Gunnar Smári kvartar til umboðsmanns Alþingis vegna framkvæmdar kosninganna

Sós­í­alista­flokkur Íslands telur að fram­boð sitt til Alþingis njóti ekki jafn­ræðis við kynn­ingu á kjör­stað. Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafnar því að starfs­maður þess hafi sagt að ekki væri kom­inn lista­bók­stafur fyrir flokk­inn.

Gunnar Smári Egilsson er formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.
Gunnar Smári Egilsson er for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands og odd­viti hans í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kom­andi kosn­ingum, sendi í gær kvörtun til umboðs­manns Alþingis vegna fram­kvæmdar á utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu sem nú stendur yfir. Hann telur að fram­boð Sós­í­alista­flokks­ins njóti ekki jafn­ræðis við kynn­ingu á kjör­stað.

Tilefnið er að kjós­andi leitað til Sós­í­alista­flokks­ins eftir að hann hugð­ist kjósa utan kjör­fundar hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í Kópavogi, en að starfs­maður emb­ætt­is­ins hafi sagt honum að það væri ekki kom­inn lista­bók­stafur fyrir Sós­í­alista­flokk­inn.

Í kvörtun Gunnars Smára segir að við eft­ir­grennslan hafi feng­ist þær upp­lýs­ingar að þegar kjós­andi komi til að kjósa hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fái hann að skoða blað með lista­bók­stöfum þar sem lista­bók­stafur Sós­í­alista­flokks­ins sé aðgreindur frá lista­bók­stöfum flokka sem buðu fram síð­ast með smáum texta og útskýr­ingum sem gefi til kynna að fram­boð Sós­í­alista­flokks­ins sé í öðrum flokki en hinna.

Gunnar Smári hafði sam­band við dóms­mála­ráðu­neytið vegna máls­ins sem svar­aði því til að ráðu­neytið hefði átt sam­tal við sýslu­mann­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem „hafnar því að það verk­lag sem þú lýsir í tölvu­póst­inum hér að neðan sé við­haft.“

[adspot]Sigríður Krist­ins­dóttir, sýslu­maður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði í sam­tali við Vísi í gær að um mis­skiln­ing kjós­and­ans væri að ræða og að starfs­maður emb­ætt­is­ins sem átt hafi í sam­skiptum hans kann­ist ekki við að hafa gefið þær röngu upp­lýs­ingar sem hann var vændur um. Sigríður benti auk þess á að kjós­and­inn gæti kosið aftur ef hann vildi, en fólk sem kýs utan kjör­fundar má kjósa eins oft og það vill. Síðasta greidda atkvæðið gildir ein­fald­lega þegar talið er upp úr kjör­köss­unum.

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við erindi Gunnars Smára sagði að hægt væri að kvarta yfir stjórn­sýslu sýslu­manns til umboðs­manns Alþingis. Það gerði hann í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár