Þorsteinn Már sestur aftur í stól stjórnarformanns Síldarvinnslunnar

For­stjóri Samherja steig til hliðar sem for­maður stjórnar Síld­ar­vinnsl­unnar, sem Sam­herj­a­sam­stæðan á 49,9 pró­sent hlut í, eftir að Sam­herj­a­málið var opin­berað í nóv­em­ber 2019. Hann er nú tek­inn aftur við því starfi.

Þor­steinn Már Bald­vins­son er tek­inn aftur við sem stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. Þetta var ákveðið á stjórn­ar­fundi hennar um miðjan síð­asta mánuð og var nýverið til­kynnt til fyr­ir­tækja­skrár Skatts­ins.

Þor­steinn Már steig tíma­bundið til hliðar sem for­maður stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins 18. nóv­em­ber í fyrra. Skömmu áður hafði hann líka hætt sem for­stjóri Samherja. Hann sett­ist aftur í þann stól 27. mars síð­ast­lið­inn.

Ástæður þess að Þor­steinn Már steig til hliðar voru þær að Kveik­­­ur, Stund­in, Wikileaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­­u­greiðsl­­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­­göngu. Í umfjöll­un­inni steig fram upp­­­ljóstr­­ar­inn Jóhannes Stef­áns­­son, fyrr­ver­andi starfs­­maður Sam­herja í Namib­­íu, sem sagði að öll ætluð mút­u­brot Sam­herja í land­inu hefði verið fram­­kvæmd með vit­und og vilja for­­stjór­ans, Þor­steins Más.

[adspot]Samherji á, beint og óbeint, 49,9 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Lög skil­greina aðila í sjáv­ar­út­vegi ekki tengda nema einn eigi meiri­hluta í öðrum. Því eru Samherji og Síld­ar­vinnslan ekki skil­greind sem tengdir aðilar.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 20. nóv­em­ber 2019 að þegar Samherji kynnti sam­stæðu sína erlendis þá var Síld­ar­vinnslan kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Með réttarstöðu sakbornings

Í byrjun sept­em­ber 2020 var greint frá því á Kjarn­anum að Þor­steinn Már væri á meðal sem ein­stak­linga sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á starf­semi Sam­herj­a. Í mál­inu er grunur er að um mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Hinir fimm sem kall­aðir hafa verið inn til til yfir­heyrslu og fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana eru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Aðal­steinn Helga­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, og Jóhannes Stef­áns­son.

Auk hér­aðs­sak­sókn­ara hefur emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra haft mál tengd Samherja til rann­sóknar hér­lendis. Þá eru þau einnig til rann­sóknar í Namibíu og Noregi.

Stærsta sjávarútvegsblokk Íslands

Sam­herj­a­sam­stæðan er sú sem heldur sam­an­lagt á mestum kvóta á Íslandi.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Samherja hf, er með næst mesta afla­hlut­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­sent. ­Út­gerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­sent hans.

Síld­­­­­ar­vinnslan er svo með 5,2 pró­sent afla­hlut­deild og Berg­ur-Hug­inn, í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, er með 2,3 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða.

Auk þess á Síld­ar­vinnslan 75,20 pró­sent hlut í Runólfi Hall­freðs­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk að minnsta kosti 17,1 pró­sent afla­hlut­deild.

Á annað hundrað milljarðar í eigið fé

Kjarninn greindi frá því í byrjun októ­ber að Sam­herji hf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, hefði hagn­aðst um 64,8 millj­ónir evra, um níu millj­arða króna á með­al­gengi árs­ins 2019, í fyrra. Það er mjög svip­aður hagn­aður og var af starf­sem­inni árið 2018, þegar hagn­að­ur­inn var 63,7 millj­ónir evra. Um er að ræða þann hluta sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og starf­semi hennar í Fær­eyj­um.

[links]Stærsti eig­andi Sam­herja hf. í dag er félagið K&B ehf., sem er í 2,1 pró­sent eigu Þor­steins Más, for­stjóra Sam­herja, 49 pró­sent eigu Bald­vins Þor­steins­son­ar, sonar hans, og 48,9 pró­sent eigu Kötlu Þor­steins­dótt­ur, dóttur Þor­steins Más. Það á 43,1 pró­sent í félag­inu. Þar á eftir kemur Krist­ján Vil­helms­son með 28,3 pró­sent hluti. Þar á eftir kemur félagið Bliki ehf. með 11,9 pró­sent hlut. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­­um. Þor­­steinn Már er helsti skráði stjórn­­andi þess félags.

Eigið fé Samherja hf. er 451,9 millj­ónir evra, tæp­lega 63 millj­arðar króna. 

Sam­herji Hold­ing, hinn helm­ingur sam­stæð­unn­ar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi. Sam­herj­a-­sam­stæðan átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok árs 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár