Fimmtán prósent birtingarfjár ratar í vefauglýsingar - Um 40 prósent fer í prent

Alls fór 37,4 pró­sent birt­inga­fjár til prent­miðla á árinu 2014. Þrjár af hverjum tíu krónum sem birt­ing­ar­að­ilar keyptu aug­lýs­ingar af fóru til sjón­varps­stöðva og um 15 pró­sent í birt­ingar á vefaug­lýs­ingum. Af þeim hluta fór 17,6 pró­sent til erlendra fyr­ir­tækja á borð við Google og Facebook. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Fjöl­miðla­nefndar á skipt­ingu birt­inga­fjár milli miðla á Íslandi árið 2014. Sam­an­tektin var unnin í sam­starfi við fimm stærstu birt­inga­hús lands­ins, ABS-fjöl­miðla­hús, Birt­inga­húsið, MediaCom Íslandi – Fjöl­miðla­hús, HN mark­aðs­sam­skipti/Bestun Birt­inga­hús og Ratsjá. Samkvæmt sam­an­tekt­inni voru keyptar aug­lýs­ingar fyrir tæpa 4,3 millj­arða króna í gegnum birt­inga­hús í fyrra. Vert er að taka fram að fjöl­miðlar selja einnig aug­lýs­ingar beint og án aðkomu birt­inga­húsa. Því er heild­ar­um­fang aug­lýs­inga­kök­unnar að öllum lík­indum um tvö­föld þessi upp­hæð hið minnsta.


Í til­kynn­ingu frá Fjöl­miðla­nefnd vegna birt­ingu sam­an­tek­ar­innar segir að til þessa hafi "eng­inn einn aðili haldið utan um upp­lýs­ingar um skipt­ingu birt­inga­fjár milli miðla á Íslandi og oft hefur reynst erfitt að nálg­ast slíkar upp­lýs­ingar. Í flestum vest­rænum ríkjum er reynt að fylgj­ast með mik­il­vægri töl­fræði um aug­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um breyt­ingar á aug­lýs­inga­mark­aði eru birtar jafn­óðum. Eitt af hlut­verkum fjöl­miðla­nefndar sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla er að fylgj­ast með þróun og stöðu á fjöl­miðla­mark­aði. Með sam­starfi fjöl­miðla­nefndar og birt­inga­hús­anna tekur fjöl­miðla­nefnd, sem hlut­lægur aðili, saman þær tölur sem koma frá birt­inga­hús­unum og upp­lýsir um heild­ar­skipt­ingu birt­inga­fjár á milli miðla á Íslandi."

Nið­ur­staða sam­an­tekt­ar­innar er sú að prent­miðlar fá enn stærstan hluta af aug­lýs­inga­kök­unni hér­lendis, eða 29,7 pró­sent. Það þýðir að þeir skipta með sér um 1,6 millj­örðum króna sem fóru í gegnum birt­inga­hús. Um 1,3 millj­arðar króna, eða 29,7 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni, fór til sjón­varps­stöðva og 15,4 pró­sent eða 656 millj­ónir króna, til útvarps­stöðva. Inn­lendir vefir skiptu á milli sín 523 millj­ónum króna (12,3 pró­sent) og erlendir vefir á borð við Facebook og Google fengu 111 millj­ónir króna (2,6 pró­sent). Aðrir fengu 110 millj­ónir króna, eða 2,6 pró­sent.

Samkvæmt Fjöl­miðla­nefnd er þessi skipt­ing í and­stöðu við það sem á sér stað í við­mið­un­ar­löndum, þar sem aukin áhersla er á vefaug­lýs­ingar. Í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar segir: "Aug­lýs­inga­lands­lagið hefur tekið stór­stígum breyt­ingum á Norð­ur­lönd­unum á síð­ustu árum og þró­ast með þeim hætti að hlutur erlendra vef­miðla hefur auk­ist mjög á kostnað inn­lendra miðla. Vef­miðlar fengu langstærstan hluta birt­inga­fjár í Danmörku árið 2013 en sjón­varp kom þar næst á eftir. Dönskum prent­miðlum hefur hins vegar gengið illa að laða til sín aug­lýsendur á síð­ustu árum og minnk­aði hlutur dag­blaða á aug­lýs­inga­mark­aði um 55% á árunum 2000-2013 í Danmörku.

Þess má einnig geta að nið­ur­stöður sam­an­tektar fjöl­miðla­nefndar og íslensku birt­inga­hús­anna eru um margt á skjön við fréttir sem birt­ust í febr­úar sl. þess efnis að hlutur vefaug­lýs­inga hér á landi hafi farið fram úr sjón­varps­aug­lýs­ingum á árinu 2014 og að hlut­fall aug­lýs­inga á vefnum væri orðið um 26% af heild­ar­veltu en fréttir þessar voru byggðar á upp­lýs­ingum um heild­ar­veltu hér­lendrar aug­lýs­inga­stofu á því ári. Samkvæmt nið­ur­stöðum fjöl­miðla­nefndar rennur langstærstur hluti birt­inga­fjár á Íslandi ennþá til prent­miðla og eiga vef­miðlar tölu­vert langt í land með að ná sömu yfir­burða­stöðu og vef­miðlar í nágranna­löndum hafa náð. Hlutfall inn­lendra og erlendra vef­miðla nam sem fyrr segir ein­ungis 14,9% af heild­ar­veltu árið 2014 á móti 37,4% hlut­falli prent­miðla og 29,7% hlut­falli sjón­varps­miðla. Þrátt fyrir að tölvu- og net­notkun sé mest á Íslandi af öllum Evr­ópu­ríkj­unum2 sker Ísland sig að þessu leyti frá nágranna­ríkjum sínum. Þar hefur þró­unin verið sú að aug­lýsendur eru að færa sig yfir á netið í stórum stíl. Mark­aðs­fyr­ir­tækið Group M hefur spáð því að árið 2015 verði Bretland fyrsta landið í heim­inum þar sem meira en helm­ingur allar aug­lýs­inga­tekna renni til vef­miðla. Þau lönd sem talin eru veita Bret­landi hvað harð­asta sam­keppni í þessum efnum eru Svíþjóð (vef­miðlum spáð 47% hlut­falli aug­lýs­inga­tekna 2015), Danmörk (43%), Ástralía (42%) og Noregur (40%)."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár