Mikilmennskubrjálæði skilar landsliði örríkis í dauðafæri á sæti í lokakeppni EM

Íslend­ingar eru þjóð sem finnst við­eig­andi að storka stærð­ar­lög­mál­unum. Um tíma ætl­uðum við að verða mið­stöð fjár­mála í heim­inum og töldum unga menn í dýrum jakka­fötum hafa fundið upp leiðir til að stunda við­skipta með arð­bær­ari hætti en nokkri annarri þjóð hafði tek­ist. Þegar sú skýja­borg var leyst upp ansi snögg­lega fyrir tæpum sjö árum, og í ljós kom að hæfi­leikar mann­anna lágu fyrst og síð­ast í því að telja banka á að lána sér háar fjár­hæðir og að kaupa fyr­ir­tæki á allt of háum verðum, voru von­brigði þjóð­ar­innar gríð­ar­leg. Og þau eru enn við­var­andi.

Það þýðir samt ekki að við ætlum að hætta að kýla upp fyrir okkur. Íslend­ingar eiga enda heims­met í raf­orku­fram­leiðslu, lesa flestar bækur, gefa mest til UNICEF allra, miðað við höfða­tölu.

Það má hins vegar segja að metn­að­ar­fyllsta storkun þess­arar 329 þús­und manna þjóðar sé sú að ætla sér að eiga eitt besta lands­liðið í vin­sæl­ustu íþrótt heims, knatt­spyrnu. Og það meira að segja ekki miðað við höfða­tölu.

Í kvöld leikur Ísland við Tékkland og getur stigið stórt skref í átt að þátt­töku í loka­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts í knatt­spyrnu, sem haldin verður í Frakk­landi sum­arið 2016. Vinni liðið sinn leik og Hol­lend­ingar mis­stiga sig gegn Lettum á úti­velli er liðið komið með annan fót­inn í loka­keppn­ina.

Og það ótrú­lega við þetta er að þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem við erum kom­inn í svona dauða­færi.

Kjarninn fer yfir þá þróun íslenskra karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu sem leitt hefur til þeirrar stöðu sem er uppi í dag.

Stig að með­al­tali í leik í leikjum í und­ankeppnum lands­liðs­ins | Create infographics

Harða liðið hans Guðjóns

Í fyrsta sinn sem það var raun­hæfur mögu­leiki að ná inn í loka­keppni var í aðdrag­anda Evr­ópu­meist­ara­móts­ins 2000. Hinn granít­harði Guðjón Þórð­ar­son þjálf­aði liðið. Ísland lenti í mjög erf­iðum riðli með heims­meist­urum Frakka, Rússum og Úkra­ínu­mönnum. Frammi­staða íslenska lands­liðs­ins vakti heims­at­hygli. Fyrst náði liðið jafn­tefli við Frakka á heima­velli eftir að Rík­harður Daðason hafði komið því yfir með stór­kost­legu skalla­marki fyrir framan troð­fullan Laug­ar­dals­völl.

Liðið spil­aði síðan einn sinn eft­ir­minni­leg­asta leik úti á móti þáver­andi heims­meist­urum þegar það náði að jafna leik­inn í 2-2 eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Leik­ur­inn tap­að­ist á end­anum 3-2. Ísland náði samt sem áður 15 stigum úr tíu leikjum, skor­aði 12 mörk og fékk ein­ungis sjö mörk á sig, þar af fjögur gegn Frökkum. Það fór þó ekk­ert á milli mála, og var í raun ekk­ert laun­ung­ar­mál, að aðal­á­herslan á þessum árum var á varn­ar­leik. Í byrj­un­ar­liði Íslands voru alltaf fimm varn­ar­menn og einn mjög varn­ar­þenkj­andi miðju­maður. Oft var gant­ast með það að eini leik­mað­ur­inn í lið­inu sem gæti haldið bolta væri Rúnar Krist­ins­son. Hinir hreins­uðu bara. Það er lýsandi fyrir leik­skipu­lag Íslend­inga á þeim tíma að í ótrú­lega eft­ir­minni­legu, og nán­ast óvið­eig­andi, við­tali Ingólfs Hann­es­sonar við Guðjón Þórð­ar­son eftir fyrri Frakka­leik­inn spurði íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn þjálf­ar­ann eft­ir­far­andi spurn­ingar: „Þessi varn­ar­leikur allan timann, allir á tánum í 90 mín­útur[...] hvernig er hægt að fá menn til þess að gera þetta?“

Í dauðafæri gegn Þjóðverjum

Guðjón hætti með lands­liðið eftir síð­ari Frakk­lands­leik­inn og tók við liði Stoke þegar íslenskir fjár­festar ákváðu að kaupa það sögu­fræga félag. Við lands­lið­inu tók Atli Eðvalds­son og fékk hann að stýra lið­inu í gegnum eina heila und­ankeppni, fyrir heims­meist­ara­mótið 2002. Ísland þótti hafa lent í mun létt­ari riðli (voru meðal ann­ars með Norður Írlandi og Möltu í riðli) en í und­ankeppn­inni sem á undan fylgdi og því var það talið merki um aft­ur­för þegar lið­inu tókst aðeins fá 13 stig. Auk þess hafði varn­ar­leik­ur­inn, sem var aðals­merki Íslands fram að þeim tíma, tekið miklum aft­ur­förum. Liðið fékk á sig 20 mörk í leikj­unum tíu og en náði að skora 14. Helm­ingur markanna kom gegn Möltu og tæpur helm­ingur stig­anna líka. Í loka­leik und­ankeppn­innar var íslenska liðið nið­ur­lægt af fyrrum nýlend­ur­herrum okkar Dönum.

Þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart þjálf­ar­anum var orðin ansi tæp eftir þau úrslit. Atli hélt þó starf­inu og byrj­aði næstu und­ankeppni, en var rek­inn eftir þrjá leiki og þeir Ásgeir Sig­ur­vins­son og Logi Ólafsson tóku við. Í und­ankeppn­inni fyrir Evr­ópu­meist­ara­mótið 2004 fékk liðið 13 stig og skor­aði 11 mörk en fékk ein­ungis níu á sig. Í henni vann liðið bæði Færeyjar og Litháen tví­vegis og náði fræknu 0-0 jafn­tefli við Þjóð­verja á Laug­ar­dals­vell­inum í næst síð­asta leiknum. Miðað við að um fimm liða riðil var að ræða var árang­ur­inn frá­bær. Fyrir loka­leik­inn gegn Þjóð­verjum áttu Íslend­ingar mögu­leika á því að vinna riðil­inn ef Skotar myndu tapa fyrir Litháen og Íslandi tæk­ist að vinna Þjóð­verja í Þýska­landi. Svo varð ekki og Þjóð­verjar unnu 3-0.

Eyðimerkurgangan hefst

Íslend­ingar voru því farnir að gera kröfur gagn­vart lands­lið­inu. Það stóð svo sann­ar­lega ekki undir þeim í næstu und­ankeppni, sem var fyrir heims­meist­ara­mótið 2006. Árang­ur­inn var, væg­ast sagt, afleittur. Liðið vann ein­ungis einn leik af tíu, gegn Möltu heima, og end­aði með fjögur stig í næst neðsta sæti rið­ils­ins. Nú verða les­endur að muna að á þessum tíma töldu Íslend­ingar sig vera leið­andi í heim­inum. Fjár­mála­snill­inga sem höfðu fundið upp nýja leið til að reka banka með ofur­hagn­aði. Og pen­ingum rigndi yfir sam­fé­lagið. Hluti þeirrar pen­inga leit­aði í fjár­fest­ingar í að gera íslenska mun betri en fjöldi þegna lands­ins gat rétt­lætt. Þetta var gert með upp­bygg­ingu inn­viða á borð við knatt­spyrnu­húsa, mik­illi fjár­fest­ingu í þjálf­ara­menntun og atvinnu­mennsku­væð­ingu hluta stærstu liða lands­ins.

Eftir hina afleitu frammi­stöðu var enda skipt um mann í brúnni og Eyjólfur Sverr­is­son, einn besti leik­maður Íslands frá upp­hafi, tók við. Í und­ankeppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins 2008 þóttu mögu­leikar Íslands betri en oft áður. Að vísu voru Spán­verjar í riðli með okkur en hin sterku liðin í honum voru nágrannar okkar frá Svíþjóð og Danmörku. Ísland byrj­aði keppn­ina vel og jarð­aði Norður Írland 0-3 á úti­velli. Eftir það fór að síga á ógæfu­hliðin og nið­ur­læg­ingin náði lík­lega hámarki með nán­ast kómískri 5-0 híð­ingu gegn Svíþjóð þar sem Ísland fékk á sig eitt vand­ræða­leg­asta mark sem þjóðin hefur nokkru sinni fengið á sig. Rúmlega 4,7 milljón manns hafa horft á markið á Youtube.

And­lit­inu var lít­il­lega bjargað þegar Ísland náði að gera 1-1 jafn­tefli við Spán en nið­ur­staðan varð samt sem áður næstneðsta sæti rið­ils­ins. Ísland fékk ein­ungis átta stig, skor­aði tíu mörk og fékk 27 mörk á sig. Það gerðu 0,83 skoruð mörk skoruð að með­al­tali í leik og heil 2,25 fengin á sig. Eyjólfur, sem hafði legið undir for­dæma­lausri gagn­rýni frá íslensku press­unni vegna frammi­stöðu lands­liðs­ins var lát­inn taka pok­ann sinn fyrir næstu unda­keppni.

Nýja kynslóðin fer að láta að sér kræla

Ólafur Jóhann­es­son, sem hafði byggt upp stór­veldi FH í Hafn­ar­firði á upp­hafs­árum nýrrar aldar, fékk tæki­færi sem lands­liðsein­valdur þegar Eyjólfur var rek­inn í októ­ber 2007. Und­ankeppni heims­meist­ara­móts­ins 2010 fór hins vegar ekki vel. Ísland lenti í neðsta sæti 9. und­an­rið­ils, sem Hol­lend­ingar rúll­uðu upp. Þeir unnu alla leiki sína, skor­uðu 17 mörk og fengu ein­ungis tvö á sig (Kristján Örn Sig­urðs­son skor­aði annað þeirra). Íslend­ingar fengu hins vegar fimm stig. Eini sigur liðs­ins kom í heima­leik á móti Makedóníu. Liðið náði að skora sjö mörk en fékk 13 á sig.

Í und­ankeppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins 2012 lenti Ísland í mjög sterkum riðli með Portúgal, Danmörku, Norð­mönnum og Kýpur. Árangur lið­isns var slakur, ein­ungis einn sigur og eitt jafn­tefli. Það gaf fjögur stig. Marka­talan var líka döpur. Íslend­ingum tókst ein­ungis að skora sex mörk en fengu 14 á sig. Í þess­ari und­ankeppni gerð­ist þó ýmis­legt jákvætt. Ungir leik­menn stigu sín fyrstu skref sem lyk­il­menn með lands­lið­inu.Gylfi Sig­urðs­son, Aron Einar Gunn­ars­son, Rúrík Gíslason, Jóhann Berg Guð­munds­son, Kolbeinn Sig­þórs­son, Alfreð Finn­boga­son, Birkir Bjarna­son, Hannes Þór Hall­dórs­son og Eggert Gunnþór Jónsson stigu allir inn í liðið og fengu mik­il­væga reynslu. Eftir að Ólafur var lát­inn fara og Lars Lagerbäck var ráð­inn í starfs lands­liðsein­valds var byggt á þessum grunni stór­kost­legra leik­manna.

Endurreisnin

Í und­ankeppni fyrir síð­asta heims­meist­ara­mót blómstr­aði íslenska liðið. Ungir leik­menn, sem búa yfir miklu meiri knatt­spyrnu­legum gæðum en áður hefur sést í íslenskum leik­mönnum, óðu í gegnum keppn­ina alls óhræddir.Ísland spil­aði tíu leiki, skor­aði 17 mörk og fékk 15 á sig. Það hefur aldrei áður skorað jafn mikið í und­ankeppni. Liðið vann fimm leiki, gerði tvö jafn­tefli og tap­aði þremur. Þetta skil­aði 17 stigum og umspils­leikjum gegn Króatíu um sæti á heims­meist­ara­mót­inu.

Minn­ingin um umspils­leik­ina er ljúfsár. Sá fyrri, sem fór fram á grænspreyj­uðum (enda gras eði­lega dautt í nóv­em­ber) Laug­ar­dals­velli í skíta­kulda, var stór­kost­legur. Þrátt fyrir mót­læti á borð við að missa sinn marka­hæsta mann út af meiddan og hægri bak­vörð­inn rétti­lega af velli með rautt spjald þá náðu Króatar í raun aldrei að skapa neitt. Þeir virk­uðu hug­mynda­snauðir gegn gríð­ar­lega ákveðnu íslensku liði sem minnti mun meira á varn­ar­buffsliðið hans Guðjóns Þórð­ar­sonar, sem hélt bolt­anum helst ekki lengur en fjórar sek­úndur, en hin sókn­ar­sinn­aða sveit sem Lars Lagerbäck hafði búið til. Guð­mundur Bene­dikts­son, sem lýsti leiknum af nán­ast lík­am­legri ástríðu náði að fanga hug­mynda­leysi Króatanna ágæt­lega. Í hvert sinn sem þeir reyndu að láta sókn­ar­mann­inn Ivica Olic þræða sig í gegn á hægri kant­inum, sem var mjög oft, öskr­aði Guð­mundur á Ara Frey Skúlason, bak­vörð„Hann fer á vinstri Ari, hann fer alltaf á vinstri!“.

Fyrri leiknum var vart lokið þegar Icelandair sendi út áminn­ingu á póst­list­ann sinn um hvað pakka­ferð til Króatíu á síð­ari leik­inn myndi kosta. Fjöl­margir rifu upp sím­ann á átt­unda bjór og hót­uðu því hið minnsta að panta sér ferð. Hinir allra bjart­sýn­ustu voru farnir að skoða flug og hót­elgist­ingu í Brasilíu, þar sem heims­meist­ara­mótið 2014 fór fram. En þegar leik­ur­inn hófst var yfir­burð­ar­til­finn­ingin fljót að koðna og draum­arnir um sum­ar­frí í Brasilíu að hverfa. Liðið var eins og sprungin blaðra og átti ekk­ert í frá­bæra Króata. Jafnvel eftir að þeir urðu einum færri litu þeir út fyrir að vera tveimur fleiri. Hnípin þjóð virt­ist eig­in­lega skamm­ast sín stund­ar­korn fyrir að hafa farið langt fram úr sér.

En svo grét Eiður Smári af ein­lægni í rík­is­sjón­varp­inu og fólk fór smátt og smátt að átta sig á því hversu mikið afrek þessir strákar unnu. Þrátt fyrir að vera ekki að fara á heims­meist­ara­mót. Og ævin­týrið hélt áfram.

Árangurinn hámarkaður

Það þarf ekk­ert að fjöl­yrða um frammi­stöðu liðs­ins í þeirri und­ankeppni sem nú stendur yfir. Íslenska liðið hefur tekið alla reynsl­una sem það öðl­að­ist í þeirri síð­ustu, blandað henni saman við gæðin sem leik­menn­irnir búa yfir, hólfað það inn í takstískt upp­legg hinna mjög hæfu þjálf­ara og límt allt saman með íslenska bar­áttu­and­anum og eðl­is­læga mik­il­mennsku­brjál­æð­inu.

Skoruð mörk að með­al­tali í leik í und­ankeppnum lands­liðs­ins | Create infographics

Liðið hefur skorað flest mörk allra liða í riðl­inum (tólf mörk) í þeim fimm leikjum sem þegar er búið að leika. Það hefur lagt Tyrki, Hol­lend­inga, Letta og Kasaka en tapað fyrir Tékkum á úti­velli. Tékkar eru auk þess eina liðið sem hefur skorað gegn Íslandi (liðið hefur fengið tvö mörk á sig) í und­ankeppn­inni. Íslenska liðið situr í öðru sæti rið­ils­ins þegar und­ankeppnin er hálfnuð, stigi á eftir Tékkum og fimm stigum fyrir ofan Hol­lend­inga.

Með sigri á Tékkum á Laug­ar­dals­velli í dag mun liðið stíga risa­stórt skref í átt að loka­keppn­inni í Frakk­landi næsta sumar, en tvö efstu lið rið­ils­ins kom­ast áfram. Misstigi Hol­lend­ingar sig á sama tíma gegn Lettum gæti verið uppi sú staða að Íslend­ingum nægði að vinna Kasakstan og Lettland heima en mætti tapa á móti bæði Hol­lend­ingum og Tyrkjum úti í þeim leikjum sem eftir eru í riðl­inum. Liðið færi samt til Frakk­lands.

Og þorri þjóð­ar­innar færi lík­lega með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár