settir áður en að bólu­efni sem fram­leitt yrði þar í landi væri dreift til ann­arra. Þó að þetta kunni að breyt­ast undir stjórn Joe Bidens er þjóð­ern­is­hyggja sem þessi langt frá því ný af nál­inni. Það þarf ekki að fara lengra aftur en til árs­ins 2009 þegar svínaflensan geis­aði til að finna slík dæmi. Afhjúpað var í rann­sókn sem birt­ist í vís­inda­rit­inu The Milbank Quarterly í fyrra að rík­ari lönd heims­ins neit­uðu að dreifa bólu­efni gegn sjúk­dómnum til þeirra fátæk­ari fyrr en að tryggt væri að inn­an­lands þörf væri mætt.

Jaðarsettu fólki verði tryggð bólusetning

Rauði kross­inn er meðal þeirra sem hefur áhyggjur af dreif­ingu bólu­efn­is­ins og segir að leggja verði áherslu á að fólki sem búi við átök verði einnig tryggður aðgangur að bólu­setn­ingum.

„Fólk sem býr á átaka­svæðum hefur oft lít­inn sem engan aðgang að grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu en þessi sam­fé­lög eru jafn við­kvæm fyrir Covid-19 og önnur sam­fé­lög og þurfa vernd gegn þess­ari skæðu veiru,“ segir í yfir­lýs­ingu frá alþjóða­ráði Rauða kross­ins þar sem bent er á að 60 millj­ónir manna búi á svæðum sem eru undir stjórn vopn­aðra hópa og eru því ekki hluti af opin­berum áætl­unum ríkja um dreif­ingu bólu­efna.

„Jað­ar­sett sam­fé­lög, þar með talið flótta­fólk, inn­flytj­endur, umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og fangar, verða einnig að vera með í bólu­setn­ing­ar­á­ætl­unum og hafi aðgang að þeirri heilsu­vernd sem bólu­efnið veitir.“

Biðlar Rauði kross­inn því til ríkja um að tryggja að tekið verði til­lit til allra hópa við gerð áætl­ana um fram­kvæmd bólu­setn­inga.

„Rauði kross­inn er til­bú­inn að leggja sitt af mörkum til að dreifa Covid-19 bólu­efni með sam­starfs­að­ilum Rauða kross­ins og Rauða hálf­mán­ans, sér­stak­lega til átaka­svæða, svæða nálægt víg­línum og til þeirra sem sitja í haldi,” segir Robert Mardini, fram­kvæmda­stjóri alþjóða­ráðs Rauða kross­ins. „Við munum einnig for­gangs­raða venju­bundnum bólu­setn­ingum og vinna að því að veita áreið­an­legar upp­lýs­ingar um bólu­efni.“

Eina vonin

Þó að margir telji að COVAX-sam­komu­lagið, sem er runnið undan rifjum GAVI-sam­starfs­ins sem bæði opin­berar stofn­anir og einka­að­ilar eiga aðild að, muni tryggja jafna útdeil­ingu bólu­efnis gegn COVID-19 hafa langt í frá allir trölla­trú á að það muni ganga eftir.

Þegar sam­komu­lagið var kynnt var sagt að fátæk­ari þjóðir þyrftu ekki að borga fyrir bólu­efnið. Nú er sagt að þær fái hvern skammt á mun lægra verði en þær rík­ari og að telji þær sig ekki geta greitt upp­sett verð verði reynt að koma til móts við þær. 82 þjóðir hafa skrifað undir COVAX. Banda­ríkin eru ekki í þeim hópi.

Þó að mark­mið sé sett er ekki víst að því verði náð. Engu að síður er COVAX-sam­komu­lagið besta og eina von margra ríkja til að fá bólu­efni.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, vakti máls á dreif­ingu bólu­efnis til fátæk­ari ríkja á ráð­stefnu 20 stærstu iðn­ríkja heims á dög­unum. Iðnríkin hafa lofað aðstoð og jöfnum aðgangi að efn­inu fyrir alla en Merkel lýsti yfir áhyggjum sínum af því að ferlið myndi taka of langan tíma og að það væri of skammt á veg komið. Emannuel Macron Frakk­lands­for­seti tók undir með Merkel á ráð­stefn­unni og sagði að leið­togar iðn­ríkj­anna yrðu að vinna hraðar og af meiri krafti að því að tryggja fátækum ríkjum aðgang að bólu­efn­inu, að gefa stærri hlut af þeim skömmtum sem þau hafa þegar tryggt sér og að deila þekk­ingu sinni á fram­leiðslu þess með fleirum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár