Skuggahliðar íþróttanna

Þjálf­arar keppn­is­fólks í íþróttum beita ýmsum aðferðum við þjálfun­ina. Krafan um árangur hefur iðu­lega skugga­hliðar sem lítið er talað um og jafn­vel reynt að þegja í hel.

Fyrir tveimur vikum sýndi danska sjón­varpið, DR, þátt­inn ,,Svømmestjerner – Under overfla­den. Þessi þáttur fjall­aði um þær aðferðir sem þjálf­arar danska kvenna­lands­liðs­ins í sundi beittu um margra ára skeið, en ekki þó síður um afleið­ing­arnar sem aðferðir þjálf­ar­anna höfðu í för með sér.

Árið 2002 ákvað stjórn Danska Sund­sam­bands­ins að efla til muna þjálfun danska kvenna­lands­liðs­ins i sundi. Með nán­ari sam­vinnu við Team Danmark (stofnun sem hefur yfir­um­sjón með og styrkir fram­úr­skar­andi íþrótta­fólk) fékk Sund­sam­bandið mun meira fé til starf­sem­innar.

Í byrjun mars árið 2003 tók nýr þjálf­ari, Ástr­al­inn Mark Regan, við þjálfun dönsku lands­lið­anna í sundi. Mark Regan var þekktur sund­þjálf­ari og stjórn Danska sund­sam­bands­ins batt miklar vonir við ráðn­ingu hans. Á þessum tíma var æfinga­að­staða lands­lið­anna í Farum á Norð­austur-Sjálandi. Fljót­lega eftir að Mark Regan hóf störf kom í ljós að hann beitti öðrum aðferðum við þjálfun­ina en Danir áttu að venj­ast. Það hafði vissu­lega spurst út að þjálf­ar­inn væri skap­mik­ill en fæstir áttu von á að hann grýtti stólum og öðrum lausa­munum á sund­laug­ar­bakk­anum til og frá með til­heyr­andi hrópum. Það voru þó aðrir þættir í fari þjálf­ar­ans sem vöktu athygli ann­arra þjálf­ara sem unnu í sund­mið­stöð­ini í Farum.

Niðrandi ummæli og vigtað í allra viðurvist

Jens Frederik­sen var einn þeirra þjálf­ara sem dag­lega vann í sund­mið­stöð­inni þegar Mark Regan hóf störf. Eins og aðrir varð hann vitni að fram­komu og hátta­lagi nýja þjálf­ar­ans gagn­vart stúlkum í kvenna­lands­lið­inu. Síðla árs 2004 ákvað Jens Frederik­sen, eftir að hafa um nokk­urra mán­aða skeið fylgst með kollega sínum, að senda for­manni Danska sund­sam­bands­ins tölvu­póst. Þar lýsti hann áhyggjum sínum vegna fram­komu lands­liðs­þjálf­ar­ans sem nið­ur­lægði stúlk­urnar með ýmsum hætti. Þær voru allar skyld­aðar til að stíga á vigt­ina dag­lega, í allra aug­sýn, og svo dundu athuga­semdir þjálf­ar­ans á þeim. Hvort þær hefðu verið í rjóma­köku­kapp­áti í gær og annað í þeim dúr. Innan sund­sam­bands­ins giltu ann­ars þær reglur að hver og einn skyldi vigtaður í ein­rúmi (vigt­unin átti ekki að vera skylda) og þyngdin væri einka­mál. Jens Frederik­sen fékk aldrei svar við tölvu­póst­inum og ekk­ert breytt­ist. Jens Frederik­sen sagði síðar í við­tali að ekki hefði farið fram­hjá sér, og mörgum öðrum, að stúlk­unum í lands­liðs­hópnum liði ekki vel undir stjórn Mark Regan. Um sama leyti og Jens Frederik­sen sendi áður­nefndan tölvu­póst hætti Mette Jacobsen, ein besta sund­kona Dan­merkur fyrr og síðar, að æfa undir stjórn Mark Regan og fór að æfa undir stjórn ann­ars þjálf­ara í annarri sund­mið­stöð. Mette Jacobsen dró ekki dul á að hún hefði hætt að æfa með lands­lið­inu vegna fram­komu Mark Regan, við sig og aðrar stúlkur. Hún hætti keppn­issundi árið 2006, hafði þá unnið til 36 verð­launa á Evr­ópu­mótum og heims­meist­ara­mótum, þar af 10 gull­verð­launa.

Grunsemdir næringarráðgjafans

Í apríl árið 2005 voru Mark Regan þjálf­ari og Lars Sørensen íþrótta­stjóri kall­aðir á fund Önnu Ottesen, nær­ing­ar­ráð­gjafa Team Danmark. Á fund­inum lagði hún til að þegar í stað yrði hætt að vigta sund­kon­urnar. Hún sagð­ist ótt­ast, og teldi sig vita, að sumar stúlkn­anna bein­línis sveltu sig, af ótta við þjálf­ar­ann, og það gæti haft alvar­legar afleið­ingar, ekki síst á sál­ar­á­standið. Þjálf­ar­inn og íþrótta­stjór­inn sam­þykktu til­lögur nær­ing­ar­ráð­gjafans og Team Danmark sendi nýjar reglur varð­andi vigtun og fleira til allra þjálf­ara. Þessar reglur breyttu hins­vegar engu, Mark Regan fór sínu fram og eng­inn hjá sund­sam­band­inu lyfti svo­mikið sem litlafingri til að stöðva hátta­lag hans.

Átröskun, kvíði og þunglyndi

Áhyggjur Önnu Ottesen nær­ing­ar­ráð­gjafa reynd­ust á rökum reistar. Ein þeirra stúlkna sem aðferðir Mark Regan höfðu mikil áhrif á er Jeanette Ottesen. Eftir að hún hafði í þrjú ár æft undir stjórn Mark Regan hætti hún að mæta á æfingar undir hans stjórn. Þetta var árið 2006. Hún þjáð­ist þá af átröskun og þung­lyndi. Henni tókst þó að yfir­vinna erf­ið­leik­ana og byrj­aði aftur að æfa, fyrst á eigin spýtur en síðan með lands­lið­inu árið 2008, en þá hætti Mark Regan sem lands­liðs­þjálf­ari. Jeanette Ottesen hefur unnið til 50 alþjóð­legra verð­launa, fleiri en nokkur önnur dönsk sund­kona. Í við­tali við danska útvarpið fyrir skömmu sagði hún að aðeins hefði munað hárs­breidd að aðferðir Mark Regan hefðu eyði­lagt feril sinn.

Ekki allar jafn heppnar

Ekki voru allar stúlkur jafn heppnar og Jeanette Ottesen. Í áður­nefndum sjón­varps­þætti um sund­stjörn­urnar var rætt við nokkrar stúlkur sem voru í fremstu röð en brotn­uðu undan álag­inu og aðferðum Mark Regan. Ein þeirra er Kathrine Jørg­en­sen, hún var talin ein efni­leg­asta sund­kona Dan­merkur. Frásögn hennar um bar­áttu við þung­lyndi og átröskun er áhrifa­mikil. Eftir að hafa verið dvalið á geð­deild um skeið byrj­aði hún aftur að æfa, í Esbjerg. Þegar hún var kölluð til lands­liðsæf­inga komst hún fljótt að því að allt var við það sama, Mark Regan skip­aði öllum að stíga á vigt­ina og gerði athuga­semdir svo allir við­staddir heyrðu. Þetta var til þess að Katrhine Jørg­en­sen hætti algjör­lega allri sund­þjálfun og dvaldi aftur um skeið á geð­deild. Hún glímir enn við þung­lyndi.

Paulus Wildeboer og Michael Hinge

Mark Regan hætti, eins og áður sagði, sem lands­liðs­þjálf­ari árið 2008. Hafi sund­fólkið ímyndað sér að þá tæki annað og betra við varð­andi þjálfun­ina skjátl­að­ist því. Hol­lend­ing­ur­inn Paulus Wildeboer tók við sem lands­liðs­þjálf­ari og hann not­aði nákvæm­lega sömu aðferðir og Mark Regan hafði gert. Nið­ur­lægði stúlk­urnar og vigt­unin fór fram í allra aug­sýn með til­heyr­andi athuga­semdum. Og aðferð­irnar frá Mark Regan náðu ekki ein­ungis til lands­liðs­ins í flokki full­orð­inna. Daninn Michael Hinge sem tók við sem þjálf­ari ung­linga­lands­liðs­ins í sundi árið 2005 not­aði nákvæm­lega sömu aðferðir. Meðal þeirra sem voru undir hans stjórn sem þjálf­ara var Sidse Kehlet. Árið 2011, þegar hún var á fimmt­ánda ári, var Sidse Kehlet besta sund­kona Evrópu í sínum ald­urs­flokki. En hún fékk að kenna á aðferðum Michael Hinge. Í við­tali við DR sagði hún frá því að Michael Hinge hefði notað hvert tæki­færi til að gera grín að sér, kallað hana feitu Sidse. Hún tók aðfinnslur þjálf­ar­ans mjög nærri sér, gerði allt sem hún gat til að létt­ast en eftir að hún hafði misst 10 kíló á tveimur mán­uðum sagði lík­am­inn stopp. Hún þjáð­ist af átröskun og þung­lyndi og árið 2014, hætti hún allri sund­iðkun, að lækn­is­ráði. Sidse Kehlet glímir enn við þung­lyndi og er háð lyfjum.

Hér hafa aðeins verið nefnd nokkur dæmi en þau eru miklu fleiri.

Rétt er að nefna að frá árinu 2012 hefur reglum um vigtun sund­fólks, verið fylgt. Mark Regan býr í Ástralíu og er kom­inn á eft­ir­laun. Hann vildi ekki veita danska sjón­varp­inu við­tal en sagði þó við frétta­mann að hann teldi sig ekki hafa gert neitt rangt í starfi sínu.

Paulus Wildeboer lést árið 2014 og Michael Hinge starfar sem sund­þjálf­ari hjá Sund­fé­lag­inu í Holbæk á Sjálandi. Hann vildi ekk­ert segja þegar frétta­menn danska sjón­varps­ins höfðu sam­band við hann.

Sundsambandið getur engu svarað en ráðherra vill skýringar

For­svars­menn Danska sund­sam­bands­ins hafa litlu getað svarað þegar leitað hefur verið svara við því hvernig þetta, sem allir við­ur­kenna að átti sér stað, gat gerst. Sund­kon­urnar segja að þær hafi ein­fald­lega ekki þorað að segja neitt af ótta við að falla úr náð­inni. Mette Bock ráð­herra menn­ingar- og íþrótta­mála óskaði eftir skýr­ingum sund­sam­bands­ins en þótti þær ófull­nægj­andi og kall­aði full­trúa sund­fólks og sund­sam­bands­ins á sinn fund. Ráð­herr­ann seg­ist vilja tryggja að þetta sem átti sér stað hjá sund­sam­band­inu á árunum 2003 til 2012 geti ekki end­ur­tekið sig og vill fá afdrátt­ar­lausar skýr­ingar á aðgerða­leysi for­svars­manna sund­sam­bands­ins. ,,Það þarf að tala um hlut­ina en ekki þegja. Við viljum ná árangri en það má ekki kosta hvað sem er“ sagði ráð­herr­ann.

Þátt­ur­inn um sund­kon­urnar var sá fyrsti í þátta­röð danska sjón­varps­ins um íþrótta­fólk og átrask­anir. Í þátt­unum sem fylgdu í kjöl­farið kom fram að átrask­anir og þung­lyndi eru ekki bundin við sund­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár