Ragnar Þór sækist eftir því að leiða VR áfram

Formaður VR hyggst sækj­ast eftir end­ur­kjöri í kosn­ingum í félag­inu sem fara fram í mars. Ragnar Þór hefur leitt félagið frá árinu 2017. Hann seg­ist ætla að beita sér fyrir því að lægja öld­urnar innan Alþýðu­sam­bands Íslands, en segir hreyf­ing­una þver­klofna.

Formannskjör framundan
For­manns­kjör framundan Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur verið for­maður VR frá 2017. Mynd: Eyþór Árnason

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR hefur til­kynnt að hann hygg­ist bjóða sig fram til áfram­hald­andi for­mennsku í félag­inu, en kosn­ingar fara fram í félag­inu í mars­mán­uði. Ragnar Þór hefur verið for­maður VR frá 2017.

Í færslu á Facebook segir Ragnar Þór að þrátt fyrir „nei­kvæða umræðu um verka­lýðs­hreyf­ing­una“ standi VR „ákaf­leg­lega vel“ og starf stjórnar og skrif­stofu félags­ins hafi verið „fram­úr­skar­andi gott og ein­kennst af mik­illi sam­heldni og virð­ingu“.

„Á síð­asta ári fór félags­að­ild í fyrsta skipti yfir 40 þús­und sem gerir félagið að lang stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins. Við munum halda áfram þeirri góðu vinnu við breyt­ingar á félag­inu til að koma betur til móts við breyt­ingar á vinnu­mark­aði og ólíkar þarfir ólíkra hópa innan okkar raða,“ segir Ragnar Þór í færslu sinni.

Ætlaði að verða formaður ASÍ í október

Hann segir mikla orku hafa farið í inn­byrðis átök á vett­vangi Alþýðu­sam­bands Íslands og að verka­lýðs­hreyf­ingin sé „þver­k­lofin“, en í októ­ber­mán­uði leit allt út fyrir að Ragnar Þór yrði næsti for­seti ASÍ, eftir að hafa gefið kost á sér. Þá ætl­aði hann að hætta for­mennsku í VR.

Hann dró þó fram­boð sitt til baka á síð­ustu stundu og yfir­gaf 45. þing ASÍ ásamt þeim Sólveigu Önnu Jóns­dóttur for­manni Eflingar og Vil­hjálmi Birg­is­syni for­manni Starfs­greina­sam­bands­ins og VLFA. 

Í færslu sinni seg­ist Ragnar Þór trúa því að „hreyf­ing­unni beri gæfa til að vinna sig í gegnum þessa stöðu á kom­andi fram­halds­þingi ASÍ“ sem boðað var til í kjöl­far þess að þing ASÍ í októ­ber leyst­ist upp í kjöl­far útgöngu verka­lýðs­leið­tog­anna þriggja, og seg­ist Ragnar Þór sjálfur ætla að leggja sitt af mörkum til þess að það grói um heilt innan hreyf­ing­ar­innar.

Húsnæðismál í forgrunni

Um for­manns­fram­boð sitt segir Ragnar Þór að hans áherslur verði að halda áfram að bæta kjör og rétt­indi félags­fólks, að berj­ast fyrir rétt­lát­ara sam­fé­lagi og veita stjórn­völdum aðhald. Hann segir að stóru málin verði sem fyrr hús­næð­is­málin og að þar beri helst að nefna „aukna leigu­vernd og aðgerðir vegna stöðu þeirra sem eru með stökk­breytt hús­næð­is­lán“ auk áfram­hald­andi upp­bygg­ingu leigu­fé­lag­anna Bjargs og Blævar.

Formaður VR er kjör­inn til tveggja ára í senn og hefur Ragnar Þór í tvígang end­ur­nýjað umboð sitt. Er hann gerði það síð­ast árið 2021 fékk hann mót­fram­boð frá Helgu Guðrúnu Jón­as­dóttur almanna­tengli. 

Þá urðu úrslit þau að Ragnar Þór hlaut rúm 63 pró­sent atkvæða, 6.526 atkvæði alls en Helga Guðrún 3.549 atkvæði og rúm 34 pró­sent. Alls voru 35.919 á kjör­skránni þá. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár