Færeyingar og fréttin sem ekki mátti segja

Fær­ey­ingar eru milli steins og sleggju vegna fyr­ir­hug­aðs samn­ings við kín­verska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Huawei um nýtt 5G háhraða­net. Banda­ríkja­menn þrýsta á Fær­ey­inga að semja ekki við Huawei og ótt­ast að kín­versk stjórn­völd nýti sér Huawei til njósna.

Það voru í senn glaðir og hreyknir for­svars­menn fær­eyska síma­fé­lags­ins, Føroya Tele, þegar þeir kynntu nýja 5G háhraða­netið í júní sl. „Færeyjar fara framúr Danmörku með 5G“ var yfir­skrift frétta­til­kynn­ing­ar­innar sem send var út af þessu til­efni. Á þessum kynn­ing­ar­fundi var jafn­framt greint frá því að lagn­ing háhraða­nets­ins yrði lík­lega í sam­vinnu Færeyska síma­fé­lags­ins og kín­verska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Huawei, þótt samn­ingur hafi ekki verið und­ir­rit­aður.

Samvinna Fær­ey­inga og Huawei er ekki ný af nál­inni en lagn­ing háhraða­nets­ins yrði stærsta verk­efnið sem Kín­verjarnir hafa tekið að sér á eyj­unum en þess má geta að Huawei sá um lagn­ingu 4G nets­ins í Færeyjum. Því verk­efni og öðrum slíkum sem Huawei hefur ann­ast á síð­ustu árum í Færeyjum hefur fyr­ir­tækið skilað bæði fljótt og vel. For­stjóri síma­fé­lags­ins lýsti, á áður­nefndum fundi, sér­stakri ánægju með sam­starfið við kín­verska fyr­ir­tækið og sagði að fram­kvæmdir vegna háhraða­nets­ins myndu hefj­ast „alveg á næst­unni“. Nefndi þó ekki dag­setn­ingu.

Ekkert bólar á netinu

Nú, þegar brátt eru liðnir sex mán­uðir síðan for­stjóri síma­fé­lags­ins sagði að fram­kvæmdir myndu hefj­ast alveg á næst­unni, bólar ekk­ert á háhraða­net­inu. Í við­tali við fær­eyska útvarpið fyrir skömmu sagði fær­eyskur þing­maður að stundum taki menn sterkt til orða, en bætti við að „það hljóti nú að fara að stytt­ast í að eitt­hvað ger­ist.“

[adspot]Heima­menn í Færeyjum hafa undr­ast þennan seina­gang.

Segja Huawei undir tufflu kínversku stjórnarinnar

Eins og flestum sem fylgj­ast með fréttum mun kunn­ugt andar köldu milli Banda­ríkja­manna og Kínverja. Klögu­málin ganga á víxl í við­skipta­stríði sem staðið hefur um margra mán­aða skeið. Báðar þjóðir hafa tekið upp vernd­ar­tolla á fjöl­margar vörur hvor frá annarri og við­skipta­stríðið veldur mörgum fyr­ir­tækjum í báðum löndum miklum erf­ið­leikum. Bæði löndin eru þó mjög háð við­skiptum hvort við annað og ástand­inu má helst líkja við eins konar „haltu mér slepptu mér“ sam­band, þar sem hvor­ugur getur án hins verið. Síaukin starf­semi Kínverja, ekki síst fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Huawei, er þyrnir í augum Banda­ríkja­manna. Þeir halda því fram að Huawei sé í raun undir stjórn kín­verskra ráða­manna sem geti, þegar þeim þókn­ast nýtt fyr­ir­tækið til alls kyns njósn­a­starf­semi um aðrar þjóðir, ekki síst Banda­ríkin.

Sendiherrann lætur í sér heyra

Skömmu eftir að til­kynnt var um sam­vinnu Færeyska síma­fé­lags­ins og Huawei birti dag­blaðið Berl­ingske við­tal við sendi­herra Banda­ríkj­anna í Danmörku. Sendi­herr­ann, Carla Sands, lýsti þar áhyggjum vegna fjar­skipta­samn­ings­ins og sagði hugs­an­legt að samn­ing­ur­inn hefði í för með sér að Banda­ríkja­menn gætu ekki látið Fær­ey­ingum í té mik­il­vægar upp­lýs­ingar.

Í grein sem sendi­herr­ann skrif­aði í nýj­ustu helg­ar­út­gáfu Sos­i­al­urin hvetur hún Fær­ey­inga til að búa svo um að „þeir ráði sjálfir yfir innviðum sam­fé­lags­ins en láti þá ekki í hendur fyr­ir­tækja sem ekki fylgja okkar leik­reglum og við­miðum“. Sendi­herr­ann segir yfir­lýs­ingar Huawei um sjálf­stæði og að fyr­ir­tækið virði allar reglur um leynd upp­lýs­inga marklausar. Allir viti að kín­verskum fyr­ir­tækjum sé skylt að hlýða fyr­ir­skip­unum stjórn­valda í land­inu, slíkt sé bundið í lög í Kína.

Færeyskir stjórnmálamenn undrandi

Pistill banda­ríska sendi­herr­ans hefur vakið mikla athygli í Færeyjum. Sjúrður Skaale, þing­maður Javn­að­ar­flokks­ins, sagð­ist í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske vera mjög undr­andi á orðum sendi­herr­ans. Hann sagð­ist ekki minn­ast þess að banda­rískur sendi­herra hefði fyrr reynt að hafa áhrif á Fær­ey­inga, og ekki skilja hvað sendi­herr­anum gengi til, en benti á að Banda­ríkja­menn og Kín­verjar ættu í við­skipta­stríði.

Fleiri fær­eyskir stjórn­mála­menn hafa talað á svip­uðum nótum og bent á að ef Færeyska síma­fé­lagið rifti fyr­ir­hug­uðu sam­komu­lagi við Huawei myndu Kín­verjar telja það gert vegna þrýst­ings frá Banda­ríkja­mönnum. Færeyska land­stjórnin hefur lagt áherslu á að ákvörðun um sam­starf við Huawei, eða aðra, um 5G netið sé í höndum Færeyska síma­fé­lags­ins og lands­stjórnin komi þar hvergi nærri. Nýlegar fréttir benda hins­vegar til að Kín­verjar reyni að beita áhrifum sínum gegnum fær­eysku lands­stjórn­ina.

Fréttin sem ekki mátti segja og hljóðupptakan

Tuttugu mín­útum áður en frétta­tími Kringvarps­ins, fær­eyska sjón­varps­ins, „Dagur og vika“ fór í loftið sl. mánu­dag (2. des) kom full­trúi fær­eyska inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og krafð­ist þess að fréttin yrði ekki send út og fógeta­úr­skurður þar að lút­andi væri á leið­inni. Frétta­stjóri Kringvarps­ins ákvað að fréttin yrði ekki send út. Sagði hins­vegar frá bann­inu í upp­hafi frétta­tím­ans. Ástæða lög­banns­ins var rök­studd með að upp­lýs­ingar í frétt­inni hefðu verið fengnar með ólög­mætum hætti.

Fréttin, sem ekki mátti senda út, fjall­aði um fund sem hald­inn var 11. nóv­em­ber, í Þórshöfn. Fundinn sátu Feng Te, sendi­herra Kína í Danmörku, Bárður Nielsen lög­maður Færeyja, og Jørgen Niclasen, fjár­mála­ráð­herra lands­stjórn­ar­innar.

[adspot]Mikil leynd hvíldi yfir fund­inum og frétta­menn komust síðar á snoðir um hann, fyrir algjöra til­viljun. Það gerð­ist 15. nóv­em­ber þegar frétta­maður Kringvarps­ins ætl­aði að taka við­tal við Helga Abra­ham­sen sem fer með við­skipta­mál í fær­eysku lands­stjórn­inni og spyrja hann um Huawei og 5G netið. Þegar mynda­töku­mað­ur­inn var búinn að festa míkró­fón­inn á jakka­boð­ung ráð­herr­ans, óskaði emb­ætt­is­maður í við­skipta­ráðu­neyt­inu eftir að ræða eins­lega við ráð­herr­ann. Það sem þeir vissu ekki var að kveikt var á míkró­fón­inum sem ráð­herr­ann bar og þess vegna var sam­tal hans og emb­ætt­is­manns­ins tekið upp á tæki Kringvarps­ins. Síðan mætti ráð­herr­ann í við­talið. Það var ekki fyrr en Kringvarps­menn komu á stöð­ina og fóru að skoða við­talið að þeir upp­götv­uðu upp­tök­una af sam­tali ráð­herr­ans og emb­ætt­is­manns­ins. Það var þetta sam­tal sem Kringvarpið ætl­aði að segja frá. Hvað nákvæm­lega var rætt um hefur ekki verið gert opin­bert en emb­ætt­is­mað­ur­inn ku hafa greint ráð­herr­anum, í smá­at­riðum, frá því sem rætt var um á leyni­fund­inum 11. nóv­em­ber.

Lögmaðurinn segir leyndina nauðsynlega

Í við­tali í fær­eyska útvarp­inu í fyrra­kvöld sagði Bárður Nielsen lög­maður að lög­bannið á frétt Kringvarps­ins sl. mánu­dag (2.des) hefði verið nauð­syn­legt því efni frétt­ar­innar gæti skaðað fær­eyska hags­muni. Frétta­stjóri Kringvarps­ins er ósam­mála því að ekki eigi að birta frétt­ina, „inni­haldið varðar hags­muni Fær­ey­inga og lög­bannið er óeðli­legt inn­grip í starf fjöl­miðla“.

Það getur þú sjálfur reiknað út

11. nóv­em­ber, sama dag og „leyni­fund­ur­inn“ átti sér stað hitti kín­verski sendi­herr­ann Jenis av Rana sem fer með utan­rík­is­mál í lands­stjórn­inni og nokkra emb­ætt­is­menn. Þegar frétta­maður spurði einn úr hópi emb­ætt­is­mann­anna eftir fund­inn hvort við­skipti og Huawei tengd­ust og hvort þau mál hefðu verið rædd svar­aði emb­ætt­is­mað­ur­inn „það getur þú sjálfur reiknað út“.

Þess má í lokin geta að Kringvarpið hefur áfrýjað lög­bann­inu. Dómur verður kveð­inn upp í síð­asta lagi næst­kom­andi mánu­dag 9. des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár