Samherja-blokkin bætir enn við sig kvóta – heldur nú á 17,5 prósent

Útgerð í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar hefur keypt aðra útgerð sem heldur á 0,36 pró­sent af heild­ar­kvóta. Við það eykst afla­hlut­deild þeirra útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem tengj­ast Sam­herj­a­sam­stæð­unni um sama hlut­fall.

Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór B. Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Síldarvinnslan

Á laug­ar­dag var und­ir­rit­aður samn­ingur um kaup útgerð­ar­fé­lags­ins Bergs-Hugins ehf. á útgerð­ar­fé­lag­inu Bergi ehf. í Vest­manna­eyjum. Við þau kaup flytj­ast 0,36 pró­sent af heild­ar­kvóta yfir­stand­andi fisk­veiði­árs yfir til Bergs-Hugins.

Frá þessu er greint á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar, sem á Berg-Huginn að öll leyti. Þar er haft eftir Gunnþóri B. Ingva­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, að kaupin séu liður í að styrkja rekstur og útgerð þess í Vest­manna­eyjum. Kaupin voru gerð með fyr­ir­vara um sam­þykkt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Kaupverð er ekki gefið upp.

Við kaupin fer afla­hlut­deild Bergs-Huginn upp í 2,7 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða.

Er í 49,9 prósent eigu Samherja

Síld­ar­vinnslan, eig­andi Bergs-Hugins, er, beint og óbeint, í 49,9 pró­sent eigu Samherja. að styrkja rekstur og útgerð félags­ins í Vest­manna­eyjum. Lög skil­greina aðila í sjáv­ar­út­vegi ekki tengda nema einn eigi meiri­hluta í öðr­um. Því eru Sam­herji og Síld­ar­vinnslan ekki skil­greind sem tengdir aðil­ar enda eign­ar­hlut­ur­inn eins lítið undir mörk­unum og lög heim­ila. Það eru mjög há mörk í sam­an­burði við það sem tíðkast ann­ars­staðar hér­lendis.

Í lögum um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda og í frum­varpi til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna skatt­lagn­ingar tekna erlendra lög­að­ila í lág­skatta­ríkj­um, sam­skött­unar félaga, tak­mörk­unar á frá­drætti vaxta­gjalda og skatt­lagn­ingar útsendra starfs­manna er til dæmis miðað við 25 pró­sent beinan eða óbeinan eign­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­legur eig­and­i.

[adspot]Kjarn­inn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 20. nóv­em­ber 2019 að þegar Sam­herji kynnti sam­stæðu sína erlendis þá var Síld­ar­vinnslan kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóra Samherja, tók fyrir skemmstu aftur við stjórn­ar­for­mennsku í Síld­ar­vinnsl­unni. Hann hafði stigið tíma­bundið til hliðar sem for­maður stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins 18. nóv­em­ber í fyrra. Skömmu áður hafði hann líka hætt sem for­stjóri Sam­herja. Hann sett­ist aftur í þann stól 27. mars síð­ast­lið­inn.

Ástæður þess að Þor­steinn Már steig til hliðar voru þær að Kveik­­­­ur, Stund­in, Wikileaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­­­u­greiðsl­­­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­­­göngu.

Stærsta samstæðan verður stærri

Sam­herj­a­sam­stæðan er sú sem heldur sam­an­lagt á mestum kvóta á Ísland­i.

[links]Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­sent. ­Út­­­gerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­sent hans.

Síld­­­­­­ar­vinnslan er svo með 5,2 pró­­sent afla­hlut­­deild og Berg­­ur-Hug­inn, í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar, er nú með tæp­lega 2,7 pró­­sent af heild­­ar­kvóta til umráða.

Auk þess á Síld­ar­vinnslan 75,20 pró­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk með að minnsta kosti 17,5 pró­­sent afla­hlut­­deild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár