Kolbeinn dregur framboð sitt til baka – Leitað til fagráðs VG vegna hegðunar hans

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé segir að umræða síð­ustu daga, þar sem hund­ruð þolenda kyn­ferð­is­of­beldi hafa rofið þögn­ina enn á ný, hafi leitt til þess að hann hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram. Hann segir VG ekki eiga að þurfa að svara fyrir hans hegðun.

Kolbeinn Óttarsson Proppé.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé. Mynd: Bára Huld Beck

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hefur dregið fram­boð sitt í for­vali flokks­ins í Reykja­vík til baka. Þar sótt­ist hann eftir að vera í öðru sæti á lista flokks­ins í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Áður hafði Kolbeinn sóst eftir að leiða lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi en náði ekki þeim árangri sem hann sótt­ist eftir þar.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Kolbeinn að hann hafi sína djöfla að draga og að ýmis­legt sé óupp­gerð úr for­tíð hans. „Þegar mér svo barst til eyrna að hegðun mín hefði valdið konu mik­illi van­líðan varð ég fús til að leita mér aðstoðar vegna þessa. Ég vil ekki koma þannig fram að öðru fólki líði illa. Ég vil ekki sýna af mér hegðun sem konur upp­lifa sem óeðli­lega. Nú er mikil og þörf bylgja í gangi þar sem konur segja frá. Það er aðdá­un­ar­vert að þær geri það og ég vona inni­lega að gott komi út úr því. Á dög­unum var leitað til fagráðs VG með kvart­anir vegna hegð­unar minnar. Það ferli sem þá fór af stað opn­aði augu mín fyrir því að ýmis­legt hefur verið ábóta­vant í minni hegðun.“

Ekki kemur fram í stöðu­upp­færsl­unni hvað fólst í þeirri hegðun sem Kolbeinn sýndi af sér.

[adspot]Hann hafi samt sem áður ákveðið að gefa kost á sér í for­val­inu en umræða und­an­far­inna daga, þar sem sögur um kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart konum hafa komið fram í umfangs­mik­illi bylgju, hafi gert það að verkum að Kolbeinn hefur end­ur­skoðað þá ákvörðun. „Ég er hluti af valda­kerf­inu og ég er hluti af fem­inískum flokki sem á alltaf að standa með konum. Ég held að ég geti ekki staðið bæði með mér og kon­unum sem líður illa mín vegna á meðan ég er í fram­boði fyrir VG. Og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, eða nokkur þar innan borðs, á ekki að þurfa að svara fyrir mína hegðun.“

Kolbeinn seg­ist einn bera ábyrgð á sinni hegðun, honum þyki leitt hvernig hann hafi hagað sér og biðst afsök­unar á því. „Það góða kom út úr þessu öllu að ég er að leita mér aðstoðar til að ráða betur við sam­skipti og tengsl og mun halda því áfram. Það er hins vegar best fyrir öll að ég boði brott­för mína úr hinu opin­bera rými í haust. Ég dreg fram­boð mitt í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík til baka og verð því ekki í fram­boði í kosn­ing­unum. Ég þakka öllu því góða fólki sem hvatti mig og studdi og þykir leitt að valda því von­brigðum.“

Stöðuuppfærsla Kolbeins í heild sinni:

„Ég hef í all nokkur ár átt í erf­ið­leikum með að mynda náin tengsl. Kemur þar ýmis­legt til, en í grunn­inn held ég að undir búi varn­ar­mek­an­ismi. Meðvitað og ómeð­vitað er ég svo log­andi hræddur við að verða særður að sú til­finn­ing tekur yfir. Á sama tíma er ég hrif­næmur og þegar við bæt­ist löngun og von til að verða ekki einn, hafa ný sam­bönd við hitt kynið stundum farið af stað eins og flug­eldar. Allt er gott og ég sann­færður um að nú sé ég kom­inn á þann stað að geta myndað ný og var­an­leg tengsl.

En svo hef ég rek­ist á vegg. Það getur verið ein­hver ákveð­inn við­burður sem það kveikir eða bara að eitt­hvað rennur upp innra með mér. Ég dreg tjöldin fyrir, verð kaldur og fjar­lægur og reyni að koma mér í burtu.

Með þessu hef ég komið illa fram við konur. Ég hef gefið til kynna lang­tíma­sam­band, byggt á heitum og djúpum til­finn­ingum. Og þær hafa verið það. En svo hleyp ég í felur, brest undan. Hugsa meira um að verja mig mögu­legum skaða en það hvernig ég kem fram. Geri það því illa, kem illa fram. Læt kon­unum líða eins og þær hafi ekki skipt mig máli, sem er kol­rangt. Að þær geri það ekki lengur, sem er líka kol­rangt. Skríð inn fyrir skel­ina mína og í öryggið og ein­mana­leik­ann þar.

Á sama tíma hef ég oft og tíðum verið svo ein­mana að sú til­finn­ing hefur á stundum hel­tekið mig að ég verði alltaf einn. Minn mesti ótti er að ég sé dæmdur til að vera einn af því að ég geti ekki gefið það af mér sem þarf til að koma í veg fyrir einmitt það.

Ég hef mína djöfla að draga og ýmis­legt óupp­gert úr for­tíð­inni. Und­an­farna mán­uði hef ég fundið að eitt­hvað sé að breyt­ast innra með mér, ég er að verða opn­ari og óhrædd­ari, í minni vörn. Þegar mér svo barst til eyrna að hegðun mín hefði valdið konu mik­illi van­líðan varð ég fús til að leita mér aðstoðar vegna þessa. Ég vil ekki koma þannig fram að öðru fólki líði illa. Ég vil ekki sýna af mér hegðun sem konur upp­lifa sem óeðli­lega.

[links]Nú er mikil og þörf bylgja í gangi þar sem konur segja frá. Það er aðdá­un­ar­vert að þær geri það og ég vona inni­lega að gott komi út úr því. Á dög­unum var leitað til fagráðs VG með kvart­anir vegna hegð­unar minnar. Það ferli sem þá fór af stað opn­aði augu mín fyrir því að ýmis­legt hefur verið ábóta­vant í minni hegðun. Ég ákvað engu að síður að gefa kost á mér í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík. Umræða und­an­far­inna daga hefur hins vegar gert það að verkum að ég hef end­ur­skoðað þá ákvörðun.

Ég er hluti af valda­kerf­inu og ég er hluti af fem­inískum flokki sem á alltaf að standa með konum. Ég held að ég geti ekki staðið bæði með mér og kon­unum sem líður illa mín vegna á meðan ég er í fram­boði fyrir VG. Og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, eða nokkur þar innan borðs, á ekki að þurfa að svara fyrir mína hegðun.

Á henni ber ég einn ábyrgð. Mér þykir leitt hvernig ég hef hagað mér, ég biðst afsök­unar á því. Það góða kom út úr þessu öllu að ég er að leita mér aðstoðar til að ráða betur við sam­skipti og tengsl og mun halda því áfram. Það er hins vegar best fyrir öll að ég boði brott­för mína úr hinu opin­bera rými í haust. Ég dreg fram­boð mitt í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík til baka og verð því ekki í fram­boði í kosn­ing­unum. Ég þakka öllu því góða fólki sem hvatti mig og studdi og þykir leitt að valda því von­brigðum.

Ég hef ýmis­legt að læra og mun leggja mig fram við að verða að betri manni. Ég vona að þessi ákvörðun mín verði til ein­hvers góðs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár