Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar fundar vegna Covid-19

Neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar kom saman í gær og í dag þar sem við­bragðs­á­ætlun borg­ar­innar fyrir hættu­stig hefur verið virkjuð.

Í ljósi þess að fyrsti ein­stak­ling­ur­inn hefur greinst með kór­óna­veiruna Covid-19 hér á landi hefur rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við sótt­varna­lækni fært stig almanna­varna af óvissu­stigi á hættu­stig.

Samkvæmt til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar kom neyð­ar­stjórn borg­ar­innar saman klukkan 16:00 í gær þar sem við­bragðs­á­ætlun borg­ar­innar fyrir hættu­stig var virkjuð. Í fram­haldi voru stjórn­endur borg­ar­innar upp­lýstir um það og lagt fyrir að þeir upp­lýsi starfs­fólk sitt.

Neyð­ar­stjórn borg­ar­innar kom aftur saman í dag klukkan 14:00 og vinnur í nánu sam­starfi við almanna­varnir, segir í til­kynn­ing­unni.Hún mun funda aftur á morgun þar sem farið verður yfir næstu skref.

Öll 24 sýnin neikvæð

[links]Fram kemur í frétt RÚV í dag að öll sýni, alls 24, sem tekin voru í gær eftir að í ljós kom að maður á fimm­tugs­aldri væri með COVID-19 kór­óna­veiruna, hafi reynst nei­kvæð. Alls sé 81 Íslend­ingur í heima­sótt­kví hér á landi.

Alls hafi 85 sýni verið tekin að und­an­förnu en aðeins einn, karl­maður á fimm­tugs­aldri, hefur greinst með COVID-19 veiruna. Hann er nú í ein­angrun á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár