Hvaðan kemur gasið sem notað er á Íslandi?

Ekkert ríki í heim­inum flytur út jafn mikið gas og Rússland en refsi­að­gerðir gagn­vart Rússum vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu hafa enn ekki náð til gass. Ísland flytur ekki inn gas frá Rúss­landi. En hvaðan kemur þá gasið sem Íslend­ingar nota?

Innflutningur á gasi til Íslands er agnarsmár í stóra samhenginu. En eitt er víst: Ísland flytur ekki inn gas frá Rússlandi.
Inn­flutn­ingur á gasi til Íslands er agn­ar­smár í stóra sam­heng­inu. En eitt er víst: Ísland flytur ekki inn gas frá Rúss­landi. Mynd: EPA

Gas hefur verið fyr­ir­ferð­ar­mikið í umræð­unni upp á síðkastið í tengslum við refsi­að­gerðir sem Rússar hafa verið beittir vegna inn­rásar rúss­neska hers­ins í Úkraínu. Um helm­ingur alls gass sem not­aður er innan ESB er unn­inn úr rúss­neskri jörð. Þannig var 45 pró­sent alls inn­flutts gass til Evr­ópu­sam­bands­ríkja á síð­asta ári frá Rúss­landi.

Evr­ópu­sam­bandið er meðal þeirra sem hafa beitt Rússa hörðum refsi­að­gerðum og á föstu­dag, þegar 100 dagar voru liðnir frá upp­hafi inn­rás­ar­innar í Úkraínu, rók sjötti samn­ingur aðild­ar­ríkja ESB um við­skipta­þving­anir gegn Rússum gildi.

Sam­komu­lag náð­ist um að draga úr olíu­inn­flutn­ingi til Evrópu frá Rúss­landi um 90 pró­sent fyrir lok þessa árs. Þá snúa refsi­að­gerð­irnar einnig að bönkum og hátt­settum emb­ætt­is­mönnum innan rúss­neska hers­ins. Aðild­ar­ríkin hafa einnig unnið að sam­komu­lagi að draga úr nauð­syn þess að kaupa rúss­neskt gas en sam­komu­lag um bann á inn­flutn­ingi á gasi frá Rúss­landi tókst ekki að þessu sinni. Banda­ríkin hafa hins vegar bannað allan inn­flutn­ing á gasi frá Rúss­landi.

Svíþjóð, Danmörk, Noregur og Holland

Gas­notkun getur ekki talist mikil á Íslandi en hvað sem refsi­að­gerðum líður um bann á gasinn­flutn­ingi mun það ekki hafa áhrif hér á landi þar sem eng­inn inn­flutn­ingur er á á gasi til Íslands frá Rúss­landi.

[adspot]Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stof­unni er inn­flutn­ingur á gasi til Íslands að lang stærstum hluta frá Svíþjóð og Danmörku. Einhver inn­flutn­ingur er einnig frá Noregi og Hollandi. Ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvernig inn­flutn­ing­ur­inn skipt­ist eftir ríkjum.

Síðustu fimm ár hefur inn­flutn­ingur á gasi verið á bil­inu 2.700 til 3.200 tonn árlega, mest árið 2019. Í stóra sam­heng­inu er inn­flutn­ing­ur­inn agn­ar­smár. Rússland, sem er sem fyrr segir stærsta gas­út­flutn­ings­ríki heims, flutti til að mynda út rúm­lega 197,2 millj­arða rúmmetra af gasi árið 2020, sem nemur rúm­lega 69 millj­örðum tonna.

Tekst að draga úr gasinnflutningi fyrst samkomulag náðist um olíu frá Rússlandi?

Eins og fyrr segir hafa refsi­að­gerðir gagn­vart Rússum ekki náð til gass, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Í síð­asta mán­uði gaf fram­kvæmd­ar­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins út við­mið­un­ar­reglur um hvernig greiða megi fyrir rúss­neskt gas. Regl­urnar voru settar í þeim til­gangi að koma í veg fyrir stór­felldan orku­skort í Evrópu.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta hefur kraf­ist þess að kaup­endur frá „óvin­veittum lönd­um“ borgi fyrir gas í rúbl­um. Að öðrum kosti verði skrúfað fyr­ir. Og það hefur nú verið gert.

[links]Rússar skrúf­uðu fyrir gas til Pól­lands í apríl. Mateusz Morawi­ecki, for­sæt­is­ráð­herra Pól­lands, segir Evr­ópisam­bandið vera að láta undan kúg­unum Pútíns Auk Póllands hafa stjórn­völd í Búlgaríu, Hollandi og Finn­landi neitað að greiða fyrir gas frá Rúss­landi í rúblum og því hefur verið skrúfað fyrir gasið til þess­ara ríkja.

Þó refsi­að­gerðir nái ekki enn til gass hefur stríðið í Úkraínu samt sem áður haft áhrif á rúss­neska rík­is­fyr­ir­tækið Gazprom, sem hefur á fyrri helm­ingi þessa árs, frá jan­úar til maí, selt um fjórð­ungi minna af jarð­gasi til ann­arra ríkja en þeirra sem til­heyrðu Sov­ét­ríkj­unum. Þannig seldi Gazprom 61 millj­arð rúmmetra af gasi til ríkja sem voru ekki hluti af Sov­ét­ríkj­unum og nemur sam­drátt­ur­inn 27,6 pró­sentum. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir hins vegar að útflutn­ingur til Kína, sem fer fram í gegnum Síber­íuga­sleiðsl­una, hafi auk­ist, en ekki hverstu mikið.

Margir hafa sagt að alþjóð­legar við­skipta­þving­anir gegn Rússum muni ekki bíta að ráði vegna þess hversu Evr­ópu­sam­bandið sem og fleiri ríki utan þess eru háð rúss­nesku gasi. Öll þessi orku­við­skipti við Rússa, sem ekki er hægt að hverfa frá í einu vet­fangi, hafa veru­lega dregið úr áhrifum við­skipta­þving­ana. Rúss­neska ríkið fær millj­ónir á millj­ónir ofan í sinn kassa dag­lega vegna orku­við­skipta við Vest­ur­lönd.

Það er hins vegar spurn­ing að nú, þegar aðild­ar­ríki ESB hafa samið um að draga úr olíu­inn­flutn­ingi til Evrópu frá Rúss­landi um 90 pró­sent fyrir lok þessa árs, hvort gasið sé næst?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár