TM ætlar að verða banki

Trygg­inga­fé­lagið TM ætlar sér að skora stóru bank­anna þrjá á hólm með því að hefja banka­rekstur. Ekki verður stefnt að því að stofna alhliða banka heldur finna syllu á mark­aðnum.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.
Sigurður Við­ars­son, for­stjóri TM. Mynd: TM

Trygg­inga­fé­lagið TM von­ast til þess að fá við­skipta­banka­leyfi næsta sumar. Kaup félags­ins á fjár­mögn­un­ar­fé­lag­inu Lykli, sem mun rúm­lega tvö­falda efna­hag TM, eru liður í þeirri veg­ferð að breikka rekstr­ar­grunn félags­ins og væra hann nær banka­starf­semi. Þetta kemur fram í við­tali við Sigurð Við­ars­son, for­stjóra TM, í Mark­að­unum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti og efna­hags­mál, í dag.

Þar segir Sigurður að TM hafi áhuga á að koma á fót banka sem skori stóru bank­anna á hólm. „Sá banki væri ekki með þung­lama­lega yfir­bygg­ingu eða for­tíð­ar­vanda á borð við gömul tölvu­kerfi, eins og stóru bank­arnir þrír. Það er lúxus að geta byrjað frá grunni.“

Hann segir við Mark­að­inn að hann hafi ekki áhuga á að stofna alhliða banka heldur að TM muni finna sína syllu á mark­aðnum. „Til við­bótar við þá þjón­ustu sem Lykill býður, sem er að stærstum hluta fjár­mögnun bíla og atvinnu­tækja, munum við byrja á að bjóða inn­lán.“

Nú stendur yfir hluta­fjár­aukn­ing í TM þar sem félagið er að selja nýja hluti í sér fyrir um þrjá millj­arða króna. Þeir fjár­munir fara í að greiða fyrir Lykil en meg­in­þorri þess kaup­verðs, sem er 9,25 millj­arðar króna, verður greitt með hand­bæru fé TM.

Með kaupum TM á Lykli verður til félag með heild­ar­eignir yfir 80 millj­örðum króna, og fjár­mögnun - þ.e. útlán og leigu­samn­ingar - verður stór hluti starf­sem­inn­ar. Þannig má segja að kaup TM séu hluti af hag­ræð­ingu á fjár­mála- og trygg­inga­mark­aði, þar sem fyr­ir­tæki stækka og sam­ein­ast, til að auka arð­semi.

Í við­tal­inu við Mark­að­inn segir Sigurður að þetta skref sé meðal ann­ars stigið til að bregð­ast við fyr­ir­sjá­an­legum sam­drætti á trygg­inga­mark­aði. Bíla­trygg­ingar séu umfangs­mesta var­ann á þeim mark­aði og það megi búast við að iðgjöld vegna þeirra drag­ist saman í nán­ustu fram­tíð með til­komu sjálf­keyr­andi bíla þar sem slíkir muni að öllum lík­indum lenda í mun fleiri óhöppum.

Stærsti eig­andi TM er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir með tæp­lega tíu pró­sent eign­ar­hlut en svo koma þrír stórir líf­eyr­is­sjóðir: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Birta og LSR með sam­an­lagt tæp­lega þriðj­ungs­hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár