Réttast að senda pöndubirnina heim

Upp­lýs­ingar um fund kín­verska sendi­herr­ans í Danmörku með fær­eyskum ráða­mönnum um fjar­skipta­samn­ing hafa valdið fjaðrafoki í Færeyjum og meðal danskra þing­manna. Sendi­herr­ann neitar að reyna að beita Fær­ey­inga þrýst­ingi.

Fyrir hálfum mán­uði ætl­aði fær­eyska sjón­varpið, Kringvarp Føroya að senda út frétt um fund sem hald­inn var í Þórshöfn 11. nóv­em­ber sl. en lög­bann var sett á útsend­ingu frétt­ar­innar, að kröfu fær­eysku lands­stjórn­ar­innar.

Mikil leynd hvíldi yfir fundi þessum en hann sátu Feng Tie, sendi­herra Kína í Danmörku, Bárður Nielsen, lög­maður Færeyja, Jørgen Niclasen, fjár­mála­ráð­herra fær­eysku land­stjórn­ar­innar og einn ráðu­neyt­is­stjóri. Sendi­herr­ann hafði óskað eftir fund­inum og gagn­gert komið til Þórs­hafnar af því til­efni.

Nokkrum dögum seinna komust frétta­menn Kringvarps­ins á snoðir um fund þennan, fyrir til­viljun. Út af fyrir sig er það hvorki óleyfi­legt né óeðli­legt að sendi­herr­ann hitti fær­eyska ráða­menn en það var fund­ar­efnið sem valdið hefur upp­námi í Færeyjum og Danmörku.

Lögbannið og hótun sendiherrans

[links]Eins og áður var nefnt var það fær­eyska land­stjórnin sem krafð­ist lög­banns­ins. Lögum sam­kvæmt fór lög­bannskrafan fyrir dóm­ara sem stað­festi að lög­bannið stæði þangað til dæmt verði í mál­inu, sá mála­rekstur getur tekið nokkra mán­uði.

Þrátt fyrir lög­bannið hefur inni­hald frétt­ar­innar lekið út. Fær­eyskir og danskir fjöl­miðlar hafa birt orð­rétt sam­tal yfir­manns ráðu­neytis utan­rík­is­mála í Færeyjum og fær­eyska utan­rík­is­ráð­herr­ans, þar sem sá fyrr­nefndi greindi ráð­herr­anum frá „leyni­fund­inum“. Hvorugur vissi að sam­talið væri tekið upp, og reyndar vissi frétta­maður sjón­varps­ins ekki um upp­tök­una fyrr en eftir á.

Samkvæmt frá­sögn ráðu­neyt­is­stjór­ans, sem var við­staddur „leyni­fund­inn“, greindi kín­verski sendi­herr­ann lög­mann­inum og fjár­mála­ráð­herr­anum frá því að samn­ingur fær­eyska síma­fé­lags­ins, Føroya Tele við kín­verska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Huawei myndi opna „allar dyr“ varð­andi við­skipta­samn­ing (fri­hand­elsaftale) Færeyja og Kína. Ráðu­neyt­is­stjór­inn sagði að ekki hefði farið á milli mála að í orðum sendi­herr­ans hefði falist hótun. Hótun um að ef ekki yrði samið við Huawei um lagn­ingu 5G háhraða­nets í Færeyjum yrði ekki gerður við­skipta­samn­ingur milli þjóð­anna. Það var þessi frá­sögn ráðu­neyt­is­stjór­ans sem fær­eyska sjón­varpið ætl­aði að greina frá. Frétta­þul­ur­inn sagði frá lög­bann­inu í upp­hafi frétta­tím­ans, en ekki efni frétt­ar­innar.

Hér er rétt að geta þess að lagn­ing 5G háhraða­nets stendur fyrir dyrum í Færeyjum en Huawei ann­að­ist bæði upp­setn­ingu og rekstur 4G nets­ins sem 5G á að leysa af hólmi. Fær­ey­ingar hafa árum saman unnið að því að ná sér­stökum við­skipta­samn­ingi við Kína og hann yrði þeim mjög mik­il­vægur, ekki síst vegna útflutn­ings á laxi.

Kínverski sendiherrann neitar hótunum

Í tölvu­pósti frá Feng Tie sendi­herra til frétta­stofu danska útvarps­ins neitar hann algjör­lega að hafa haft uppi hót­anir á fundi sínum með fær­eyskum ráð­mönnum. Fund­ur­inn hafi snú­ist um sam­skipti land­anna. Bárður Nielsen lög­maður Færeyja, sem sat „leyni­fund­inn“ seg­ist ekki hafa túlkað orð sendi­herr­ans sem hótun. Sendi­herr­ann segir enn­fremur í tölvu­póst­inum að ásak­anir um hót­anir megi rekja til Banda­ríkja­manna.

Þar vísar hann til við­tala og greina­skrifa banda­ríska sendi­herr­ans í Danmörku. Carla Sands sendi­herra hefur í við­tölum og blaða­greinum lýst áhyggjum vegna hugs­an­legs fjar­skipta­samn­ings Fær­ey­inga við Huawei. Fyr­ir­tæk­inu, eins og öllum kín­verskum fyr­ir­tækjum, sé skylt að hlýða fyr­ir­skip­unum kín­verskra stjórn­valda. Fær­eyskir þing­menn hafa, sumir hverjir, túlkað orð sendi­herr­ans sem hótun og íhlutun í fær­eysk mál­efni. Færeyska lands­stjórnin hefur lagt áherslu á að allar ákvarð­anir varð­andi 5G háhraða­netið sé í höndum fær­eyska síma­fé­lags­ins.

Þingmenn ósáttir við afskipti kínverska sendiherrans

Frétt­irnar af „leyni­fund­inum“ hafa ekki farið fram­hjá dönskum þing­mönnum. Málið var rætt á fundi utan­rík­is­mála­nefndar danska þings­ins, Fol­ket­inget sl. fimmtu­dag. Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra sagði þar að ákvörðun um 5G háhraða­netið væri algjör­lega í höndum Fær­ey­inga sjálfra. Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem á sæti í nefnd­inni, sagði í við­tali að hugs­an­legur samn­ingur við Huawei um 5G háhraða­net í Færeyjum, sé ekki bara venju­legur við­skipta­samn­ingur „við erum ekki að tala um samn­ing um inn­kaup a gúmmí­skóm“. 5G geti snú­ist um öryggis- og varn­ar­mál og þess vegna geti danska rík­is­stjórnin ekki yppt öxlum og sagt að þetta sé einka­mál Fær­ey­inga.

Fleiri nefnd­ar­menn töl­uðu á svip­uðum nótum og sögð­ust telja samn­ing um 5G flokk­ast undir utan­ríkis- og varn­ar­mál og þar með væri það ekki einka­mál Fær­ey­inga. Naser Khader þing­maður Íhalds­flokks­ins sagði ríka ástæðu til að hafa áhyggjur af hót­unum sendi­herr­ans og benti í því sam­bandi á Afríku þar sem Kín­verjar notað yfir­burði til að ná sínu fram. Søren Espersen tals­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins í utan­rík­is­málum segir að ekki þurfi að velkj­ast í vafa um hvað kín­verski sendi­herr­ann meinti með orðum sínum.

„Þetta er þrýst­ingur frá Kín­verjum og það er ekki í fyrsta skipti sem þeir blanda saman við­skiptum og póli­tík“. Og bætti við „við eigum ekki að láta hót­anir frá komm­ún­ista Kína yfir okkur ganga, rétt­ast væri að skila þeim pönd­unum sem þeir lán­uðu okkur“. Þarna vís­aði þing­mað­ur­inn til tveggja panda sem Kín­verjar lán­uðu Dýra­garð­inum í Kaup­manna­höfn en pönd­urnar komu til Dan­merkur í apríl á þessu ári. Søren Espersen gagn­rýndi á sínum tíma þennan „vin­áttu­vott“ eins og hann kall­aði lánið á pönd­unum. „Það að Kín­verjar láni Dönum pönd­urnar merkir að Danir hafi sam­þykkt utan­rík­is­stefnu Kínverja“ sagði þing­mað­ur­inn.

Ekki er ljóst hvenær ákveðið verður hvaða fyr­ir­tæki mun ann­ast upp­setn­ingu og rekstur 5G háhraða­nets­ins í Færeyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár