Gagnamagnsnotkun í farsímum jókst um 80 prósent milli ára

Við­skipta­vinir Nova í sér­flokki þegar kemur að notkun gagna­magns í far­síma­kerfi. 4G-væð­ingin að gjör­breyta neyslu­hegðun.

Gagna­magns­notkun Íslend­inga á far­síma­neti jókst um 79 pró­sent frá miðju ári í fyrra og fram til júníloka 2015. Á fyrri hluta síð­asta árs not­uðu Íslend­ingar um 2,5 millj­ónir giga­bæta en á fyrstu sex mán­uðum þessa árs nam notk­unin um 4,5 millj­ónum gíga­bæta. Gagna­mags­notkun Íslend­inga í gegnum far­síma­net hefur tæp­lega ell­efu­fald­ast frá árinu 2010 og rúm­lega fjór­fald­ast frá miðju ári 2012. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn á fyrri hluta árs­ins 2015 sem birt var í gær.

Í sam­an­dregnu máli þá þýðir þetta að not­enda­hegðun umbylst. Litlu snjall­tækin sem nán­ast allir eru með í vas­anum eru orðin lyk­il­gátt að afþr­ey­ingu, fréttum og öðru fjöl­miðla­efni óháð því hvort það sé sett fram með texta, sem sjón­varp eða hljóð­varp.

Símar eru fyrir nokkuð löngu síðan hættir að vera tól sem tveir ein­stak­lingar nota til að tala saman, og orðnir eitt­hvað allt annað og miklu meira.

4G-væðingin breytir öllu

Ástæðan fyrir þess­ari miklu breyt­ingu er sú að far­síma­tíma­bil fjar­skipta­geirans er að líða undir lok og gagna­flutn­inga­tíma­bilið að taka við. Tíðni­heim­ildir fyrir 3G, fyrsta háhraða­kyn­slóð far­síma­nets­kerfið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­kerfi en far­síma­kerfi og gerði gagna­flutn­ing mögu­legan.

Næsti fasi stendur nú yfir, skrefið yfir í 4G-kerfið. Skrefið sem verður tekið upp á við með henni er stærra en margir átta sig á. Hraðinn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADSL-teng­ingar.

4G-væð­ingin á Íslandi hófst af alvöru á árinu 2014 þegar fjöldi 4G-korta í símum fimm­fald­að­ist. Um mitt ár 2015 hafði fjöldi þeirra síðan tvölfald­ast á einu ári og nú eru um 151 þús­und virk 4G-kort í íslenskum far­símum. Þau eru enn færri en 3G-kortin (230 þús­und) en með þessu áfram­hald­andi mun 4G vera orðið ráð­andi á Íslandi innan árs.

Nova veðjaði á réttan hest

Nova nýtur þess­arra breyt­inga umfram önnur fjar­skipta­fyr­ir­tæki, svo vægt sé til orða tekið. Við­skipta­vinir Nova eru nefni­lega í algjörum sér­flokki þegar kemur að notkun gagna­magns. Við­skipta­vinir þess fyr­ir­tækis, sem hóf starf­semi í des­em­ber 2007, og verður því átta ára um næstu mán­að­ar­mót, not­uðu um 74 pró­sent af öllu gagna­magni sem notað var á far­síma­net­inu á fyrri hluta árs­ins 2015. Það er svipað hlut­fall og við­skipta­vinir Nova voru með af heild­ar­gagna­magnskök­unni árið 2014.

Það má því segja að Nova sé að upp­skera eins og fyr­ir­tækið sáði á upp­hafs­árum sínum. Þá lagði það áherslu á að ná í gríð­ar­legan fjölda ungra not­enda gegn því að lofa þeim fríum sím­tölum og sms-skeytum innan kerfis. Þetta var áður en gagna­magns­bylt­ingin reið yfir. Þegar það svo gerð­ist voru það ungu við­skipta­vin­irnir sem Nova hafði sankað að sér – nú ekki lengur ung­lingar heldur ungt fólk með kaup­mátt – sem umföðm­uðu þá bylt­ingu fyrstir allra.

Síminn enn stærstur á farsímamarkaði

Síminn, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, er enn með for­ystu á far­síma­mark­að­inum. Þ.e. hann er enn með flesta við­skipta­vini í far­síma­þjón­ustu, eða alls 149.558 tals­ins og 35,3 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Við­skipta­vina­fjöldi Símans hefur hald­ist nokkuð stöð­ugur und­an­farið ár. Frá lokum árs 2012 hefur við­skipta­vinum Símans í far­síma­þjón­ustu til að mynda fjölgað um 600. Á sama tíma hafa tug­þús­undir nýir not­endur bæst við.

Það er skilj­an­legt að Síminn hafi tapað mark­aðs­hlut­deild á und­an­förnum árum sam­hliða stór­auk­inni sam­keppni. Auk þess er fyr­ir­tækið í þeirri eft­ir­sókn­ar­verðu stöðu að tveir af hverjum þremur við­skipta­vinum þess í far­síma­þjón­ustu er með fasta áskrift. Það tryggir mik­inn stöð­ug­leika í notkun og tekjum.

Nova, sem sótt hefur hart að Símanum á und­an­förnum árum, er nú komið með 33,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Þótt föstum áskriftum hjá Nova fjölgi alltaf ár frá ári er það enn svo að tæp­lega þrír af hverjum fjórum við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins eru með fyr­ir­fram­greidda þjón­ustu, svo­kallað frelsi. Nova er samt sem áður það fyr­ir­tæki á fjar­skipta­mark­aði sem tekur til sín nán­ast alla við­bót­arnot­endur sem bæt­ast við far­síma­mark­að­inn á ári hverju. Frá árs­lokum 2012 hefur við­skipta­vinum Nova til að mynda fjölgað um tæp­lega 30 þús­und.

Þriðji ris­inn á fjar­skipta­mark­aði er síðan Vodafone. Því hefur tek­ist að halda vel á áskrift­ar­fjölda sínum á far­síma­mark­aði og sam­tals nemur mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins 26,8 pró­sentum.

365 sam­ein­að­ist Tali í des­em­ber 2014 og tók þar með yfir far­síma­við­skipti síð­ar­nefnda fyr­ir­tæk­is­ins. Alls eru við­skipta­vinir 365 í far­síma­þjón­ustu nú um 15.500 tals­ins. Það er umtals­vert færri við­skipta­vinir en Tal var með í árs­lok 2012, þegar þeir voru um 20 þús­und.

SMS á undanhaldi

Þótt fjöl­margir nýir sam­skipta­miðlar hafi bæst við flór­una á und­an­förnum árum þá senda Íslend­ingar enn nokkuð mikið af SMS-skila­boðum. Árið 2012 voru send tæp­lega 216 millj­ónir slíkra skila­boða en þeim hafði fækkað í um 204 millj­ónir í fyrra. Á fyrri hluta árs­ins í ár voru send um 100 milljón SMS og ef sú notkun helst stöðug út árið mun notk­unin drag­ast saman um tvö pró­sent milli ára.

Líklegt verður að telj­ast að SMS-ið mun áfram eiga undir högg að sækja, enda bjóða sam­skipta­for­rit á vegum Facebook, Apple og fleiri slíkra upp á mun fleiri mögu­leika í sam­skiptum en SMS-in.

Þetta er fyrri hluti umfjöll­unar Kjarnans um nýja skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn. Seinni hlut­inn birt­ist síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár