Næst stærsti lífeyrissjóðurinn býður nú upp á breytileg óverðtryggð íbúðalán

Tveir af þremur stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins bjóða nú upp á óverð­tryggð breyti­leg íbúða­lán sem eru á sam­bæri­legum eða betri kjörum en þau sem bank­arnir bjóða. Það er mikil kúvend­ing en lán­tak­endur hafa flykkst frá sjóð­unum til banka und­an­farið.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, ákvað í síð­ustu viku að stofna nýjan lána­flokk sjóðs­fé­laga­lána og lánar nú óverð­tryggð lán til íbúð­ar­kaupa með breyti­legum vöxtum. Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­kaup­endum síð­ast­liðin ár.

Samkvæmt frétt á heima­síðu sjóðs­ins hefur verið boðið upp á lánin frá því í byrjun viku og þau bera 3,85 pró­sent vexti. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna lánar fyrir 70 pró­sent af kaup­verði hús­næðis og því eru lánin með sömu kjör og næst ódýr­ustu óverð­tryggðu íbúða­lán íslenskra banka á breyti­legum vöxtum, en Lands­bank­inn rukkar 3,85 pró­sent vexti á sín lán. Eini bank­inn sem býður upp á skap­legri vexti á slíku láni er Íslands­banki, sem lánar fyrir 70 pró­sent af kaup­verði á 3,8 pró­sent vöxtum. Arion banki býður svo breyti­lega óverð­tryggða vexti á 3,89 pró­sent kjörum.

Gildi, þriðji stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, býður bestu óverð­tryggðu kjörin sem stendur, 3,45 pró­sent vexti, og Brú líf­eyr­is­sjóður býður upp á 3,8 pró­sent vexti. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, er því eini af stærstu sjóð­unum sem býður ekki upp á óverð­tryggða breyti­lega vexti á sjóðs­fé­lags­lánum sem stendur. Saman eiga þessir þrír sjóðir: LSR, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi rúm­lega helm­ing af allri hreinni eign íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Sú þróun sem var um langt skeið, að íslensku bank­arnir buðu upp á hag­stæð­ustu óverð­tryggðu vext­ina, hefur því snú­ist við. Nú eru líf­eyr­is­sjóð­irnir aftur búnir að taka for­ystu þar. Samhliða hefur hægst veru­lega á þeirri þróun að lands­menn færi hús­næð­is­lánin sín frá líf­eyr­is­sjóðum yfir til bank­anna.

Bankarnir hafa sankað að sér viðskiptum

Um mitt þetta ár voru bank­arnir komnir með 67 pró­sent af öllum útistand­andi lánum til íbúð­ar­kaupa hér­lendis. Mark­aðs­hlut­deild þeirra hafði stór­auk­ist á skömmum tíma, sér­stak­lega eftir að stýri­vextir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent og lang­hag­stæð­ast var fyrir lán­tak­endur að taka óverð­tryggð lán hjá þeim. Til sam­an­burðar var hlut­deild bank­anna af íbúða­lánum á Íslandi 55 pró­sent í lok apríl í fyrra.

Á sama tíma hafa ný útlán líf­eyr­is­sjóða dreg­ist saman um 63 millj­arða króna, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum.

Hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af heild­ar­­í­­búða­lánum til heim­il­anna var 27,5 pró­­sent í jan­úar í fyrra. Í ágúst síð­­ast­liðnum var það hlut­­fall hins vegar komið upp í 50,2 pró­­sent. Í nýlegri mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um íbúða­mark­að­inn er bent á að eftir því sem hlut­­deild óverð­­tryggðra íbúða­lána eykst sé við­­búið að miðlun pen­inga­­stefnu Seðla­­bank­ans verði virk­­ari. „Breyt­ingar á stýri­vöxtum munu hafa meiri áhrif á hag­­kerfið í heild þegar stærra hlut­­fall af heild­ar­­í­­búða­lánum til heim­il­anna eru óverð­­tryggð þar sem óverð­­tryggðir vextir eru næm­­ari fyrir stýri­­vaxta­breyt­ing­­um. Þessi þróun getur leitt til þess að Seðla­­bank­inn þurfi ekki að hækka vexti eins mikið til að slá á eft­ir­­spurn og ef hlut­­fall óverð­­tryggðra lána væri lægra.“

Sóknin í fast­­vaxta­lánin eftir að vextir tóku að hækka er líka nokkuð skýr í töl­unum sem HMS birtir í skýrsl­unni sinni. Þar kemur fram að í ágúst hafi 61 pró­­sent af nýjum óverð­­tryggðum útlánum inn­­láns­­stofn­ana til heim­il­anna verið fast­­vaxta­lán á meðan 39 pró­­sent voru á breyt­i­­legum vöxt­­um. „Aukn­ing á hlut­­falli fast­­vaxta­lána bendir til þess að heim­ilin búist við tölu­verðum vaxta­hækk­­unum þar sem bilið á milli fastra vaxta og breyt­i­­legra er breitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár