Samfylkingin vill tvenns konar hvalrekaskatt til að hjálpa heimilum landsins

Lagt er til að reglur verði end­ur­skoð­aðar til að koma í veg fyrir að hluti þjóð­ar­innar geti kom­ist undan því að greiða skatt, að við­bót­ar­fjár­magnstekju­skatti verði komið á og að við­bót­ar­veiði­gjald verði inn­heimt af stærstu útgerðum lands­ins.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður tillögunar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unar. Mynd: Eyþór Árnason

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um sam­stöðu­að­gerðir vegna verð­bólgu og vaxta­hækk­ana. Þing­menn­irnir, sem eru sex tals­ins, vilja að sett verði á leigu­bremsa að danskri fyr­ir­mynd, að vaxta­bóta­kerf­inu verði beitt til að styðja við lág­tekju- og milli­tekju­heim­ili sem glími við mikla greiðslu­byrði vegna hús­næð­is­lána og að barna­bóta­kerfið verði styrkt og skerð­ing­ar­mörk hækkuð til að mæta hækk­unum á nauð­synja­vörum fyrir fjöl­skyldur.

Þá vilja þau að ráð­ist verði í aðgerðir á tekju­hlið rík­is­fjár­mála til að sporna við þenslu, auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu og bæta afkomu rík­is­sjóðs. „Skatt­mats­reglum verði breytt til að sporna við því að launa­tekjur séu rang­lega taldar fram sem fjár­magnstekjur, inn­leiddir verði tíma­bundnir hval­reka­skattar með við­bót­ar­fjár­magnstekju­skatti og sér­stöku álagi á veiði­gjöld þeirra útgerða sem halda á mestum fisk­veiði­kvóta. [...] Samtals gætu þessar skatt­breyt­ingar aukið tekjur rík­is­sjóðs um 10 til 12 millj­arða á næsta ári, standa undir þeim stuðn­ingi við heim­ilin sem boð­aður er og gott betur. Þannig eru heild­ar­á­hrif þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar afkomu­bæt­andi fyrir rík­is­sjóð og til þess fallin að draga úr þenslu og auka aðhalds­stig rík­is­fjár­mál­anna.“

Í til­lög­unni, sem Kristrún Frosta­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður á, er farið fram á að rík­is­stjórn Íslands leggi fyrir Alþingi nauð­syn­leg laga­frum­vörp til að hrinda þessum aðgerðum í fram­kvæmdu eigi síðar en 1. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Ríkasta fólkið hefur aukið ráðstöfunartekjur sínar mest

Í grein­ar­gerð sem fylgir með til­lög­unni er farið yfir efna­hags­á­standið og bent á að Seðla­bank­inn spái tæp­lega ell­efu pró­sent verð­bólgu í lok árs. Til að takast á við hana hafi Seðla­banki Íslands ráð­ist í stór­tækar vaxta­hækk­anir, úr 0,75 pró­sent um mitt ár 2021 í 5,75 pró­sent nú, sem hafi hækkað greiðslu­byrði lána umtals­vert.

Þá er bent á að þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gekk yfir hafi það verið ein­beitt stefna stjórn­valda að halda hag­kerf­inu gang­andi með því að örva eigna­mark­aði gegnum banka­kerfið. „Miklar og hraðar vaxta­lækk­anir sam­hliða auknu svig­rúmi fjár­mála­stofn­ana til útlána, m.a. vegna lækk­unar á eig­in­fjár­kröfum bank­anna, fólu í sér að skrúfað var frá gríð­ar­legu magni láns­fjár­magns sem rataði nær alfarið inn á eigna­mark­aði, fyrst og fremst íbúða­markað, í stað þess að styðja við und­ir­liggj­andi fram­leiðslu­getu í þjóð­fé­lag­inu. Minna fjár­magn rann til upp­bygg­ingar hús­næðis á tímum heims­far­ald­urs­ins. Þannig stórjókst eft­ir­spurn meðan fram­boð hreyfð­ist lítið og gríð­ar­legt ójafn­vægi skap­að­ist á íbúða­mark­aði.“

Nið­ur­staðan var sú að eignir hækk­uðu mikið í verði í far­aldr­inum og aukið aðgengi að lánsfé ásamt lágum fjár­magns­kostn­aði örv­aði sam­hliða verð­bréfa­mark­aði. Fyrir vikið hafi fjár­magnstekjur auk­ist um 52 pró­sent á síð­asta ári, sem er mesta aukn­ing milli ára frá árinu 2007.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að sá hópur sem jók fjár­magnstekjur sínar mest allra var tekju­hæsta tíund lands­manna. Hjá þeim heim­ilum í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­uðu ráð­stöf­un­ar­tekjur að með­al­tali um ríf­lega tíu pró­sent, að lang­mestu leyti vegna auk­inna fjár­magnstekja. Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna ein­stak­linga hækk­aði að með­al­tali um 5,1 pró­sent í fyrra.

Alls um níu pró­­sent þeirra sem telja fram skatt­greiðslur á Íslandi fá yfir höfuð fjár­­­magnstekj­­ur. Fjár­­­magnstekju­skattur er líka 22 pró­­­­sent, sem er mun lægra hlut­­­­fall en greitt er af t.d. launa­­­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­­­sent eftir því hversu háar tekj­­­­urnar eru.

Í Mán­að­ar­yf­ir­liti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) sem birt var í ágúst kok fram að skatt­byrði haf heilt yfir auk­ist í fyrra þegar hún er reiknuð sem hlut­fall tekju- og fjár­magnstekju­skatts af heild­ar­tekj­um. Hún fór úr 22,4 pró­sent af heild­ar­tekjum í 23,4 pró­sent.

Skatt­byrði efstu tíund­ar­innar dróst hins vegar sam­an. Árið 2020 borg­aði þessi hópur 28,9 pró­sent af tekjum sínum í skatta en 27,3 pró­sent í fyrra. Skatt­byrði allra ann­arra hópa, hinna 90 pró­sent heim­ila í land­inu, jókst á sama tíma.

Greiðslubyrði hækkað um rúmlega 100 þúsund krónur

Í grein­ar­gerð­inni segir að tveir af æðstu ráða­mönnum þjóð­ar­innar í fjár­málum, seðla­banka­stjóri og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafi borið út þann boð­skap á tímum heims­far­ald­urs að Ísland væri að stíga inn í nýtt lág­vaxta­tíma­bil sem myndi vara lengi. „Fjármála- og efna­hags­ráð­herra rak sína kosn­inga­bar­áttu haustið 2021 meðal ann­ars á þeim skila­boðum að hag­stjórnin undir hans hand­leiðslu hefði leitt af sér lágt vaxta­stig en ekki að um tíma­bundna kreppu­vexti væri að ræða. Þau skila­boð voru send út til fyrstu kaup­enda, ungs fólks og lág­tekju­fólks, sem loks­ins sá sér fært að kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn, að lág­vaxtaum­hverfið væri komið til að vera. Ein­stak­lingar komust í gegnum greiðslu­mat á þessum for­sendum en sama fólk sér nú fram á stór­aukna greiðslu­byrði vegna snar­breyttra aðstæðna í efna­hags­líf­inu.“

Alls hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 49,7 pró­sent frá því fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Það er langt umfram verð­bólgu og þýðir að meira fé þarf til að kaupa hús­næði en áður. Það þarf líka meiri skuldir. Þegar vextir á þeim hækka skarpt þarf að borga meira til að þjón­usta þær skuldir.

Á vef ASÍ fyrr í þessum mán­uði var fjallað um þessar hækk­anir á greiðslu­byrði hús­næð­is­lána. Þar var tekið dæmi af aðila sem keypti 90 fer­metra íbúð í Kópavogi vorið 2021 og borg­aði fyrir hana 54 millj­ónir króna. Gert var ráð fyrir að við­kom­andi hafi átt fimmt­ung í útborgun og hafi því þurft að taka 43,2 milljón króna lán. „Við kaup var greiðslu­byrði á lán­inu 164 þús­und krónur á mán­uði. Í dag eru breyti­legir vextir á óverð­tryggðum lánum orðnir sjö pró­sent eftir nýj­ustu hækkun stýri­vaxta. Greiðslu­byrði er í dag 266 þús­und krónur á mán­uði og hefur hækkað um 102 þús­und krónur.“

Forsendubrestur á ábyrgð stjórnvalda

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar segja að ábyrgð stjórn­valda á þessu ástandi sé aug­ljós, enda hafi ákveð­inn for­sendu­brestur átt sér stað vegna falskra vænt­inga sem for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar hefur alið á. „Farin var sú leið að hvetja fólk fyrst og fremst til auk­innar lán­töku í stað þess að ráð­ast að rótum hús­næð­is­vand­ans með því að leggja meira fjár­magn inn í upp­bygg­ingu hús­næðis á við­ráð­an­legum kjörum og halda þannig aftur af verð­hækk­unum.“

Til að bregð­ast við þessu þurfi að setja á leigu­bremsu að danskri fyr­ir­mynd, en leigu­bremsan sem stjórn­ar­meiri­hlut­inn í Danmörku hefur komið sér saman um að inn­leiða gildir jafnt um núver­andi og til­von­andi leigu­samn­inga og mið­ast við fjögur pró­sent á ári.

Þá vill þing­flokk­ur­inn að milli­færslu­kerfi verði styrkt þannig að eigna­skerð­ing­ar­mörk vaxta­bóta­kerf­is­ins verði hækkuð um 25 pró­sent eða að ráð­ist verði í sér­staka vaxta­nið­ur­greiðslu með svip­uðum hætti og gert var við álagn­ingu opin­berra gjalda árin 2011 og 2012. Nið­ur­greiðslan þá nam 0,6 pró­sent af skuldum vegna íbúða­hús­næðis til eigin nota, var tekju- og eigna­tengd en gat hæst orðið 300 þús­und krónur hjá hjónum. Samhliða efl­ingu vaxta­bóta­kerf­is­ins er lagt til að leitað verði leiða til að koma til móts við fólk með íþyngj­andi greiðslu­byrði vegna tekju­tengdra náms­lána og hús­næð­is­lána.

Þá er lagt til að barna­bóta­kerfið verði styrkt til að mæta hækk­unum á nauð­synja­vörum fyrir fjöl­skyldur og skerð­ing­ar­mörk hækkuð. „Til langs tíma skiptir miklu að komið verði á fót sterkara barna­bóta­kerfi á Íslandi að nor­rænni fyr­ir­mynd. Rann­sóknir hafa marg­sýnt að sterk almenn barna­bóta­kerfi með við­bót­ar­stuðn­ingi við ein­stæða for­eldra eru best til þess fallin að draga úr barna­fá­tækt til langs tíma.“

Leggja til tvenns konar hvalrekaskatt

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar leggur til að ráð­ist verði í skatt­kerf­is­breyt­ingar sem eigi að geta aukið tekjur rík­is­sjóðs um tíu til tólf millj­arða króna á árinu 2023 og þannig staðið undir þeim stuðn­ingi sem ráð­ast þurfi í fyrir heim­ili í land­inu og gott betur. Þannig séu heild­ar­á­hrif þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar afkomu­bæt­andi fyrir rík­is­sjóði og til þess fallin að draga úr þenslu og auka aðhalds­stig rík­is­fjár­mál­anna.

[links]Þær breyt­ingar sem lagt er til að farið verði í eru í fyrsta lagi að skatt­mats­reglur verði end­ur­skoð­aðar með það fyrir augum að girða fyrir að atvinnu­tekjur séu taldar rang­lega fram sem fjár­magnstekjur. Ekki er um skatt­breyt­ingu að ræða heldur verið að kom­ast hjá skatt­und­anskotum, og áætlað hefur verið að þessi breyt­ing geti skilað rík­is­sjóði þremur til átta millj­örðum króna á ári í tekjur.

Þá er lagt til að lagður verði á hval­reka­skattur af tvennum toga. „Annars vegar að við­bót­ar­fjár­magnstekju­skattur verði settur á til að bregð­ast við ójafnri dreif­ingu auk­inna ráð­stöf­un­ar­tekna eftir að vextir voru lækk­aðir og kynt var undir bólu­myndun á eigna­mörk­uðum í heims­far­aldr­inum. Í ljósi þess hvernig frí­tekju­mörk vegna fjár­magnstekna hafa þró­ast á und­an­förnum árum mun slík hækkun ein­vörð­ungu lenda á allra tekju­hæstu hóp­unum. Hins vegar er lagt til að veiði­gjöld þeirra útgerða sem halda á mestum fisk­veiði­kvóta verði hækkuð með tíma­bundnu stærð­ar­á­lagi. Fjár­magns­eig­endur hafa hagn­ast á und­an­förnum árum vegna aðgerða stjórn­valda og útflutn­ings­greinar auk þess hagn­ast vegna breyttra við­skipta­kjara í tengslum við stríðið í Úkraínu. Þannig hefur verð á ferskum fiski í Evrópu til að mynda hækkað mikið og stutt við verð­mæti sjáv­ar­af­urða sem og tekjur og hagn­aður Lands­virkj­unar vegna hækk­unar á álverði. Á sama tíma hefur hluti heim­il­anna í land­inu liðið fyrir erlenda verð­bólgu vegna stríðs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár