Segja laun flugmanna Icelandair ekki vera hærri en gengur og gerist

FÍA hafnar því að laun flug­manna Icelandair séu ekki sam­bæri­leg því sem gengur og ger­ist hjá öðrum flug­fé­lögum. Þrýst er á þá að lækka laun flug­manna í þeim aðgerðum sem nú standa yfir til að reyna að bjarga félag­inu.

Jón Þór Þorvaldsson er formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og varaþingmaður Miðflokksins.
Jón Þór Þor­valds­son er for­maður Félags íslenskra atvinnu­flug­manna og vara­þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Félag íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) segja að flug­menn Icelandair séu ekki hærri en ger­ist á hinum alþjóð­lega mark­aði sem félagið starfi heldur sam­bæri­leg og þau sem greidd eru hjá öðrum flug­fé­lögum. Þá sé rangt að flug­menn WOW air hafi verið með mun lægri laun en flug­menn Icelandair. „Það er bæði ósann­gjarnt og vill­andi að velta ábyrgð­inni á fram­tíð flug­fé­lags­ins að mestu yfir á starfs­fólk þess. Rekstr­ar­vandi Icelandair er flókið sam­spil ytri og innri þátta og flug­menn ætla að taka þátt í að leysa úr þeim vanda með fyr­ir­tæk­inu á næstu mán­uðum.“

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem FÍA sendi frá sér í dag. Undir hana skrifar Jón Þór Þor­valds­son, for­maður félags­ins og vara­þing­maður Mið­flokks­ins. Tilefnið eru fréttir sem birt­ust í lok viku um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair. Í Við­skipta­blað­inu á fimmtu­dag var því haldið fram að laun flug­manna Icelandair væru 20 til 30 pró­sent hærri en laun flug­manna WOW air hefðu verið.

Í til­kynn­ingu sem Icelandair sendi frá sér í gær, þar sem greint var frá því að félagið ætl­aði í hluta­fjár­út­boð til að bregð­ast við þeirri þröngu stöðu sem það er í um þessar mundir vegna algjörs tekju­falls, kom fram að for­senda fyrir „hluta­fjár­út­boði hjá félag­inu er að tryggja sam­keppn­is­hæfni félags­ins til lengri tíma lit­ið. Fyr­ir­hugað útboð er því háð því að við­ræður við stétt­ar­fé­lög skili árangri.“ Þær við­ræður snú­ast um að lækka launa­kostnað Icelandair.

Segjast hafa sýnt vilja í verki

Í yfir­lýs­ingu FÍA segir að nýt­ing flug­manna hjá Icelandair gæti verið betri en að vand­ann megi að stærstu leyti rekja til kyrr­setn­ingar á Boeing 737 Max-vélum félags­ins og breyt­inga sem gerðar hafi verið á leiða­kerfi þess. „Kjara­samn­ingar flug­manna Icelandair koma ekki í veg fyrir nýt­ingu starfs­krafta þeirra til jafns við það sem best ger­ist erlendis.“

[adspot]Flugmenn hafi nú þegar sýnt vilja í verki og frestað umsömdum launa­hækk­unum í fyrra og fram­lengt kjara­samn­ing án launa­hækk­ana. Auk þess hafi þeir flug­menn sem hafa ekki sætt upp­sögn tekið á sig 50 pró­sent launa­skerð­ingu í apríl og maí. „Þá er ótal­inn fjöldi und­an­þága frá ákvæðum kjara­samn­ings og reglu­gerða vegna COVID-19 ástands­ins og fleiri til­fallandi þátta.“

Nú þegar hafi 23 pró­sent flug­manna Icelandair verið sagt upp og fleiri verið boð­aðar.

Samkvæmt tekju­blaði Frjálsrar versl­unnar í fyrra var tekju­hæsti flug­stjór­inn sem starf­aði hjá Icelandair á árinu 2018 með 3,1 milljón króna að með­al­tali í mán­að­ar­laun.

Vildu að fólk með yfir milljón í laun fengi fullar bætar

Fjöl­margir flug­menn, og aðrir starfs­menn Icelandair, eru nú á hluta­bótum. Það þýðir að íslenska ríkið greiðir hluta launa þeirra úr Atvinnu­trygg­ing­ar­sjóði. Alls er hægt að fá 75 pró­sent launa sinna greiddan með þessum hætti upp á 700 þús­und krónum.

FÍA lagði til breyt­ing­ar­til­lögu við lögin áður en þau voru sam­þykkt. Tillagan fól í sér að hálauna­fólk myndi fá greiddar fullar atvinnu­leys­is­bætur ofan á þau laun sem atvinnu­rek­andi þeirra greiddi þeim næstu mán­uð­i.

[adspot]Sam­kvæmt til­lög­unni átti til dæmis sá sem var með tvær millj­ónir króna í laun, en myndi fara í 50 pró­sent starf hjá atvinnu­rek­anda, fá eina milljón króna frá honum áfram en fullar atvinnu­leys­is­bæt­ur, 456.404 krónur á mán­uði, úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á meðan að lög um hluta­bætur yrðu við lýð­i. Þá vildi FÍA að þak á greiðslur yrði afnumið.

Í rök­stuðn­ingi félags­ins sagði meðal ann­ars að um eins­konar brú til skemmri tíma væri að ræða, ekki var­an­lega ráð­stöfun. Með því að fella út hámarks­sam­tölu launa og bóta­fjár­hæða, en til­taka ein­ungis hámark bóta­fjár­hæð­ar, myndu líkur aukast á þátt­töku í úrræð­inu og fleiri aðilar myndu halda starfi með þátt­töku atvinnu­rek­enda, sem að öðrum kosti myndu missa starf sitt og leggj­ast af fullum þunga á Ábyrgð­ar­sjóð launa án þess að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda kæmi til. „Þessi til­tekni hópur greiðir nú og hefur um langan tíma greitt af launum sínum skatta og gjöld til sam­fé­lags­ins. Þeir ættu því að njóta bóta­réttar til jafns við aðra í þennan stutta tíma[...]Þessi hópur launa­fólks greiðir hæst hlut­fall skatta hvort sem miðað er við krónu­tölu eða hlut­fall launa og því er það sann­girn­is­sjón­ar­mið að þetta fólk sitji við sama borð og aðrir hópar þegar kemur að rétti til bóta­fjár­hæða.[...]Um mjög mörg verð­mæt störf er að ræða. Sem dæmi má nefna störf í flug­iðn­að­i.“

Undir umsögn­ina þar sem til­lagan var lögð til skrif­aði for­maður FÍA.

Tillagan var ekki tekin til greina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár