Telja að kreppan muni vara í að minnsta kosti ár og þúsundir í viðbót muni missa vinnuna

Í könnun sem gerð var fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins á meðal for­svars­manna fyr­ir­tækja kemur fram að meiri­hluti þeirra reiknar með að yfir­stand­andi kreppa standi í að allt að ár hið minnsta. Áform eru uppi um að segja upp 5.500 manns til við­bótar.

Algjört stopp í komu ferðamanna er stærsta ástæðan fyrir samdrætti í íslensku atvinnulífi. Afleiðingin er mikill tekjumissir fyrirtækja og stórfelldar uppsagnir.
Algjört stopp í komu ferða­manna er stærsta ástæðan fyrir sam­drætti í íslensku atvinnu­lífi. Afleið­ingin er mik­ill tekju­missir fyr­ir­tækja og stór­felldar upp­sagnir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti fyr­ir­tækja í land­inu telja að kreppan vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 muni standa í allt eitt ár hið minnsta. Alls segj­ast 30 pró­sent for­svars­manna aðild­ar­fyr­ir­tækja Samtaka atvinnu­lífs­ins að þeir telji að hún muni standa lengur en það en 25 pró­sent þeirra telja að hún muni standa í allt að eitt ár.

Einungis einn af hverjum fimm telja að kreppan gangi yfir á skemur en fjórum mán­uðum. Að jafn­aði er búist við að kreppan standi yfir í tólf mán­uði.

Þetta kemur fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) meðal for­svars­manna aðild­ar­fyr­ir­tækja sam­tak­anna.

Búið að segja upp 5.600 og önnur eins hrina á leiðinni

Á meðal ann­arra nið­ur­staðna sem könn­unin leiddi fram eru að 70 pró­sent fyr­ir­tækj­anna sem hún náði til hafa urðu fyrir tekju­missi í apr­íl­mán­uði. Þrjú af hverjum fjórum fyr­ir­tækjum hafa gripið til ein­hverra aðgerða til að bregð­ast við þess­ari stöðu. Í þeim hefur til að mynda falist að lækka starfs­hlut­fall eða stytta opn­un­ar­tíma.

[adspot]Fjórð­ungur þeirra hefur þegar sagt upp starfs­fólki vegna ástands­ins og í ferða­þjón­ustu­geir­anum, sem hefur farið verst út úr stöð­unni, hefur tæp­lega helm­ingur fyr­ir­tækja gripið til upp­sagna.

Rúmlega 40 þús­und starfs­menn starfa hjá fyr­ir­tækj­unum sem svör­uðu könn­un­inni. Upp­sagnir náðu til rúm­lega þrjú pró­sent starfs­manna þeirra. Það svarar til um 5.600 upp­sagna í við­skipta­hag­kerf­inu í heild.

Miðað við svörin sem feng­ust er fyr­ir­liggj­andi að önnur eins bylgja af upp­sögnum sé framundan. Rúmlega 20 pró­sent fyr­ir­tækja áforma frek­ari upp­sagnir og SA áætlar að þær muni ná til um 5.500 manns. Lang­flestar upp­sagn­irnar verða hjá fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu.

Mismunandi ánægja með aðgerðarpakkana

Í könn­un­inni var einnig spurt um aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar. Sá fyrri var kynntur 21. mars en sá síð­ari nákvæm­lega mán­uði síðar, eða 21. apríl.

Úr fyrri pakk­anum töldu flestir for­svars­menn­irnir að hluta­starfa­leiðin og laun í sótt­kví hefðu gagn­ast mest enda tóku þær aðgerðir gildi strax. Athygli vekur að ein­ungis 25 pró­sent aðspurðra sagði að brú­ar­lán til atvinnu­lífs­ins hefðu gert eitt­hvert eða mikið gagn. Alls sögðu 53 pró­sent fyr­ir­tækj­anna að aðgerða­pakk­inn í heild hefði gert eitt­hvert eða mikið gagn.

Aðeins minni ánægja er með síð­ari aðgerð­ar­pakk­ann, en undir helm­ing for­svars­manna fyr­ir­tækj­anna töldu að hann hefði gert eitt­hvert eða mikið gagn. Einungis einn af hverjum tíu sagði hann raunar hafa gert mikið gagn. Mesta var ánægjan með jöfnun tekju­skatts með tapi 2020 og frek­ari sókn til nýsköp­unar. Minnst var ánægjan með hina svoköll­uðu lok­un­ar­styrki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár