Bjarni vill verða forsætisráðherra á ný

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur metnað til að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar í sept­em­ber á næsta ári og leiða hana. Hann segir núver­andi stjórn hafa fundið leiðir til að útkljá mál og hefði þess vegna verið nokkuð far­sæl.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi metnað til að mynda rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar og leiða hana. Besta trygg­ingin til þess sé að skila góðum árangri í lok kjör­tíma­bils­ins og upp­skera svo hjá kjós­endum í kjöl­farið.

Þetta sagði Bjarni þar sem hann svar­aði spurn­ingum í beinu vef­streymi á Facebook-síðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hádeg­inu í dag. Bjarni var spurður hvort hann vildi verða for­sæt­is­ráð­herra aftur, en hann sat sem slíkur um nokk­urra mán­aða skeið árið 2017 þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­aði rík­is­stjórn með Bjartri fram­tíð og Viðreisn.

Bjarni sagði að það sem væri nýtt í stjórn­málaum­hverf­inu í dag væri að það væri erfitt að mynda tveggja flokka stjórn. Nú væru til að mynda átta flokkar á þingi og það geri stjórn­ar­myndun flókn­ari en lengi var.

Hann sagði að núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn situr í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokknum, gangi ágæt­lega. Það væri tek­ist á um stór mál sem flokk­arnir legðu hver um sig áherslu á en að það væri hluti af því að vera í sam­starfi. Bjarni sagði að hann hefði síð­ast í gær átt óform­legt sam­tal við Katrínu, for­mann Vinstri grænna, og Sigurð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, um hvað væri hægt að gera til að halda jafn­vægi í stjórn­ar­sam­starf­inu. Slík sam­töl hefðu reynst vel. „Við erum ekki alltaf sam­mála en við höfum fundið leiðir til að útkljá mál og höfum verið nokkuð far­sæl sem rík­is­stjórn vegna þess.“

[adspot]Síðasta rík­is­stjórn sem Bjarni leiddi, og kennd var við hann, sat í 247 daga. Hún var skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn sem ríkt hefur á Íslandi síðan Lýð­veldið Ísland var stofnað árið 1944. Aðeins þrjár aðrar rík­is­stjórnir hafa setið skem­ur, en allar hafa verið minni­hluta­stjórn­ir.

Hún var mynduð við erf­iðar póli­tískar aðstæður þar sem stjórn­ar­kreppa hafði ríkt mán­uðum saman og búið var að reyna að ýmis­konar sam­setn­ingu á rík­is­stjórn áður en það náð­ist saman milli Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Viðreisn snemma árs 2017. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar var svo kynnt til leiks 10. jan­úar 2017.

Rík­is­stjórnin varð fljótt óvin­sæl og í maí 2017 studdu ein­ungis 31,4 pró­sent lands­manna hana. Hún sprakk svo 15. sept­em­ber það ár í kjöl­far upp­reist-æru máls­ins svo­kall­aða og boðað var til nýrra kosn­inga, ári eftir að kosið hafði verið síð­ast.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór best stjórn­ar­flokk­anna þriggja úr þeim, þótt fylgið hefði dalað og þing­mönnum hans fækkað úr 21 í 16. Björt fram­tíð hvarf af þingi og Viðreisn tap­aði þremur þing­mönnum af sjö.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­aði svo rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokknum. Sú rík­is­stjórn stefnir í að verða önnur rík­is­stjórnin af síð­ustu fimm sem mynd­aðar hafa verið til að sitja út heilt kjör­tíma­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár