Fyrrverandi ráðherra slapp fyrir horn

Claus Hjort Frederik­sen þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra í rík­is­stjórn Dan­merkur slapp fyrir horn þegar danska þingið felldi til­lögu um að afnema þing­helgi hans. Rík­is­stjórn og rík­is­lög­maður vildu ákæra Claus Hjort fyrir land­ráð.

Claus Hjort Frederiksen verður ekki ákærður, að minnsta kosti ekki meðan hann er þingmaður.
Claus Hjort Frederik­sen verður ekki ákærður, að minnsta kosti ekki meðan hann er þing­maður. Mynd: EPA

Claus Hjort Frederik­sen, sem er 75 ára og lög­fræð­ingur að mennt, var fyrst kjör­inn á þing árið 2001. Hann hafði þá um ára­bil verið í for­ystu­sveit Venstre og meðal ann­ars verið rit­ari flokks­ins. Hann var ráð­herra atvinnu­mála frá 2001 til 2009 í stjórn Anders Fogh Rasmus­sen en þegar Lars Løkke Rasmus­sen tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra sett­ist Claus Hjort Frederik­sen í fjár­mála­ráðu­neytið og gegndi emb­ætti fjár­mála­ráð­herra til árs­ins 2011. Þegar Venstre komst aftur í stjórn árið 2015 tók Claus Hjort aftur við sem fjár­mála­ráð­herra. Ári síðar, eftir upp­stokkun í stjórn­inni varð Claus Hjort varn­ar­mála­ráð­herra og gegndi því emb­ætti fram að stjórn­ar­skiptum árið 2019. Hann var einn nán­asti sam­starfs­maður Lars Løkke Rasmus­sen og hefur verið lýst sem „þunga­vigt­ar­manni“ í Venstre flokknum. Claus Hjort hefur lýst yfir að yfir­stand­andi kjör­tíma­bil sem lýkur á næst ári sé hans síð­asta.

Grunaður um landráð

1.jan­úar síð­ast­lið­inn var Claus Hjort Frederik­sen til­kynnt að hann væri grun­aður um land­ráð, nánar til­tekið brot á grein 109 í hegn­ing­ar­lög­unum. Hann hafi opin­ber­lega greint frá upp­lýs­ingum sem telj­ist varða þjóðar­ör­yggi og slíkum upp­lýs­ingum sé algjör­lega óheim­ilt að greina frá. Ekki var greint frá hverjar þessar upp­lýs­ingar, sem flokk­ast undir rík­is­leynd­ar­mál, voru. Frétta­skýrendur töldu sig hins vegar vita að brotið fælist í því að Claus Hjort hefði í sjón­varps­við­tölum stað­fest, án þess þó að segja berum orðum, að fréttir af hler­unum sem fjöl­miðlar hefðu greint frá, væru réttar. Rétt er að geta þess að fréttir af þess­ari „hler­ana­sam­vinnu“ kom fyrst fram árið 2013 og svo aftur 2014 í gögnum sem upp­ljóstr­ar­inn Edward Snowden lak til fjöl­miðla.

Hleranamálið

24. ágúst í fyrra greindi danska útvarpið, DR, frá náinni sam­vinnu Leyni­þjón­ustu danska hers­ins, FE, og Þjóðar­ör­ygg­is­stofnun Banda­ríkj­anna (NSA). Þetta var ekki í fyrsta sinn sem greint var frá þess­ari sam­vinnu, en þennan dag, 24. ágúst, var birt skýrsla eft­ir­lits­nefndar sem skipuð hafði verið eftir að fréttir um nána sam­vinnu FE og NSA höfðu birst í dönskum fjöl­miðlum. Í stuttu máli fólst sam­vinnan í því að FE hafði heim­ilað NSA aðgang að flutn­ings­línum tölvu­gagna í Danmörku. Sá aðgangur gerði NSA heim­ilt að fylgj­ast með sím­tölum, sms skila­boðum og tölv­pósti. Með öðrum orðum: öllum raf­rænum sam­skiptum dönsku þjóð­ar­innar. Hler­an­irnar voru ekki ein­skorð­aðar við Danmörku, því NSA hafði líka hlerað stjórn­mála­menn í mörgum Evr­ópu­löndum. Fjöl­margar gagna­línur milli Banda­ríkj­anna og Evrópu, og sömu­leiðis milli margra landa í Evrópu, fara um Danmörku. Þetta var sem sé allt galopið fyrir NSA með leyfi Dana. Þótt FE hafi heim­ild til sam­vinnu við erlendar leyni­þjón­ustur náði þessi galopni aðgangur NSA langt út fyrir þau mörk.

Viðtöl í sjónvarpi

Í jan­úar á þessu ári, nokkrum dögum eftir að Claus Hjort Frederik­sen var til­kynnt að hann væri grun­aður um land­ráð kom hann fram í tveimur við­tals­þáttum, hjá Danska sjón­varp­inu, DR og hjá sjón­varps­stöð­inni TV2. Þar greindi hann frá því að hann væri grun­aður um að hafa greint frá verst varð­veitta leynd­ar­máli síð­ari tíma, leynd­ar­máli sem allir Danir vissu um. Hann sagði að þetta væri póli­tískt mál, nú væri hann í stjórn­ar­and­stöðu og rík­is­stjórnin sæi þarna leið til að koma á sig höggi. Viðtölin vöktu mikla athygli og strax vökn­uðu spurn­ingar um hvort Claus Hjort hefði sagt of mikið. Dóms­mála­ráð­herr­ann Nick Hækkerup (sem síðar sagði af sér þing­mennsku) sagði að það væri ákæru­valds­ins að ákveða hvort, og þá hvert, fram­haldið yrði. Ef nið­ur­staða ákæru­valds­ins yrði að rétt væri að ákæra Claus Hjort væri fram­haldið í höndum dóms­mála­ráð­herr­ans.

Mælt með ákæru

Fyrir rúmum tveim vikum, 12. maí sl. til­kynnti dóms­mála­ráð­herr­ann Mattias Tesfaye að rík­is­lög­maður (rigsa­dvoka­ten) mælti með því að gefin yrði út ákæra á hendur Claus Hjort Frederik­sen. En þar er ljón í veg­inum: Þingmenn og ráð­herrar njóta svo­nefndrar þing­helgi, sem þýðir að þá er ekki hægt að ákæra nema meiri­hluti þings­ins sam­þykki að svipta við­kom­andi þing­helg­inni. Dóms­mála­ráð­herra sagð­ist fylgja ráð­legg­ingum rík­is­lög­manns og lagði til að Claus Hjort yrði sviptur þing­helgi. Þingmenn vildu fá að vita allt um mála­vöxtu, hvað það væri sem til stæði að ákæra fyrir. Það vildi ráð­herr­ann ekki upp­lýsa, rök­studdi það með því að um væri að ræða atriði sem varði hags­muni rík­is­ins, rík­is­leynd­ar­mál. Margir þing­menn sögðu úti­lokað að sam­þykkja að svipta Claus Hjort þing­helgi án þess að vita mála­vöxtu. Eftir mikið japl jaml og fuður fengu for­menn þing­flokka að vita sak­ar­giftir en máttu ekki greina flokks­systk­inum sínum frá því um hvað málið sner­ist.

Ráðherra bakkar

Þegar ráð­herra varð ljóst að ekki væri þing­meiri­hluti fyrir að svipta Claus Hjort þing­helgi til­kynnti hann að ekki yrðu greidd atkvæði um málið í þing­inu og mál­inu þar með lokið. Í bili að minnsta kosti. Lögum sam­kvæmt fellur þing­helgin niður þegar þing­maður hættir þing­mennsku og þá mætti ákæra við­kom­andi. Danskir stjórn­mála­skýrendur segja ólík­legt að slíkt ger­ist, sér­fræð­ingur dag­blaðs­ins Politi­ken sagð­ist telja að allir væru búnir að fá nóg af þessu máli.

Claus Hjort Frederik­sen sagði, eftir að ráð­herr­ann til­kynnti að ekki kæmi til atkvæða­greiðslu um þing­helg­ina, að til­finn­ingar sínar væru blendnar „ég hef ekki verið hreins­aður af þessum áburði þótt ég gleðj­ist jafn­framt yfir nið­ur­stöð­unni“.

Eftirmáli

Var ríkislögmaður að þóknast ráðherranum?

Það vakti athygli Þegar Claus hjort Frederiks­sen sagði, eins og nefnt var fyrr í þessum pistli, að málið gegn sér væri póli­tískt. Í þessu sam­bandi var rifjað upp við­tal blaða­manns Politi­ken við Jan Reckendorff í ágúst 2018. Þar sagði hann að hann tæki vel eftir því sem sitj­andi rík­is­stjórn segir og það væri sitt verk að fram­kvæma það sem rík­is­stjórnin hefði ákveðið:

»hvis der er nogle politiske ønsker om noget bestemt, skal rigsa­dvoka­ten spille ind med juri­diske løsn­inger«.

Og han til­føjede blandt andet, at han har en »meget stor lydhør­hed over for den sidd­ende reger­ing«, og at det er hans opgave at udføre det, som »reger­ingen har besluttet«.

Þessi ummæli vöktu mikla athygli og margir virtir lög­menn og sér­fræð­ingar lýstu undrun sinni á orðum Jan Reckendorff. Eva Smith, fyrr­ver­andi pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla sagði í við­tali að rík­is­lög­maður ætti að fara að lögum en ekki eftir því hvað rík­is­stjórnin vildi. „Ég trúði varla mínum eigin augum þegar ég las þetta. Hélt hrein­lega að mér hefði mis­sýnst og skipti meira að segja um gler­augu áður en ég las þetta aftur. Það breytti engu, þetta stóð þarna, svart á hvítu”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár