Fáráður sem þráir að vera dáður

Bókadómur um Fire and Fury eftir Michael Wolff, sem greinir frá stöðunni á bakvið tjöldin í Hvíta húsi Donald Trump.

Þótt enn sé bara janúar er nokkuð ljóst að umtalaðasta bók ársins er þegar komin út. Fire and Fury, eftir Michael Wolff, fjallar um síðustu metra kosninga­baráttu Donald Trump, aðlögunar­ferli hans og samstarfs­manna hans að því að Trump tæki við sem forseti Banda­ríkjanna og fyrstu mánuðina í Hvíta húsinu. Bókin byggir á viðtölum við um 200 manns sem tengjast Trump eða starfa fyrir hann.

Í bókinni raðar Wolff saman öllum þeim atburðum sem átt hafa sér stað á síðasta tæpa eina og hálfa árinu og sýnir mynd af keisara sem er ekki í neinum fötum, og varla í húð. Sú mynd sem Wolff dregur upp af Trump er af frekar einföldum, uppstökkum, áhrifa­gjörnum og ofsalega sjálf­lægum manni sem hefur engar hugsjónir, enga stefnu og þráir bara tvennt í lífinu, viðurkenningu og aðdáun.

Í innsta hring forsetans tókust á þrír hópar. Sá fyrsti var hópurinn í kringum Steve Bannon, þá aðal­ráðgjafar forsetans. Hann er popúlisti og einangrunar­sinni sem vill skapa glundroða í stjórn­sýslu Banda­ríkjanna, reka harða innflytjenda­stefnu og draga úr alþjóðlegri afskiptasemi ríkisins.

Annar hópurinn voru „hefð­bundnu“ repúblikanarnir, starfsmanna­stjórinn Reince Priebus og næst­ráðandi hans, Katie Walsh. Þriðji hópurinn er síðan fjöl­skylda Trump, dóttirin Ivanka og maður hennar Jared Kushner, og fyrr­verandi Goldman Sachs yfir­mennirnir Gary Cohn og Dina Powell. Þessi hópur samanstendur að mestu af frjáls­lyndum demó­krötum. Bannon kallaði þau Goldman-Sachs demókrata. Og er sá eini sem enn er með Trump í Hvíta húsinu.

Bók Wolff fjallar að miklu leyti um valda­baráttu þessarra þriggja hópa og tilraunir þeirra til að hafa áhrif á forsetann.

Allir hóparnir virðast þó eiga það sameiginlegt að líta á Trump sem fáráð. Rúmlega sjötugt mannbarn sem hefur hvorki vits­munalegan né tilfinninga­legan þroska til að takast á við flestar hversdagslegar aðstæður með rökrænum hætti, og hvað þá hæfi til að stýra voldugasta ríki heims. Nánast allir sem starfa með honum, eða þurfa að umgangast hann, virðast hafa þessa skoðun.

Í bókinni er rakið að Trump hafi helst ekki viljað lesa nokkuð og að hann væri oftast sammála síðasta ræðumanni. Forsetinn vill helst vera kominn upp í rúm um hálf sjö leytið á kvöldin með McDonalds hamborgara og Diet Coke til að horfa á sjónvarps­skjáina þrjá sem hann er með í svefn­herbergi sínu. Á meðan að á þessu stendur hringir hann í allskyns fólk til að kvarta yfir samstarfs­mönnum og lýsa gremju sinni með framgang mála. Þessi símtöl forsetans eru talin vera ein helsta uppspretta leka úr Hvíta húsinu. Hinar valda­klíkurnar láku auðvitað miklu líka, bæði í viðleitni sinni til að grafa undan andstæðingum sínum innan Hvíta hússins og til að reyna að hafa áhrif á forsetann, sem meðtekur fyrst og fremst upplýsingar úr sjónvarpi.

Það sem kemur mest á óvart við lestur bókarinnar er hvað hún kemur manni lítið á óvart. Það sem er nýtt í henni eru fínni blæbrigði, yfir­lýsingar og stað­hæfingar persóna og leikenda sem veita sumum aðstæðunum meiri dýpt og skemmtana­gildi.

Bók Wolff er vel skrifuð, frásagnar­mátinn skemmtilegur og nokkuð sanngjarn. Hann hrósar Trump fyrir ýmislegt sem hann hefur afrekað en eyðir auðvitað þorra púðursins í að rekja firruna sem forsetinn er ábyrgur fyrir. Wolff leikur sér þó að eldinum á nokkrum stöðum þegar hann rekur heilu samtölin manna á milli í beinni ræðu, sem augljóst er að hann var ekki vitni að eða þátt­takandi í.

Þótt viðbrögð forsetans og nærumhverfi hans við bókinni hafi verið ofsa­fengin þá hafa athuga­semdir þeirra fyrst og síðast beinst að ákveðnum full­yrðingum viðmælenda, en ekki verið efnislegar athuga­semdir studdar rökum við þá mynd sem dregin er upp af forseta sem veit ekkert hvað hann er að gera, og virðist alls ófær um að leyna því.

Niðurstaða: Fjórar stjörnur af fimm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár