Samfylkingin orðin minni en Vinstri græn samkvæmt nýrri könnun

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ing tapa fylgi en Framsókn og Vinstri græn bæta við sig. Mið­flokk­ur­inn græðir ekk­ert á dalandi fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins nú, líkt og hann hefur oft gert áður.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Samsett

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar lækkar um tvö og hálft pró­sentu­stig milli kann­ana MMR og mælist nú 13,1 pró­sent. Það er minna fylgi en Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist með í könn­un­inni, en það mælist 13,5 pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn síðan seint í maí 2019 sem Vinstri græn mæl­ast stærri en Sam­fylk­ingin og flokk­ur­inn mælist nú næst stærsti flokkur lands­ins. Vinstri græn bæta við sig 2,6 pró­sentu­stigum af fylgi milli mán­aða.

Sá stærsti, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, tapar einnig fylgi á milli kann­ana, alls 2,2 pró­sentu­stigum, og mælist nú með 22,2 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem situr í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki, bætir við sig 2,3 pró­sentu­stigum milli mán­aða og er nú með 11,4 pró­sent fylgi. Hann er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist með stuðn­ing yfir kjör­fylgi sínu sem stendur og fylgi flokks­ins hefur ekki mælst meira í könn­unum MMR frá því í sept­em­ber 2019.

[adspot]Könnunin var fram­kvæmd 12. - 18. febr­úar 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 919 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri. Það þýðir að fram­kvæmd hennar hófst degi áður en til­kynnt var um upp­röðun á fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, en það var gert laug­ar­dag­inn 13. febr­úar. Mikill styr hefur staðið um það ferli þar sem einum núver­andi odd­vita, Ágústi Ólafi Ágústs­syni, og vara­þing­mönnum var boðið sæti neðar á listum til að rýma fyrir nýju fólki, sem þau höfn­uðu. Átök milli ein­stak­linga vegna þessa hafa verið til mik­illar opin­berrar umfjöll­unar.

Miðflokkurinn tapar fylgi

Píratar mæl­ast fjórði stærsti flokkur lands­ins með 11,4 pró­sent fylgi og Viðreisn bætir við sig 1,8 pró­sentu­stigi milli mán­aða og mælist með 10,6 pró­sent fylgi. Báðir flokk­arnir mæl­ast yfir kjör­fylgi.

Athygli vekur að Mið­flokk­ur­inn, sem vana­lega bætir við sig fylgi þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn dalar í könn­unum, tapar 0,8 pró­sentu­stigum milli mán­aða og mælist nú með átta pró­sent stuðn­ing. Það er tölu­vert undir kjör­fylgi hans.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 4,1 pró­sent fylgi og Flokkur fólks­ins með 3,6 pró­sent. Báðir tapa fylgi milli mán­aða og myndu ólík­lega ná inn á þing miðað við þessa stöðu.

Alls segj­ast tvö pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa aðra val­kosti en þá níu sem hér hefur verið fjallað um.

Mörg mynstur í kortunum

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nú 47,1 pró­sent, sem er 5,7 pró­sentu­stigum undir því sem þeir fengu í kosn­ing­unum 2017. Í ljósi þess að hátt í tíu pró­sent atkvæða gætu fallið niður dauð, yrði könnun MMR nið­ur­staða kosn­inga, þá myndi það duga vel til að halda núver­andi stjórn­ar­sam­starfi áfram. 

Þeir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem mæl­ast með fylgi yfir kjör­fylgi; Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn, mæl­ast nú sam­an­lagt með 35,1 pró­sent fylgi, eða 7,1 pró­sentu­stigum yfir því sem þeir fengu haustið 2017. Þeir gætu því, miðað við þá stöðu sem birt­ist í könnun MMR, mögu­lega myndað rík­is­stjórn með annað hvort Vinstri grænum eða Fram­sókn­ar­flokki.

Ef gengið er út frá því að yfir­lýs­ingar Píratar og Sam­fylk­ingar um að flokk­arnir ætli ekki að starfa með Sjálf­stæð­is­flokki haldi þá er raunar hægt að mynda margs­konar fjög­urra flokka rík­is­stjórnir úr ofan­greindu fimm flokka mengi. Þar yrði mögu­lega hægt að skilja hvern flokk­anna fimm: Vinstri græn, Sam­fylk­ingu, Pírata, Fram­sókn­ar­flokk eða Viðreisn, eftir fyrir utan stjórn.

Á hinn bóg­inn væri líka hægt að mynda rík­is­stjórn frá miðju til hægri með Sjálf­stæð­is­flokk, Fram­sókn­ar­flokk, Viðreisn og Miðflokk inn­byrðis ef þeir flokkar gætu náð saman um deilu­mál sín. Slík rík­is­stjórn væri með 52,2 pró­sent atkvæða á bak­við sig. Mögulega gæti meira að segja verið hægt að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisnar. Þeir mæl­ast með 31-32 þing­menn inni miðað við þá stöðu sem sett er fram í könnun MMR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár