Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir nýju kórónuveirunni, COVID-19. Maðurinn er ekki alvarlega veikur en sýnir dæmigerð einkenni COVID-19 sjúkdóms sem eru hósti, hiti og beinverkir.
Sýnataka og greining á veiru- og sýklafræðideild Landspítali staðfesti laust eftir kl. 13:00 í dag að maðurinn væri smitaður af COVID-19 kórónaveiru. Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið hér á landi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis.
Í ljósi þessa mun ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkja hættustig almannavarna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekkert lát er á hópsýkingu af völdum veirunnar ytra, þá sérstaklega í Evrópu, og að fyrsta tilfellið hefur nú verið staðfest hér á landi.
Maðurinn sem greindist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu utan skilgreinds hættusvæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakningu smitleiða en markmið þeirra vinnu er að varpa ljósi hverjir gætu verið útsettir vegna þessa staðfesta smits.
[links]Yfir 82 þúsund manns hafa sýkst af nýju veirunni frá því að hún uppgötvaðist fyrst í desember, langflestir í í Kína. Tæplega 3.000 hafa látist eða 3,4% sýktra. Samkvæmt John Hopkins hafa um 33.000 manns náð sér eftir veikindin.
Nýja veiran hefur greinst í um fimmtíu löndum og síðustu daga í grannríkjum Íslands; Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
Hvert á að hringja?
Einstaklingar sem finna fyrir veikindum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti vegna t.d. ferðalaga eru hvattir til að hringja í 1700 (fyrir erlend símanúmer: +354 544-4113) til að fá leiðbeiningar. Þeir sem hafa verið í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra áhættusvæða.
Ítarlegar upplýsingar um hina nýju kórónaveiru er að finna á landlaeknir.is og jafnframt upplýsingar um skilgreind áhættusvæði.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir