Laun flugmanna 30 prósent af heildarlaunakostnaði Icelandair

Bogi Nils Bogason for­stjóri Icelandair Group sagði á starfs­manna­fundi félags­ins í dag að launa­kostn­aður flug­manna væri um 30 pró­sent af heild­ar­launa­kostn­aði félags­ins. Icelandair vill fá meira vinnu­fram­lag frá flug­stétt­unum.

Bogi Nils Bogason ræddi við starfsmenn Icelandair um stöðu mála á fjarfundi kl. 15 í dag.
Bogi Nils Bogason ræddi við starfs­menn Icelandair um stöðu mála á fjar­fundi kl. 15 í dag. Mynd: Skjáskot/RÚV

Bogi Nils Bogason for­stjóri Icelandair Group er bjart­sýnn á að nýir kjara­samn­ingar náist við flug­menn og flug­freyjur, þó að „því miður“ hafi við­ræður ekki enn borið árangur. Hann telur kjara­samn­inga við flug­stétt­irnar bæði „gamla og flókna“. Þetta kom fram í máli Boga á starfs­manna­fundi á innri vef Icelandair í dag.

Þar sagði hann, aðspurður, að launa­kostn­aður vegna flug­manna og flug­stjóra hjá félag­inu væri um 30 pró­sent af heild­ar­launa­kostn­aði félags­ins og launa­kostn­aður vegna flug­freyja væri um 20 pró­sent. Í fyrra störf­uðu yfir 4.700 manns að með­al­tali hjá Icelandair, þar af á milli 550 og 650 flug­menn eða -stjórar og um 1.000 flug­freyjur.

Á starfs­mann­na­fund­inum sagði for­stjór­inn að kröfur Icelandair í samn­ings­við­ræðum við flug­stétt­irnar tvær lúti að því að vinnu­fram­lag starfs­manna auk­ist, en að stefnan sé ráð­stöf­un­ar­tekjur fólks minnki sem minnst og jafn­vel auk­ist, þannig að Icelandair verði áfram „frá­bær og eft­ir­sókn­ar­verður vinnu­staður“.

Bogi Nils sagð­ist skilja vel að það væri erfitt að gefa eftir rétt­indi sem fólk hefði náð fram í kjara­samn­ingum, en Icelandair teldi að það væri að bjóða vel og störf hjá fyr­ir­tæk­inu yrðu áfram eft­ir­sókn­ar­verð.[links]

Tilboðum frá Icelandair hefur verið tekið fálega af stétt­ar­fé­lögum flug­stétt­anna, Flug­freyju­fé­lagi Íslands og Félagi íslenska atvinnu­flug­manna.

Launin samkeppnishæf en vinnuframlagið minna

Bogi sagði á fund­inum að hann teldi laun flug­stjóra og flug­manna félags­ins sam­keppn­is­hæf og í takt við það sem ger­ist hjá sam­an­burð­ar­flug­fé­lögum á Norð­ur­lönd­unum, en að á móti kæmi að hjá sam­an­burð­ar­flug­fé­lögum væri vinnu­fram­lag flug­manna meira. Bogi nefndi að þau flug­fé­lög sem Icelandir liti til í slíkum sam­an­burði væru til dæmis Air Lingus, Jet Blue, SAS og Finnair.

Heilt yfir sagði for­stjór­inn að það væri fleira sem mætti vera sterkara hjá flug­fé­lag­inu en bara launa­kostn­aður flug­stétt­anna og að það væri allt undir í þeim efnum, nú þegar að fyr­ir­tækið reynir að sann­færa fjár­festa um að leggja til allt að 29 millj­arða til þess að koma flug­fé­lag­inu yfir krís­una sem er í flug­heim­inum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Tækifæri fyrir þau félög sem lifa storminn af

Bogi Nils sagði Icelandair búa sig undir langt tíma­bil af mjög lít­illi fram­leiðslu og að erlendis væri það að sýna sig að flug­fé­lög væru ekki að kom­ast í gegnum þetta tíma­bil án aðstoðar frá rík­is­sjóði, en Icelandair er með vil­yrði fyrir lána­línum með rík­is­á­byrgð ef félag­inu tekst að safna fjár­munum frá fjár­festum í hluta­fjár­út­boði.

For­stjór­inn sagði ljóst að stóru lín­urnar í samn­inga­málum flug­stétt­anna þyrftu að liggja fyrir þegar hlut­hafar Icelandair koma saman til fundar 22. maí næst­kom­andi. Hann væri von­góður um að samn­ingar næð­ust.

Bogi Nils sagði jafn­framt að þegar heims­far­ald­ur­inn og áhrif hans á flug­geir­ann yrðu liðin hjá myndu tæki­færi blasa við þeim fyr­ir­tækjum sem næðu að standa af sér höggið.

Icelandair gæti orðið eitt þeirra, ef allt gengi að óskum, enda tæki það mörg ár að byggja upp flug­fé­lag með inn­viði eins og Icelandair hefði yfir að ráða, sér­stak­lega hvað varðar leiða­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár