Raunveruleg dánartíðni vegna COVID-19 er á huldu

Dán­ar­tíðni vegna COVID-19 á heims­vísu er, sam­kvæmt opin­berum tölum, 4,7 pró­sent. Fjöldi smita er þó van­met­inn og hægt er að slá því föstu að dán­ar­tíðnin sé umtals­vert lægri, en þó ólík­lega jafn lág og rann­sak­endur við Oxford-háskóla töldu mögu­legt.

Stræti margra stórborga heims eru tómleg að sjá, á þessum undarlegu tímum. Mynd frá New York á dögunum.
Stræti margra stór­borga heims eru tóm­leg að sjá, á þessum und­ar­legu tímum. Mynd frá New York á dög­unum. Mynd: EPA

Í hádeg­inu í dag höfðu alls 735.560 manns á heims­vísu greinst með COVID-19. Af þeim voru 34.830 manns látin, en 156.380 manns búin að jafna sig, sam­kvæmt sam­an­tekt á vef John Hopkins-háskóla í Banda­ríkj­unum. Það þýðir að dán­ar­tíðni vegna sjúk­dóms­ins er um 4,7 pró­sent, sem er ógn­vekj­andi tala.

En er veiran virki­lega svona mann­skæð, hlut­falls­lega? Í raun liggur í augum uppi að svo er ekki, þar sem ótil­greindur hluti þeirra sem fá COVID-19 sýkj­ast vægt, jafn­vel án allra ein­kenna og fara ekki í próf þannig að smit þeirra ná aldrei inn í opin­bera gagna­grunna.

Sem dæmi má nefna að í Þýska­landi hefur verið ski­mað fyrir veirunni víðar í sam­fé­lag­inu en í mörgum öðrum ríkjum og þar er dán­ar­tíðnin innan við 1 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu tölum, en 455 ein­stak­lingar hafa lát­ist vegna COVID-19 þar í landi af yfir 57 þús­und smit­uðum.

„Þetta er ný veira og COVID-19 er nýr ­sjúk­dómur sem okkur vantar meiri upp­lýs­ingar um,“ sagði Alma D. Möller land­lækn­ir við þjóð­ina á upp­lýs­inga­fundi í sam­hæf­ing­ar­mið­stöð­inni í Skóg­ar­hlíð í dag. „En það samt allur heim­ur­inn að hjálp­ast að við að afla þeirra upp­lýs­inga,“ bætti hún við.

Bjartsýnisspá

Upp­lýs­ing­arnar sem koma fram geta þó verið mis­vísandi. Rannsókn frá Oxford-háskóla, sem birt var í síð­ustu viku, vakti tölu­verða athygli og var nið­ur­stöðum hennar víða slegið upp í fjöl­miðlum, enda sögðu vís­inda­menn­irnir sem hana unnu að mögu­legt væri að yfir helm­ingur bresku þjóð­ar­innar væri þegar verið búinn að smit­ast af COVID-19, án ein­kenna eða mjög vægt.

Þessum nið­ur­stöðum úr lík­an­inu við Oxford hefur verið tekið af var­færni og for­sendum nið­ur­stöð­unnar hrein­lega mót­mælt af ýmsum sér­fræð­ingum, auk þess sem varað hefur verið við því að fram­setn­ingin gæti orðið til þess að bæði ein­stak­lingar og stjórn­völd myndu freist­ast til að taka óábyrgar ákvarð­anir.

Nið­ur­stöð­urnar frá Oxford eru enda í nær algjörri þver­sögn við skýrslu frá rann­sak­endum við Imperial College í Lundúnum, sem sögðu að ef ekk­ert yrði að gert mætti búast við því að 500.000 manns lét­ust vegna kór­ónu­veirunnar í Bret­landi og 2,2 millj­ónir manna í Banda­ríkj­unum.

Skýrslan frá Imperial College og aðrar svip­aðar hafa verið hafðar til hlið­sjónar þegar ýmis ríki, þeirra á meðal bæði Banda­ríkin og Bretland, ákváðu að herða til­mæli til almenn­ings vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Aðgerðir sem gripið hefur verið til í þeim til­gangi að hefta útbreiðslu veirunnar og fletja kúr­f­una eru þegar byrj­aðar að valda djúpum efna­hags­legum þreng­ingum um nær allan heim, ofan á þær heilsu­fars­legu hörm­ungar sem veiran er að valda víða. Eflaust óska sér þess flestir að hægt verði að vinda ofan af hörðum aðgerðum stjórn­valda sem fyrst.

Sennilega of gott til að vera satt

Tim Harford, hag­fræð­ingur og dálka­höf­undur hjá Financial Times, er einn þeirra og fjall­aði um málið í pistli fyrir helgi. Hann sagði þar að það væri senni­lega „of freist­andi“ að leggja trú á álykt­an­irnar frá Oxford, þrátt fyrir að það væri vissu­lega frá­bært ef rétt reynd­ist að meiri­hluti Breta væri þegar búinn að fá veiruna og því orð­inn ónæmur fyrir henni. Það gæti hins vegar varla stað­ist.

Harford benti á að sýni sem tekin voru úr þeim erlendu rík­is­borg­urum sem fluttir voru til heima­landa sinna frá Wuhan í Kína þegar far­ald­ur­inn geis­aði þar í jan­úar og febr­úar hefðu sýnt að ein­ungis lít­ill hluti hefði verið smit­aður og hluti þeirra vissu­lega ein­kenna­laus, en ekki sá mikli meiri­hluti sem byggt var á í reikni­lík­an­inu við Oxford.

Þá nefndi Harford einnig að í bænum Vò á Ítalíu hefðu íbúar ítrekað verið próf­aðir fyrir veirunni og þrátt fyrir að um helm­ingur smit­aðra þar hefðu verið án ein­kenna væri það hlut­fall langan veg frá því að stand­ast það sem haldið er fram í Oxford-kenn­ing­unni.

Annað dæmi sem dregur bjart­sýn­ustu álykt­an­irnar úr Oxford-lík­an­inu í efa eru nið­ur­stöð­urnar úr skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar, þar sem ein­ungis um 1 pró­sent þeirra sem hafa komið í sýna­töku hafa reynst smit­aðir af veirunni og um helm­ingur smit­aðra án ein­kenna, rétt eins og í Vò.

Harford segir í pistli sínum að far­alds­fræð­ingar séu að gera sitt besta, en þeir séu þó ekki alltsjá­andi. Þeir þurfi stað­reyndir og þær fáist ekki nema með því að prófa, prófa, prófa, eins og Tedros Adhanom Ghebr­eyesus fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar hefur brýnt fyrir ríkjum heims að gera.

Þangað til meira sé vitað með vissu um það hversu skæð veiran er ætti fólk því að hlýða Víði, vera heima og hjálpa til við að fletja kúr­f­una og heil­brigð­is­kerfin að búa sig undir verstu mögu­legu sviðs­myndir, þrátt fyrir að mögu­lega byggi þær á ófull­komnum gögnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár