Tillögur um endurskoðun á hámarki kvótaþaks liggja fyrir

Tillögur um breytta hámarks­hlut­deild í fisk­veiði­kvóta, sem í dag er 12 pró­sent, hefur verið skilað inn til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins. Þær verða kynntar á næstu dögum. Skilum á til­lög­unum var flýtt vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur fengið tillögurnar inn á sitt borð. Að óbreyttu mun hann taka ákvörðun um hvaða breytingar verða lagðar til.
Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur fengið til­lög­urnar inn á sitt borð. Að óbreyttu mun hann taka ákvörðun um hvaða breyt­ingar verða lagðar til. Mynd: Bára Huld Beck

Starfs­hópur sem á að taka á fram­fylgd laga um stjórn fisk­veiða hefur skilað til­lögum um end­ur­skoðun ákvæða um hámarks­afla­hlut­deild til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins. Til­lög­urnar verða kynntar á næstu dögum.

Hópurinn hefur hins vegar ekki skilað heild­ar­end­ur­skoðun á lög­unum þar sem óskað var eftir því að atriði sem snéru að hámarks­afla­hlut­deild og tengdum aðila yrðu sett í for­gang.

Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þann 19. nóv­em­ber 2019 fund­aði rík­is­stjórn Íslands um „aðgerðir sínar til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi“. Þorri þeirra aðgerða hafði áður komið fram og voru því ekki nýjar af nál­inni.

Daginn eftir, 20. nóv­em­ber, skrif­aði Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, grein í Morg­un­blaðið þar sem hann sagði að í kjöl­far umræðu dag­anna á undan, sem hafði snú­ist um mál­efni tengd Samherja og stór­felld meint lög­brot þess útvegs­fyr­ir­tækis hér heima og erlendis, hefði hann óskað eftir því við nefnd sem hann skip­aði til að taka á fram­fylgd laga um kvóta­þak að hún skil­aði til­lögum þar að lút­andi fyrir 1. jan­úar 2020.

Samkvæmt gild­andi lögum um stjórn fisk­veiða mega tengir aðilar ekki halda á meira en 12 pró­sent af heild­ar­út­hlut­uðum kvóta hverju sinni. í lög­unum segir að aðilar telj­ist tengdir ef „annar aðil­inn, ein­stak­lingur eða lög­að­ili, á beint eða óbeint meiri hluta hluta­fjár eða stofn­fjár í hinum aðil­anum eða fer með meiri hluta atkvæð­is­réttar.“

Eftirlit og eftirfylgni í molum

Rík­is­end­ur­skoðun benti á það í stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu, sem birt var í jan­úar 2019, að hún kanni ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum væri í sam­ræmi við lög. Þ.e. að eft­ir­lits­að­il­inn með því að eng­inn hópur tengdra aðila ætti meira en 12 pró­sent af heild­ar­afla væri ekki að sinna því eft­ir­liti í sam­ræmi við lög.

Hingað til hefur eft­ir­litið með þessu verið þannig háttað að starfs­menn frá Fiski­stofu hafa farið tvisvar á ári og spurt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin um hversu miklum kvóta þau og tengdir aðilar halda á. Samkvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar var um tvö dags­verk að ræða á ári. „Fiski­stofa treystir nán­ast alfarið á til­kynn­ing­ar­skyldu fyr­ir­tækja við eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda,“ sagði í skýrsl­unni.

[adspot]Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni að ráð­ast þyrfti í end­ur­skoðun á ákvæðum laga um stjórn fisk­veiða um „bæði yfir­ráð og tengsl aðila svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda“.

Sú end­ur­skoðun var í kjöl­farið boðuð með skipun áður­nefnds starfs­hóps og því flýtt að hann skil­aði hluta af til­lögum sínum, þeim sem snéru að kvóta­þaki og skil­grein­ingu á tengdum aðilum, í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið kom upp.

Samherji og aðilar tengdir Brim með mikinn kvóta

Nokkrir tengdir hópar eru mjög umsvifa­miklir í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og halda á stórum hluta úthlut­aðs kvóta. Á meðal þeirra er Samherji, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins.

Í sept­­em­ber 2019 var Sam­herji, stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins sem nýlega var ásakað um vafa­sama og mögu­lega ólög­lega við­skipta­hætti víða um heim, með 7,1 pró­­­sent úthlut­aðs kvót­a. Útgerð­­ar­­fé­lag Akur­eyr­­ar, sem er í 100 pró­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­fest­inga­­fé­lag heldur á 0,64 pró­­sent hans. Síld­­­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækið Berg­­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­­­deild þess­­­ara aðila er því rúm­­lega 16,6 pró­­­sent.

Brim er það sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem heldur á mestum kvóta, en félagið fór yfir hámark sem lög heim­ila í kvóta, í króka­afla­hlut­deild í þorski, í nóv­em­ber þegar stjórn þess sam­­þykkti samn­inga um kaup á tveimur sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækjum í Hafn­­­ar­­­firði, Fisk­vinnsl­unni Kambi og Grá­brók. Hjálmar Krist­jáns­son átti 39 pró­sent í Kambi og allt hlutafé í Grá­brók. Brim var því að kaupa eignir af bróður for­stjóra síns. Sam­an­lagt kaup­verð nam rúm­­­lega þremur millj­­­örðum króna.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­ur, sem á um 46,26 pró­­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­urm var 1. sept­­­em­ber síð­­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík (í eigu Brims) með 1,3 pró­­­sent afla­hlut­­­deild.

Þann 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn greindi Kjarninn frá því að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hefði keyptný 33,3 pró­sent hlut KG fisk­verk­unar í eign­ar­halds­fé­lag­inu Krist­ján Guð­munds­son ehf., sem átti 37 pró­sent í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur. 

[adspot]Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og mun hverfa úr öllum stjórn­un­ar­störfum í félag­inu. Í orð­send­ingu sem Kjarn­anum barst frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur segir að þar með séu „rofin fjár­hags­leg tengsl á milli bræðr­anna Guð­mundar og Hjálm­ars Krist­jáns­sona. Eign­ar­hald félaga þeirra bræðra á hlutafé í Brimi hf. er aðskil­ið.“

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er þar af leið­andi að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, sem er einnig for­stjóri Brims. Eign­ar­hlutur félags­ins í Brim er nú 36,13 pró­sent. Auk þess eiga tvö tengd félög þess hlut, þar af á FISK-­Seafood eign­ar­halds­fé­lag, í 100 pró­sent eigu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur, 10,05 pró­sent hlut. Sam­tals á þessi sam­staða Guð­mundar Krist­jáns­sonar því nú 46,26 pró­sent í sjáv­ar­út­vegs­ris­an­um.

Félag Hjálm­ars Þór Krist­jáns­son­ar, KG Fisk­verkun á Rifi, er líka á meðal stærstu eig­enda Brims, með 6,5 pró­sent eign­ar­hlut.

Þeir bræður eru ekki skil­greindir sem fjár­hags­lega tengdir og því nær eign­ar­hlutur sam­stæðu Guð­mundar Krist­jáns­sonar ekki yfir þau 50 pró­sent mörk sem þarf til að hann telj­ist tengdur aðili í skiln­ingi laga um hámarks­út­hlutun á afla­hlut­deild.

Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga (Brims, Ögur­víkur og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur), sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins. Sú tala gæti hafa tekið breyt­ingum enda mikil við­skipti átt sér stað innan þessa mengis síð­ustu mán­uði.

Fjórir hópar halda á rúmlega helming

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á síðan FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­sent heild­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­sent í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum sem er með fimm pró­sent heild­ar­afla­hlut­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­ías Cecils­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­ar­kvóti þess­ara þriggja ótengdu aðila 10,6 pró­sent, og er því undir 12 pró­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­greindir með öðrum hætti.

[links]Sú breyt­ing hefur hins vegar orðið á, frá 1. sept­em­ber síð­ast­liðn­um, að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur keypti ríf­lega 10,18 pró­sent hlut FISK Seafood í Brim, sem FISK hafði keypt í ágúst m.a. af líf­eyr­is­sjóðnum Gildi, á 6,6 millj­arða króna, á tæp­lega átta millj­arða króna þann 9. sept­em­ber. Hagn­aður FISK var, sam­kvæmt þessu hátt í 1,4 millj­arðar króna á nokkrum dög­um. Í grein sem nokkrir sveit­ar­stjórn­ar­menn í Skaga­firði skrif­uðu á vef­inn Feyki (í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga) 20. sept­em­ber 2019 var óvænt greint frá því að um 4,6 millj­arðar króna af þessum tæp­lega átta millj­arða króna kaup­verði hefði verið greitt með afla­heim­ild­um. „Það þýðir um 10 pró­sent aukn­ingu í afla­heim­ildum FISK Seafood í tonnum og um leið umtals­verða aukn­ingu í umsvifum félags­ins hér á heima­slóð­un­um,“ sagði í grein­inn­i.

Sam­an­lagt héldu þau félög sem talin voru upp hér að ofan, og tengj­ast Sam­herja, Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, en eru samt sem áður ekki tengdir aðil­ar, alls á 42,2 pró­sent af öllum kvóta í land­inu í byrjun sept­em­ber 2019. Ef við er bætt Vísi og Þor­birni í Grinda­vík, sem héldu sam­an­lagt á 8,4 pró­sent af heild­ar­kvót­anum og hafa verið í sam­eig­ing­ar­við­ræð­um um nokk­urra mán­aðar skeið, þá fer það hlut­fall yfir 50 pró­sent.

Fjórir hópar halda því á rúm­lega helm­ing úthlut­aðs kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár