Ár af gámatruflunum

Trufl­anir í gáma­flutn­ingum á milli landa hafa valdið miklum usla um allan heim á síð­ustu tólf mán­uðum, allt frá því að risa­skipið Ever Given fest­ist í Súes­skurð­inum. Nú eru blikur á lofti um frek­ari trufl­anir vegna smit­bylgju og sótt­varna í Kína.

Rúmt ár er liðið síðan eitt stærsta gáma­flutn­inga­skip heims, Ever Given, komst í heims­frétt­irnar eftir að hafa strandað í Súes­skurð­inum og setið þar fast í sex sól­ar­hringa.

Skips­strandið var fyrsta stóra fréttin af flösku­hálsum í alþjóð­legum vöru­við­skiptum í kjöl­far far­ald­urs­ins, en þeir hafa haft afdrifa­rík áhrif á heims­hag­kerfið síðan þá. Vegna þeirra hefur flutn­inga­kostn­aður á milli landa marg­fald­ast, sem er ein af ástæðum þess að verð­bólga hefur auk­ist hratt um allan heim.

Þrátt fyrir að dregið hafi úr áhrifum þess­ara flösku­hálsa eftir að þau náðu hápunkti í fyrra­haust, gætir þeirra enn í gáma­flutn­ingum. Ekki er búist við að þessir hnökrar í vöru­flutn­ingum hætti í náinni fram­tíð, en útgöngu­bann í kín­verskum hafn­ar­borgum á síð­ustu vikum hafa haldið uppi flutn­ings­kostn­aði vegna seink­unar á afgreiðslu í mik­il­vægum gáma­höfnum.

Seinkanir leiða af sér aðrar seinkanir

Kjarninn greindi frá strandi Ever Given um pásk­ana í fyrra. Skipið, sem hafði um 20 þús­und gáma um borð þegar það strand­aði, lok­aði á alla umferð um Súes­skurð­inn í Egypta­landi á seinni hluta mars­mán­aðar 2021 og olli því að um 400 gáma­skip komust ekki leiðar sinnar.

Stuttu eftir að skip­inu var komið úr skurð­inum og umferð um hann sneri aftur í eðli­legt horf var­aði for­stjóri danska skipa­fyr­ir­tæk­is­ins Mærsk, Lars Mikael Jensen, við þvi að áhrif þess á vöru­flutn­inga yrðu skamm­líf.

Samkvæmt Jensen tæki mán­uði að vinda ofan af þeim trufl­unum sem skips­strandið hafði á alþjóð­legt flutn­inga­kerfi, þar sem seink­anir skipa munu leiða af sér aðrar seink­anir og umferð­ar­tafir. „Við munum sjá afleidd áhrif af þessu fram í seinni hluta maí­mán­aðar,“ sagði hann í við­tali við Financial Times.

Jensen bætti einnig við að þessi áhrif myndu smita út frá sér og að leiða til hökts í vöru­fram­boði, þar sem evr­ópskir vöru­fram­leið­endur þyrftu að bíða lengur eftir aðföngum vegna seink­unar gáma­skip­anna.

Meiri eftirspurn og færri starfsmenn

Skips­strandið mark­aði upp­haf auk­innar fram­boðs­spennu í vöru­flutn­ingum, en líkt og sést á mynd hér að neðan hækk­aði gáma­flutn­inga­verð hratt á seinni hluta árs­ins. Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið McKinsey greindi frá stöð­unni í skýrslu í fyrra, en sam­kvæmt var spennan að mestu leyti til­komin vegna auk­innar eft­ir­spurnar eftir vörum og þjón­ustu í kjöl­far þess að áhrif far­ald­urs­ins fóru að fjara út.

Það hefur þó reynst höfnum og flutn­inga­fyr­ir­tækjum erfitt að manna nægi­lega margar stöður til að geta tekið á móti þess­ari eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu hnökra­laust. Annars vegar var hefur það verið vegna útbreiðslu smita af kór­ónu­veirunni, en sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda hafa leitt til tak­mörk­unar á starf­semi ýmissa hafna í Asíu nokkrum sinnum á síð­ustu mán­uðum.

Einnig vildu færri vinna í vöru­flutn­ingum á sömu kjörum á áður, þar sem álagið á starfs­fólkið í grein­inni jókst sam­hliða auk­inni eft­ir­spurn og fram­boðs­hökti. Samkvæmt vef­miðl­inum Vox var mik­ill skortur á starfs­fólki í vöru­bíla­flutn­ingum í Banda­ríkj­unum og Evrópu vegna þessa. Því hækk­aði kostn­að­ur­inn við gáma­flutn­inga á milli landa enn frekar.

Myndin hér að neðan sýnir Baltic Dry vísi­töl­una, sem er alþjóð­legur stað­all á flutn­inga­kostnað gáma­skipa. Eins og sést lækk­aði flutn­inga­kostn­að­ur­inn tölu­vert á fyrstu mán­uðum far­ald­urs­ins árið 2020, en fór svo aftur í sögu­legt með­al­tal þegar líða tók á árið.

Um mitt síð­asta ár stórjókst hins vegar flutn­ings­kostn­að­ur­inn. Hann náði hámarki í sept­em­ber í fyrra, en þá var hann orð­inn fjór­faldur því sem hann var á tíma­bil­inu 2017-2019. Á þessum tíma áttu gáma­skip erfitt með að koma varn­ingnum sínum á áfanga­stað á réttum tíma, en líkt og BBC greindi frá byrj­uðu langar biðraðir af skipum að mynd­ast fyrir utan helstu gáma­hafnir heims.

Vegna þess­ara vand­ræða fór að bera á skorti á ýmsum vörum sem eru fluttar á milli landa. Til að mynda átti hús­gagna­fram­leið­and­inn IKEA erfitt með að koma vör­unum sínum á réttan stað á réttum tíma, hér­lendis sem ann­ars staðar. Vöru­skort­ur­inn leiddi einnig til verð­hækk­ana á inn­fluttum vörum, en slíkar verð­hækk­anir hafa verið meg­in­drif­kraft­ur­inn í auk­inni verð­bólgu á ýmsum Vest­ur­löndum síð­ustu mán­uð­ina.

Smitbylgja í Kína veldur áhyggjum

Á síð­ustu vikum hafa svo áhyggjur vaknað af nýjum vand­ræðum í alþjóð­legum gáma­flutn­ingum. Líkt og Kjarninn fjall­aði um í síð­asta mán­uði kom kín­verska rík­is­stjórnin á útgöngu­banni í hafn­ar­borg­inni Shenzhen vegna fjölg­unar kór­ónu­veirusmita þar, en borgin hefur að geyma fjórðu stærstu gáma­höfn heims.

Stuttu seinna var útgöngu­banni einnig komið á í Shanghai eftir að smitum byrj­aði að fjölga þar einnig. Útgöngu­bannið í báðum borg­unum hefur leitt til skorts á hafn­ar­verka­mönnum og því tekur nú lengri tíma að afgreiða gáma­skipin sem fara um hafn­irnar. Sömu­leiðis hafa sótt­varn­ar­að­gerð­irnar valdið töfum á afgreiðslu vöru­bíl­stjóra í land­inu, svo lengri tíma tekur að fylla skipin. Samkvæmt frétt Bloomberg biðu alls 477 gáma­skip afgreiðslu fyrir utan kín­verskar hafnir í vik­unni og hefur þeim fjölgað tölu­vert frá því í síð­asta mán­uði.

Hins vegar gæti verið að það dragi úr þessum trufl­unum á næst­unni, en yfir­völd í Shanghai hafa lýst því yfir að útgöngu­bann­inu í borg­inni verði að hluta til aflétt á mánu­dag­inn. Hins vegar gæti það tekið nokkurn tíma að vinda ofan af þeim, en líkt og kemur fram í frétt Quartz um málið gæti gáma­skortur gert vart við sig um leið og fram­leiðsla og sam­göngur kom­ast í eðli­legt horf í Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár