Ríkið mun setja rúma 46 milljarða í Borgarlínu á núvirði

Formaður Mið­flokks­ins fékk svör frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um núvirtan kostnað rík­is­ins við fram­kvæmdir vegna Borg­ar­línu til 2033. Á núvirði kostar verk­efnið í heild tæpa 53 millj­arða króna á núvirði.

Ekki hefur verið samið um neina aðkomu ríkisins að rekstri Borgarlínunnar, ennþá.
Ekki hefur verið samið um neina aðkomu rík­is­ins að rekstri Borg­ar­lín­unnar, ennþá. Mynd: Úr safni

Núvirtur heild­ar­kostn­aður vegna fram­kvæmda við Borg­ar­línu fram til árs­ins 2033 nemur tæp­lega 53 millj­örðum króna. Þar af verður hlutur rík­is­ins rúmir 46 millj­arðar króna á verð­lagi dags­ins í dag, sam­kvæmt því sem fram kemur í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þing­manns Mið­flokks­ins um málið.

Sig­mundur Davíð vildi fá að vita hver áætl­aður núvirtur kostn­aður af fram­kvæmdum við borg­ar­línu­verk­efnið væri og einnig hver mik­ill kostn­aður rík­is­ins við rekstur Borg­ar­línu og ann­arra almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væri áætl­aður til fram­tíðar.

Svörin við hinu síð­ar­nefnda eru ansi rýr, en vísað er til upp­lýs­inga frá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu um að ekki hafi verið samið um neina aðkomu rík­is­ins að rekstri Borg­ar­lín­unnar.

[adspot]

Eins og Kjarninn sagði nýlega frá hafa bæði Strætó og Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) komið því á fram­færi að ríkið þurfi að stíga sterkar inn í fjár­mögnun almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Í umsögn SSH um drög að Grænbók í sam­göngu­málum var látið að því liggja að sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið drægi lapp­irnar við að hefja sam­tal um þetta atriði.[links]

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs er þó minnst á að sam­hliða und­ir­ritun sam­göngusátt­mál­ans, sem var í sept­em­ber 2019, hefði verið und­ir­rituð vilja­yf­ir­lýs­ing um fram­leng­ingu á fram­lagi rík­is­ins til efl­ingar almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en ríkið hefur frá árinu 2012 lagt til einn millj­arð á ári til almenn­ings­sam­gangna.

Í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni frá 2019 var gert ráð fyrir að þessi rík­is­fram­lög til rekstrar almenn­ings­sam­gangna yrðu að „minnsta kosti óbreytt“ til árs­ins 2034 – sem jafn­gildir um 12 millj­örðum króna að núvirði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár