Borgarráð leggur til fjármagn vegna Covid-19

Einkum er um að ræða auka­fram­lög vegna auk­inna þrifa í stofn­unum borg­ar­innar.

Borg­ar­ráð sam­þykkti á fundi sínum í morgun að leggja til fjár­magn vegna Covid-19. Einkum er um að ræða auka­fram­lög vegna auk­inna þrifa í stofn­unum borg­ar­innar. Sérstök áhersla verður lögð á aukin þrif í stofn­unum og starfs­stöðum sem þjón­usta og vista heilsu­fars­lega við­kvæma ein­stak­linga. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg í dag.

Þá segir að fagsviðum og stofn­unum þeirra sé falið að gera aðgerð­ar­á­ætl­anir um hvernig staðið verði að auknum þrifum og að leggja mat á áætl­aðan við­bót­ar­kostnað vegna þessa. Fjármála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði sé falið að halda með heild­stæðum hætti utan um kostn­að­ar­matið.

Fram kom í fréttum um helg­ina að neyð­ar­stjórn Reykja­víkur hefði virkjað við­bragðs­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir hættu­stig almanna­varna á föstu­dag­inn í kjöl­far fyrsta stað­festa smits­ins vegna COVID-19. 

Neyðarstjórn fundar daglega

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að neyð­ar­stjórn hafi fundað dag­lega síðan. Unnið hafi verið að því að koma nauð­syn­legum upp­lýs­ingum sem fyrst til starfs­fólks borg­ar­innar í nánu sam­starfi við almanna­varnir.

Neyð­ar­stjórn búi meðal ann­ars að því að fyrir tæpum mán­uði var haldin æfing vegna heims­far­ald­urs inflú­ensu og við­bragðs­á­ætl­anir upp­færðar.

Borg­ar­ráð hvetur jafn­framt starfs­fólk borg­ar­innar til að fylgj­ast vel með fyr­ir­mælum land­læknis og heil­brigð­is­starfs­fólks meðal ann­ars um sótt­varnir, almenna umgengni og þrif.

„Þar sem búið er að lýsa yfir hættu­stigi almanna­varna vegna far­ald­urs kór­óna­veirunnar Covid-19, leggur borg­ar­ráð áherslu á nauð­syn þess að þjón­usta borg­ar­innar sé órofin og örugg eins og nokkur kostur er og í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætl­anir borg­ar­innar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Verkfall í borginni gerir þessa stöðu sérstaklega alvarlega“

Meðal þess sem afar brýnt er við núver­andi aðstæður sé að þrif séu full­nægj­andi á öllum þeim stöðum sem Reykja­vík­ur­borg og einka­að­ilar reka og þjón­usta sé til staðar fyrir ein­stak­linga og hópa sem telj­ast heilsu­fars­lega við­kvæmir. Mik­il­vægt sé að fyr­ir­mælum heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur og til­mælum almanna­varna á hverjum tíma sé fylgt í því skyni.

„
Yfir­stand­andi verk­fall í borg­inni gerir þessa stöðu sér­stak­lega alvar­lega þar sem fyrir liggur að almennum þrifum er nú þegar ábóta­vant á vissum stöðum auk þess sem sorp er farið að safn­ast fyrir bæði við heim­ili fólks og í borg­ar­land­inu. Reykja­vík­ur­borg leggur nú allt kapp á að vinna það upp á und­an­þágum sem hafa feng­ist vegna sorp­hirðu og heima­þjón­ustu vel­ferð­ar­sviðs. Sorp­hirða í Breið­holti hófst í morgun.

Borg­ar­ráð leggur áherslu á að áfram verði unnið mark­visst að því að búa starf­semi borg­ar­innar og borg­ar­búa undir frek­ari þróun mála,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár