Lestur Fréttablaðsins orðin 50 prósent - Prentmiðlar ráðandi á auglýsingamarkaði

Lestur Frétta­blaðs­ins, víð­lesn­asta dag­blaðs lands­ins, mæld­ist 50,01 pró­sent í sept­em­ber. Hann hefur aldrei mælst minni frá því að mæl­ingar á lestri blaðs­ins hófust. Frétta­blað­inu er dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum inn á heim­ili lands­ins sex daga vik­unnar. Lestur Morg­un­blaðs­ins, stærsta áskrif­ar­blaðs lands­ins, lækkar einnig lít­il­lega á milli mán­aða en fækkun les­enda þess það sem af er ári er innan skekkju­marka. Lestur blaðs­ins hefur heldur aldrei verið lægri sam­kvæmt mæl­ingum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Gallup á lestri prent­miðla sem birt var í gær.


Lestur DV, Frétta­tím­ans og Við­skipta­blaðs­ins hækk­aði lít­il­lega í síð­asta mán­uði en sú hækkun er í öllum til­fellum innan skekkju­marka. Við­skipta­blaðið er eini prent­mið­ill lands­ins sem virð­ist halda nokkuð stöð­ugum lestri þegar horft er yfir lengra tíma­bil. Sú þróun er í takt við það sem gerst hefur hjá sér­hæfð­ari syllu­miðlum í öðrum löndum, t.d. við­skipta­blað­inu Börsen í Danmörku.

Staða prent­miðla á Íslandi er samt sem áður mjög sterk og lest­ur­inn hár í alþjóð­legum sam­an­burði. Hlutfall þeirra aug­lýs­inga­tekna sem rata til prent­miðla hér­lendis er einnig mun hærra en ger­ist á flest öllum öðrum mark­aðs­svæðum.

Lestur lækkar mest hjá fólki undir fimmtugu


Lestur allra prent­miðla lands­ins lækk­aði hjá fólki undir fimm­tugu í sept­em­ber. Aldrei áður hefur lestur ald­urs­hóps­ins 18 til 49 ára á DV (5,16 pró­sent) og Morg­un­blað­inu (17,38 pró­sent) verið lægri en í þeim mán­uði. Og mikið fall hefur verið í lestri þess ald­urs­hóps á Frétta­tím­anum á síð­ustu mán­uðum. Í mars var hann 46,26 pró­sent en er nú 39,34 pró­sent, sem er það lægsta sem hann hefur nokkru sinni mælst. Lestur Frétta­tím­ans hjá Íslend­ingum undir fimm­tugu hefur því dreg­ist saman um 15 pró­sent á hálfu ári.

Lestur Frétta­blaðs­ins hefur fallið hraðar hjá fólki undir fimm­tugu á und­an­förnum árum en hjá eldri les­endum. Þegar best lét árið 2010 lásu um 64 pró­sent lands­manna Frétta­blaðið og hlut­fall les­enda undir fimm­tugu var nán­ast það sama, eða 63,75 pró­sent. Um mitt ár í fyrra var lest­ur­inn orð­inn 55,18 pró­sent hjá yngri hluta lands­manna og í sept­em­ber 2015 lásu 46,54 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu Frétta­blaðið. Lestur blaðs­ins hjá ald­urs­hópnum hefur því dreg­ist saman um 27 pró­sent á fimm árum.

Stór hluti auglýsinga til prentmiðla


Kjarninn fjall­aði ítar­lega um stöðu prent­miðla í sögu­legu sam­hengi í frétta­skýr­ingu í sept­em­ber. Þar kom fram að lestur þeirra hefur minnkað hratt á und­an­förnum árum. Þannig hefur heild­ar­lestur Morg­un­blaðs­ins dreg­ist saman um 35 pró­sent á sex árum, les­endum Frétta­blaðs­ins hefur fækkað um 22 pró­sent frá 2010 og lestur Frétta­tím­ans hefur aldrei verið lægri en hann er um þessar mundir. Þá hefur lestur á DV aldrei verið lægri en hann mæld­ist í ágúst 2015 í 40 ára sögu blaðs­ins.

Staða prent­miðla á Íslandi er samt sem áður afar sterk í alþjóð­legu sam­hengi og þeir taka enn til sín stóran hluta af ayg­lýs­inga­birt­ingum. Í tölum sem H:N Mark­aðs­sam­skipti sendu frá sér í byrjun októ­ber um stöð­una á íslenskum aug­lýs­inga­mark­aði kom fram að um sjö til átta millj­arðar króna fari í aug­lýs­inga­birt­ingar á ári á Íslandi.


Samkvæmt tölum sem Fjöl­miðla­nefnd birti í sept­em­ber, og byggði á upp­lýs­ingum frá stærstu birt­ing­ar­húsum lands­ins, fer 37,4 pró­sent birt­ing­ar­fjár á Íslandi til prent­miðla, 29,7 pró­sent fer til sjón­varps­stöða og 15,4 pró­sent til útvarps­stöðva. Tæplega 15 pró­sent fer til birt­ingar á aug­lýs­ingum á vef. Þar af fer 12,3 pró­sent til inn­lendra vefja og 2,6 pró­sent til erlendra, sér­stak­lega Facebook og Google. Um 50-60 pró­sent af allir veltu á aug­lýs­inga­mark­aði fer í gegnum birt­ing­ar­hús.

Allt önnur þróun en í Bretlandi og Bandaríkjunum


Þessi þróun er mjög í and­stöðu við það sem er að ger­ast víð­ast hvar ann­ars­staðar í heim­inum. Samkvæmt nýlegri spá eMar­keter mun birt­ingafé dreifast þannig í Bret­landi að meira fé verður varið í aug­lýs­ingar í snjall­símum og spjald­tölvum en í blaða­aug­lýs­ingar á þessu ári. Alls gerir spáin ráð fyrir að 20 pró­sent aug­lýs­inga­fjár fari í slíkar birt­ingar. Samkvæmt henni mun 49,6 pró­sent birt­ing­ar­fjár í Bret­landi fara til staf­rænna miðla á þessu ári og það hlut­fall mun vaxa upp í 57,5 pró­sent árið 2019. Á sama tíma gerir spáin ráð fyrir að prent­miðlar fái 16,4 pró­sent af heild­ar­kök­unni í ár og að það hlut­fall lækki niður í í 12,5 pró­sent árið 2019.

Í Banda­ríkj­unum gerir eMar­keter rá ðfyrir að um 38 pró­sent af birt­ing­arfé fari í sjón­varp á þessu ári, 31 pró­sent fari í staf­ræna miðla, tæp 16 pró­sent í prent­miðla og átta pró­sent í útvarp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár