Fasteignaskattur hækkað í 14 af 15 stærstu sveitarfélögum landsins

Inn­heimtur fast­eigna­skattur hækk­aði hjá 14 af 15 sveit­ar­fé­lögum á árunum 2013 til 2019 og nemur hækk­unin frá 9,2 pró­sent í sér­býli í Vest­manna­eyjum þar sem hún er minnst upp í 136 pró­sent í fjöl­býli í Keflavík, Reykja­nesbæ þar sem hún er mest.

Úttekt verð­lags­eft­ir­lits ASÍ sýnir að fast­eigna­gjöld hafa í mörgum til­fellum hækkað mikið á síð­ustu sex árum í 15 stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Mestar eru hækk­anir á fast­eigna­sköttum, lóða­leigu og sorp­hirðu­gjöldum en miklar hækk­anir má finna í öllum gjalda­flokkum. Þá hefur fast­eigna­skattur hækkað í 14 af 15 stærstu sveit­ar­fé­lög­unum lands­ins, þar af hefur fast­eigna­skattur hækkað mest í fjöl­býli í Keflavík eða um 136 pró­sent.

Fasteignaskattur hækkað mikið samhliða hækkun fasteignaverðs

Fast­eigna­gjöld eru árlega lögð á allar fast­eignir og ber eig­andi á hverjum tíma ábyrgð á greiðslu þeirra. Fast­eigna­gjöld skipt­ast í fast­eigna­skatt, lóð­ar­leigu, sorp­hirðu­gjald og gjald vegna end­ur­vinnslu­stöðva. 

Í úttekt verð­laga­eft­ir­lits ASÍ er tekin sama þróun fast­eigna­gjalda á íbúð­ar­hús­næði í 15 stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins frá árunum 2013 til 2019. Í úttekt­inni kemur fram að fast­eigna­skattur, sem er reikn­aður út frá fast­eigna­mati, hafi hækkað mikið síð­ustu ár sam­hliða hækkun fast­eigna­verðs.

Hækkandi fast­eigna­mat hefur þó einnig áhrif á önnur fast­eigna­gjöld líkt og lóða­leigu, frá­veitu­gjöld og vatns­gjöld. Fast­eigna­mat ásamt álagn­ing­ar­hlut­falli sveit­ar­fé­lag­anna er í flestum til­fellum gjald­stofn fyrir inn­heimtu fast­eigna­gjalda. Í úttekt­inni segir að ein­hver sveit­ar­fé­lög hafi lækkað álagn­ing­ar­hlut­föll á móti til að minnka áhrif af hækk­andi fast­eigna- og lóða­mati en sam­kvæmt verð­lags­eft­ir­lit­inu hafa slíkar mót­væg­is­að­gerðir ekki alltaf verið nægi­lega miklar til að draga úr hækk­unum fast­eigna­gjalda.

Mestar hækkanir í Reykjanesbæ en minnstar í Vestmannaeyjabæ

Á tíma­bil­inu 2013 til 2019 lækk­aði álagn­ing­ar­hlut­fall hjá 10 af 15 sveit­ar­fé­lögum, stóð í stað hjá þremur sveit­ar­fé­lögum og hækk­aði hjá tveimur sveit­ar­fé­lögum. Þrátt fyrir það hefur inn­heimtur fast­eigna­skattur í flestum til­fellum hækkað mikið síðan árið 2014.

Þegar til­lit hefur verið tekið til breyt­inga á fast­eigna­mati má sjá að inn­heimtur fast­eigna­skattur hækk­aði hjá 14 af 15 sveit­ar­fé­lögum á tíma­bil­inu og nemur hækk­unin frá 9,2 pró­sent í sér­býli í Vest­manna­eyjum þar sem hún er minnst upp í 136 pró­sent í fjöl­býli í Keflavík, Reykja­nesbæ þar sem hún er mest.

Næst mest hækkar inn­heimtur fast­eigna­skattur í fjöl­býli í Njarðvík, Reykja­nesbæ, 131,2 pró­sent en þar á eftir kemur Reykja­vík­ur­borg með 65,7 pró­sent hækkun í fjöl­býli í Laug­ar­nes­hverfi/Vogum og 65 pró­sent hækk­anir í Selja­hverfi.

Í sér­býli eru mestar hækk­anir í Keflavík, Reykja­nesbæ, 124 pró­sent og næst mestar í Njarðvík, Reykja­nesbæ, 121,7 pró­sent. Þar á eftir kemur Fjarð­ar­byggð með 71,7 pró­sent hækkun. Minnstar hækk­anir eru í sér­býli hjá Vest­manna­eyjabæ, 9,2 pró­sent.

Miklar hækkanir á Seltjarnarnesi

Sorp­hirðu­gjöld eru hluti af fast­eigna­gjöldum og er inn­heimt sem föst krónu­tala á hverja íbúð eða fjölda tunna við hús og hefur fast­eigna- og lóða­mat þar engin áhrif á. Í úttekt­inni má sjá að frá árinu 2014 hafa sorp­hirðu­gjöld áður hækkað hjá öllum sveit­ar­fé­lögum og í mörgum til­fellum mikið. Mest hafa gjöldin hækkað hjá Sel­tjarn­ar­nesbæ um 114 pró­sent og næst mest hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg um 84,5 pró­sent. Vest­manna­eyja­bær kemur þar á eftir með 75,4 pró­sent hækkun og Kópa­vogs­bær með 75,2 pró­sent hækkun. Minnst hækk­uðu sorp­hirðu­gjöldin hjá Reykja­nesbæ, Akra­nes­kaup­stað og Ísa­fjarð­arbæ.

Annað dæmi um mikla hækkun á Sel­tjarn­ar­nes­inu er hækkun á frá­veitu­gjöldum í fjöl­býli en á tíma­bil­inu hækk­uðu inn­heimt frá­veitu­gjöld mest hjá Sel­tjarn­ar­nes­kaup­stað eða um alls 128 pró­sent. Þau hækkuð næst mest hjá Reykja­nes bæ eða um 79 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár