Kvótaþak óbreytt í tillögum – sem og hvað aðilar þurfi að eiga hvor í öðrum til að teljast tengdir

Loka­skýrsla verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni hefur litið dags­ins ljós og hefur hún verið afhent Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Einn stjórn­ar­með­limur setur sér­stakan fyr­ir­vara við skýrsl­una.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki eru gerðar til­lögur að breyt­ingum á kvóta­þaki eða kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðil­um í nýrri skýrslu verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni. Verk­efna­stjórnin hefur afhent Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra loka­skýrslu sína.

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, átti sæti í verk­efna­stjórn­inni en hún segir í sam­tali við Kjarnann að hinir stjórn­ar­með­lim­irnir hafi litið svo á að það væri ekki þeirra hlut­verk að gera til­lögur um breyt­ingar á þessum tveimur fyrr­nefndum atriðum. Hún setur ákveð­inn fyr­ir­vara við skýrsl­una sem birt­ist jafn­framt þar.

Svört stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar hratt málinu af stað

Málið á sér heil­mik­inn aðdrag­anda. Í jan­úar árið 2019 hófst ferli en þá skil­aði Rík­is­end­ur­skoðun svartri stjórn­sýslu­út­tekt um Fiski­stofu. Eitt þeirra atriða sem veru­legar athuga­semdir voru gerðar við, og vakti mikla athygli, var að Fiski­stofa kann­aði ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög.

Umrædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en 12 pró­sent af heild­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­ar­innar.

Skiptar skoð­anir hafa verið uppi um hvort það tak­mark hafi náðst. En skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar ýtti málum aðeins áfram. Í henni var meðal ann­ars lagt til að ráð­ast í end­ur­skoðun á lögum um stjórn fisk­veiða sem snúa að yfir­ráðum yfir afla­heim­ildum og ákvæðum sem fjalla um tengsl aðila „svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­­þjöppun afla­heim­ilda“.

Vendingar í kjölfar Samherjamálsins

[links]Kristján Þór skip­aði verk­efna­stjórn­ina í mars 2019 til þess að fjalla um þær athuga­semdir og ábend­ingar sem komu fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar en í henni sátu Sig­urður Þórð­ar­son, sem var for­mað­ur, Bryn­hildur Bene­dikts­dótt­ir, sér­fræð­ingur á skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eldis í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri Í Ölfusi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum, Hulda Árna­dótt­ir, lög­maður og Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, þing­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í nóv­em­ber 2019, í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins, óskaði ráð­herr­ann eftir því að verk­efna­stjórnin myndi skila þeim hluta vinnu sinnar sem snéri að tengdum aðilum fyrir 1. jan­úar 2020. Henni var skilað skrif­lega þann 30. des­em­ber 2019.

Kjarninn fjall­aði um til­lög­urnar þegar þær voru birtar í jan­úar en þær voru fimm. Lagðar voru til breyt­ingar á skil­grein­ingum á tengdum aðilum þannig að þær yrðu látnar ná til hjóna, sam­búð­ar­fólks og barna þeirra. Þá var lagt til að ákveðin stjórn­un­ar­leg tengsl milli fyr­ir­tækja myndu leiða til þess að fyr­ir­tækin yrðu talin tengd nema sýnt væri fram á hið gagn­stæða og að sér­stak­lega yrði skil­greint í lög­unum hvað fælist í raun­veru­legum yfir­ráðum yfir öðru fyr­ir­tæki. Einnig átti að skikka aðila sem ráða yfir meira en sex pró­sent af afla­hlut­deild, sem eru örfá fyr­ir­tæki, eða 2,5 pró­sent af krókafla­hlut­deild til að til­kynna til Fiski­stofu áætl­aðan sam­runa. Sama myndi eiga við þegar fram færu kaup í félagi sem ræður yfir afla­hlut­deild eða við kaup á afla­hlut­deild og áttu þau kaup ekki að koma til fram­kvæmda nema sam­þykki Fiski­stofu lægi fyrir. Að end­ingu átti að veita Fiski­stofu auknar heim­ildir til afla gagna.

Í til­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðil­um. Þau mál yrðu áfram til skoð­unar hjá nefnd­inni.

50 prósent viðmiðið „mjög hátt“

Loka­skýrslan var síðan birt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag og afhent ráð­herra. Í skýrsl­unni segir að núgild­andi reglur um hámarks­hlut­deild hafi einkum sætt gagn­rýni fyrir að vera óskýrar þar sem erfitt hafi reynst að sýna fram á hvenær tveir aðilar skuli telj­ast tengdir við fram­kvæmd þeirra. Gerð sé krafa um meiri­hluta­eign eða raun­veru­leg yfir­ráð. Í því felist að aðili þurfi að eiga meira en 50 pró­sent í öðrum aðila eða ráða yfir honum með öðrum hætti til að þeir séu taldir tengdir aðilar.

„Það við­mið er mjög hátt og benda má á að í þeirri þróun sem hefur átt sér stað varð­andi það hvenær aðilar telj­ast tengdir og hvað felst í raun­veru­legum yfir­ráðum á fjár­mála­mark­aði hefur þetta við­mið verið að lækka vegna þeirrar aðstöðu sem aðilar eru í ef þeir hafa veru­leg áhrif í félögum,“ segir í skýrsl­unni.

Í þessu sam­bandi er bent á lög um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda og frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna skatt­lagn­ingar tekna erlendra lög­að­ila í lág­skatta­ríkjum, sam­skött­unar félaga, tak­mörk­unar á frá­drætti vaxta­gjalda og skatt­lagn­ingar útsendra starfs­manna. Í báðum til­vikum sé miðað við 25 pró­sent beinan eða óbeinan eign­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­legur eig­andi.

Í skýrsl­unni eru lagðar fram sömu til­lögur að breyt­ingum og kynntar voru í jan­úar og útli­staðar hér að ofan – en ekki hefur verið bætt við þær.

Setti sérstakan fyrirvara

Eins og áður segir setti Oddný Harð­ar­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sér­stakan fyr­ir­vara við skýrsl­una, sem birt­ist í henni. Hún segir þar að auð­lindir í nátt­úru Íslands hafi mikla sam­eig­in­lega þýð­ingu fyrir þjóð­ina. Gæta þurfi að almanna­hag og jafn­ræði við nýt­ingu þeirra gæða sem Ísland hefur yfir að ráða.

„Það gengur gegn almanna­hags­munum að fáum aðilum sé gert kleift að fara með stærsta hluta fisk­veiði­auð­lind­ar­innar. Til að verja þá hags­muni var 13. og 14. grein laga um stjórn fisk­veiða sam­þykkt á Alþingi fyrir um 20 árum. Mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað síðan þá og er rétt að miða við nýjar laga­setn­ingar líkt og lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki og um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda þegar leitað er eftir við­miðum til úrbóta.

Hún bendir á að í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem var meðal ann­ars, til­efni að skipan verk­efna­stjórn­ar­innar, segi að end­ur­skoða þurfi til­tekin ákvæði í lögum um stjórn fisk­veiða svo þau þjóni til­gangi sínum. Tryggja verði að ákvæði um hvenær tveir eða fleiri aðilar skuli telj­ast tengdir við fram­kvæmd þeirra séu skýr.

„Ekki andi laganna“

Oddný telur að bæta þurfi við 13. og 14. grein lag­anna eft­ir­far­andi ákvæðum til þess að koma til móts við ábend­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Í fyrsta tölu­lið í 13. grein um tengda aðila segir: „Aðilar, þar sem annar aðil­inn, ein­stak­lingur eða lög­að­ili, á beint eða óbeint meiri­hluta hluta­fjár eða stofn­fjár í hinum aðil­anum eða fer með meiri hluta atkvæð­is­réttar. Fyrr­nefndi aðil­inn telst móð­ur­fyr­ir­tæki en hinn síð­ar­nefndi dótt­ur­fyr­ir­tæki.“

Þetta ákvæði, ásamt grein­inni í heild og 14. grein, má túlka, að mati Oddnýjar, sem svo að einn aðili geti farið með allt að 12 pró­sent af heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deildar fiski­skipa og því til við­bótar átt rétt undir helm­ing í öllum öðrum fiski­skipum sem fara með hin 88 pros­entin. Þetta þýði að sami aðil­inn geti farið með meiri­hluta af heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deildar sem er til skipt­anna ár hvert. Þetta sé ekki andi lag­anna og standi þetta ákvæði óhaggað, þjóni 13. og 14. grein lag­anna ekki til­gangi sínum.

Vill hafa sama viðmið og í lögum um skráningu raunverulegra eigenda

Oddný leggur til að þessu hlut­falli verði breytt og í stað meiri­hluta í fyrsta tölu­lið 13. greinar laga um stjórn fisk­veiða um tengda aðila, komi 25 pró­sent líkt og við­miðið er í lögum um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda. Þar sé miðað við að þeir sem eiga 25 pró­sent í fyr­ir­tæki séu taldir með þeim sem í raun eiga starf­sem­ina eða stýra þeim við­skipta­manni, lög­að­ila eða ein­stak­lingi, í hvers nafni við­skipti eða starf­semi er stunduð eða fram­kvæmd. Upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur fyr­ir­tækja séu aðgengi­legar almenn­ingi.

Þing­mað­ur­inn segir að auk þess að vinna gegn sam­þjöppun muni þessi breyt­ing auð­velda til muna eft­ir­lit Fiski­stofu með tengdum aðilum og mat á því hvort 12 pró­sent hámark­inu sé náð. Þá bendir hún á að jafn­vel þó að meiri­hluta við­miðið sé almennt við­mið, þá sé hér um að ræða sam­eig­in­legar auð­lindir þjóð­ar­innar sem sér­stöku máli gegnir um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár