Samherji eykur við hlut sinn í Nergård

Samherji hefur staðið í umfangs­miklum að und­an­förnu.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji á nú orðið 39,9 pró­sent hlut í norska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Nergård á móti 60,1 pró­sent hlut Norsk Sjømat.

Hámarks­eign erlendra aðila í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í Noregi er 40 pró­sent svo fyr­ir­tækið er komið alveg upp að efri mörkumum.

Árið 2014 eign­að­ist Samherji 22 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu og hefur því bætt við sig sem nemur tæp­lega 18 pró­sentum af heild­ar­hlutafé.

Í til­kynn­ingu vegna við­skipt­anna kemur ekki fram hvert kaup­verðið var í við­skipt­unum en umfang rekstrar Nergård, einkum í norð­ur­hluta Noregs, er umtals­vert og starfs­menn sam­tals 470.

Óhætt er að segja að Samherji hafi staðið í umfangs­miklum við­skiptum að und­an­förnu en fyri­tækið seldi helm­ings­hlut sinn í Olís þegar Hagar keypti félagið fyrir um 9,5 millj­arða króna.

Hagnaður Samherja á árinu 2015 nam 13,9 millj­örðum króna en á árinu 2014 nam hann 11,2 millj­örðum króna.

Í efna­hags­reikn­ingi eru eignir sam­stæð­unnar í lok árs 2015 sam­tals 119 millj­arðar króna. Heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar voru 36 millj­arðar á sama tíma og bók­fært eigið fé 83 millj­arðar króna.

Eig­in­fjár­hlut­fall sam­stæð­unnar var 69,8% í árs­lok 2015. Veltu­fjár­munir námu 38 millj­örðum og veltu­fjár­munir umfram skuldir 2,5 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár