Katrín og Svandís leiða hjá Vinstri grænum í Reykjavík

Orri Páll Jóhanns­son tekur annað sæti Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé í öðru hvor Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu, en ann­ars eru efstu sæti þar óbreytt hjá Vinstri grænum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra munu leiða lista Vinstri grænna í Reykja­vík í næstu kosn­ingum, líkt og þeim síð­ustu. Þetta liggur fyrir eftir að taln­ingu í for­vali flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum lauk í dag.

Steinunn Þóra Árna­dóttir, sitj­andi þing­maður, verður í öðru sæt­inu í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu líkt og fyrir tæpum fjórum árum en Orri Páll Jóhanns­son, vara­þing­maður Vinstri grænna, sest í hitt annað sætið í höf­uð­borg­inni.

[adspot]Þar sat Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé í síð­ustu tveimur þing­kosn­ingum sem fram fóru 2016 og 2017. Hann til­kynnti í jan­úar að hann ætl­aði að reyna að verða nýr odd­viti Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi, en því hlut­verki hafði hann áður gegnt árið 2003, án þess að kom­ast inn á þing. Kol­beinni var hafnað með afger­andi hætti í for­vali Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi og ákvað í kjöl­farið að bjóða sig fram í Reykja­vík á ný.

Hann til­kynnti þann 11. maí síð­ast­lið­inn að hann hefði dregið fram­boð sitt til baka í ljósi þess að leitað hafi verið til fagráðs flokks­ins vegna hegð­unar hans. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði hann: „Það ferli sem þá fór af stað opn­aði augu mín fyrir því að ýmis­legt hefur verið ábóta­vant í minni hegðun.“

Ekki kom fram í stöðu­upp­færsl­unni hvað fólst í þeirri hegðun sem Kolbeinn sýndi af sér.

Forval Vinstri grænna í Reykja­vík fór fram dag­anna 16-19. maí. Alls voru ell­efu í fram­boði og 927 flokks­fé­lagar úr höf­uð­borg­inni greiddu atkvæði í for­val­inu.

Niðurstaða forvalsins er eftirfarandi:

1.sæti Katrín Jak­obs­dóttir með 784 atkvæði í 1. sæti

1.sæti Svandís Svav­ars­dóttir með 714 atkvæði í 1. sæti

[links]2. sæti Steinunn Þóra Árna­dóttir með 487 atkvæði í 1.-2. sætið

2. sæti Orri Páll Jóhanns­son með 459 atkvæði í 1.-2. sætið

3. sæti Eva Dögg Dav­íðs­dóttir með 529 atkvæði í 1.-3. sæti

3. sæti Daníel E. Arnarson með 516 atkvæði í 1.-3. sæti

4. sæti Bryn­hildur Björns­dóttir með 693 atkvæði í 1.-4. sæti

4. sæti René Biasone með 545 atkvæði í 1.-4. sæti

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár