Eitt prósent þjóðarinnar komin til Amsterdam til að horfa á mikilvægasta leik Íslandssögunnar

Rúmlega eitt pró­sent íslensku þjóð­ar­innar, á milli þrjú og fjögur þús­und manns, er mætt til Amster­dam til að sitja í vondum sætum á Amster­dam Arena og fylgj­ast með íslenska karla­lands­lið­inu í knatt­spyrnu í því sem kallað hefur verið mik­il­væg­asti knatt­spyrnu­leikur Íslands­sög­unnar. Ísland er sem stendur í efsta sæti síns rið­ils í und­ankeppni Evr­ópu­móts­ins (EM) í knatt­spyrnu með 15 stig og marka­töl­una 14-3 þegar fjórir leikir eru eftir af riðla­keppn­inni. Takist lið­inu að sigra Hol­lend­inga í kvöld þarf liðið ein­ungis þrjú stig úr þremur síð­ustu leikjum sínum til að gull­tryggja far­seð­il­inn til Parísar næsta sumar. Því er ekki loku fyrir það skotið að íslenskir knatt­spyrnu­á­huga­menn, og annað þjóð­rækn­is­fólk, geti farið að bóka miða til Frakk­lands næsta sumar strax á sunnu­dag, eftir að leik Íslands og Kasakstan er lokið.

Hol­lend­ingar eru vit­an­lega ein mesta knatt­spyrnu­þjóð í heimi. Þeir urðu Evr­ópu­meist­arar árið 1988 og spil­uðu til und­an­úr­slita á síð­asta heims­meist­ara­móti, sum­arið 2014. En síð­ast þegar þeir mættu litla Íslandi þá flengdi örríkið þá 3-0 í mögn­uðum leik þann 13. októ­ber 2014. Sá sigur vakti verð­skuld­aða athygli út um allan heim, líkt og Kjarninn tók saman að leik loknum.

[caption id="attachment_24531" align="alignnone" width="517"] Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu.[/caption]

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu.
Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu.

Síðan þá hefur íslenska liðið haldið áfram á fullu stími, síð­ast með stór­kost­legum sigri á Tékkum á troð­fullum Laug­ar­dals­velli í júní. Með þeim sigri tók liðið risa­skref í átt að loka­keppni EM.

Margir erlendir fjöl­miðlar vildu meina að Ísland væri komið með aðra löpp­ina á loka­mótið eftir þann sigur.

Ætla að slátra Íslandi


Í aðdrag­anda leiks­ins í dag hafa leik­menn hol­lenska liðs­ins verið kok­hraustir, þótt liðið sé með fimm stigum færri en Ísland þegar fjórir leikir eru eftir af und­ankeppn­inni. Arjen Robben, nýr fyr­ir­liði hol­lenska liðs­ins, sagði til að mynda í sam­tali við hol­lenska mið­il­inn Onsor­anje að lið hans ætl­aði sér „að slátra Íslandi“.

Árangur íslenska liðs­ins und­an­farnar tvær und­ankeppnir er þó þess eðlis að Hol­lend­ingar munu alls ekki geta leyft sér að van­meta and­stæð­inga sína. Ísland er í 23. sæti á nýjum heims­lista FIFA sem var birtur í morgun og fer upp um eitt sæti á milli mán­aða. Hol­lend­ingar eru í tólfta sæti.

Íslenska liðið hefur aldrei verið ofar á list­anum en er þó ekki lengur besta lið Norð­ur­landa, þar sem Danir skjót­ast upp fyrir íslenska liðið í 22. sætið. Íslend­ingar geta þó huggað sig við að karla­lands­lið þjóð­ar­innar er sem stendur ofar á heims­list­anum en fyrrum heims- og Evr­ópu­meist­arar Frakka. Það hefur aldrei gerst áður.

Ástæður þess að íslensk knatt­spyrna er komin þangað sem hún er komin voru raktar ítar­lega í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum sem birt­ist í sept­em­ber 2014. Í aðdrag­anda leiks liðs­ins við Tékkland í júní síð­ast­liðnum var svo farið yfir þá þróun á lands­lið­inu sem átt hefur sér stað und­an­farna ára­tugi á ekki síður ítar­legri hátt.

Icehot1 mættur til Hollands


Hall­grímur Oddsson, blaða­maður Kjarnans, er mættur til Amster­dam og mun fjalla um leik­inn þaðan síðar í kvöld. Það sem af er degi hefur hann drukkið í sig stemmn­ing­una í borg­inni og sér­stak­lega á Dam-torg­inu, sem er stappað af íslenskum stuðn­ings­mönnum að und­ir­búa sig fyrir leik­inn í kvöld með söng og þorsta­svölun.

Svona var staðan þar um hádeg­is­bilið í dag:

https://vimeo.com/138213810

Og greini­legt er að harðir stuðn­ings­menn hafa ekki látið hvers­dags­þrasið heima á Íslandi fram­hjá sér fara.

icehot
icehot
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár